Sterk saman - podcast cover

Sterk saman

Tinna Gudrun Barkardottirpodcasters.spotify.com
Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#27 Guðrún, móðir Heklu Lindar

Guðrún Haraldsdóttir er móðir Heklu Lindar heitinnar en hún lést þann 9. apríl 2019 í höndunum á lögreglu, aðeins 25 ára gömul. Guðrún segir okkur sögu Heklu Lindar og frá þessum harmleik í þættinum.

Nov 13, 20221 hr 7 minEp. 27

#26 Friðrik Agni

Friðrik Agni er dansari, fyrirsæta, strákur úr Reykjavík og með ofsalega góða nærveru. Hann hefur unnið mikla sjálfsvinnu eftir stór áföll á unglingsárunum, unnið með átröskun, glansmyndir á samfélagsmiðlum og margt fleira sem við spjöllum um í þættinum.

Nov 06, 20221 hr 7 minEp. 26

#25 Rósa í Skjólinu

Rósa er forstöðukona í Skjólinu, úrræði fyrir heimilislausar konur. Hún ræddi um málefnið, úrræðið sem er á vegum kirkjunnar og sitt eigið líf í þættinum.

Oct 30, 202252 minEp. 25

#24 Unnur Edda

Unnur Edda Björnsdóttir er 33 ára, tveggja barna móðir og unnusta sem á áfallasögu allt frá barnæsku. Hún segir okkur sína sögu í þættinum.

Oct 23, 202257 minEp. 24

#22 Renata Sara

Renata Sara er 23 ára stelpa sem á stóra sögu þrátt fyrir ungan aldur. Hún var ballerína úr Breiðholtinu sem passaði hvergi inn, bjó hjá kaþólskum nunnum í New York og strippaði í Berlín svo fátt eitt sé nefnt. Hún segir okkur söguna sína og hvernig hún fékk aðstoð við andlegum veikindum og átröskun eftir sjálfsvígstilraun.

Oct 09, 20221 hr 28 minEp. 22

#21 Inga Lind

Inga Lind er mögnuð kona með útgeislun og bros sem birtir upp heilu herbergin. Hún á stóra sögu, þolandi ofbeldis í æsku, misnotkun, vanræksla, neysla til margra ára, fangelsisvist og beina brautin. Hún segir okkur sína sögu.

Oct 02, 20221 hr 40 minEp. 21

#20 Ögmundur Þorgrímsson

Ögmundur Þorgrímsson gerði rannsókn í mastersnámi sínu í félagsráðgjöf sem heitir "Aðgerðir stjórnvalda til að hefta neyslu ólöglegra vímuefna: Áhrif þeirra á einstaklinga innan íslensks samfélags. Við ræddum m.a. rannsóknina, hvað kom í ljós og hvað þarf að gera betur.

Sep 25, 202258 minEp. 20

#19 Auður Vilhjálms

Auður er 37 ára, tveggja barna móðir úr Breiðholti. Hún á stóra og mikla sögu en aðeins 14 ára upplifði hún fyrst að búa á götunni. Í dag hefur hún verið edrú í 15 ár.

Sep 18, 20221 hr 4 minEp. 19

#18 Raggi Turner

Ragnar Erling Hermannsson eða Raggi Turner er magnaður karakter með stóra sögu. Hann segir söguna sína auk þess að tala um fíkn, sína reynslu, hvað þarf að gera og nýja félagið "að rótunum" sem hann stofnaði fyrir stuttu.

Sep 12, 20221 hr 6 minEp. 18

#17 Ólafía Mjöll

Ólafía Mjöll er fertug, tveggja barna móðir og amma úr Hafnarfirði. Árið 2009 fór hún í einfalda aðgerð til að láta fjarlægja gallblöðruna en röð læknamistaka gerði það að verkum að hún hefur verið föst í hjólastól í 13 ár. Hún segir okkur söguna sína, frá því að vera 27 ára fiðrildi sem gerði allt sem henni datt í hug yfir í að vakna alfarið getulaus og eiga að vera send á sambýli.

Aug 07, 202255 minEp. 17

#16 Tryggvi Rafnsson - Geðveikt spjall

Tryggvi Rafns er Hafnfirðingur eins og þeir gerast bestir, heimsfrægur þar og vel þekktur á öðrum stöðum. Hann er menntaður leikari frá Englandi og segir okkur söguna sína um baráttuna við andleg veikindi og hvernig hann lenti á botninum fyrir rúmu ári síðan og ákvað að biðja um aðstoð.

Jul 17, 20221 hr 20 minEp. 16

#15 Ísabella Klara

Ísabella Klara er ung trans kona sem ólst upp í Garðabæ. Hún hefur verið í bata frá vímuefnavanda í tvö og hálft ár en hún byrjaði ung að flýja tilfinningar og áföll í heim vímuefna. Hún segir okkur sína sögu í þættinum.

Jul 10, 202259 minEp. 16

#14 Begga - hvað grípur okkur og börnin?

Begga er 35 ára, tveggja barna móðir sem hefur þurft að berjast mikið fyrir eldri syni sínum, 8 ára barn með fimm greiningar og segist ekki vilja lifa. Faðir hans skiptir sér lítið sem ekkert af en hefur samt völd í þeirra lífi gagnvart kerfinu. BUGL, barnavernd, skólakerfið og allt hitt. Hver grípur okkur, börnin og alla hina áður en það verður of seint?

Jul 03, 20221 hr 2 minEp. 15

#13 Agnes Barkar

Agnes er fertug kona með bakgrunn, áföll og menntun sem hafa komið henni á þann stað sem hún er í dag. Hún segir okkur sína sögu í þættinum.

Jun 26, 20221 hr 1 minEp. 13

#12 Hilma Dögg

Hilma Dögg er 41 árs, þriggja barna móðir sem á stóra og átakanlega sögu. Hún segir okkur hana í þessum þætti.

Jun 19, 20221 hr 3 minEp. 12

#11 Björk Lárusdóttir

Björk Láusdóttir er 27 ára kona sem nýlega gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð í Tælandi. Hún á stóra sögu en frá því hún man eftir sér vissi hún að hún væri í röngum líkama en reyndi að passa í fyrirfram ákveðin box samfélagsins. Hún segir frá áföllum, sorgum, sigrum, hvernig hún flúði vandamálin og hvernig lífið hefur breyst undanfarna mánuði.

Jun 05, 20221 hr 9 min

#10 Daníel Örn

Daníel er aðstandandi sem hefur ekki góða reynslu af kerfinu. Hann flakkaði á milli fósturheimila sem barn og unglingur vegna hegðunarvanda. Bróðir hans svipti sig lífi eftir baráttu við fíknivanda og geðrænar áskoranir sem fylgja. Hann segir söguna sína í þessum þætti.

Apr 05, 202255 min

#9 Þórey Aðalsteins

Þórey er 27 ára stelpa úr Reykjavík. Hún á langa sögu um vímuefnavanda, átraskanir og áföll. Í dag á hún fallegt líf sem hún vinnur markvisst í að viðhalda og bæta.

Mar 20, 20221 hr 8 minEp. 9

#8 Sandra Ýr

Sandra Ýr er 29 ára sveitastelpa úr Grindavík sem á stóra og átakanlega sögu. Hún segir okkur frá sorgum, áföllum og sigrum í þessum þætti.

Mar 13, 20221 hr 7 minEp. 8

#7 Kristján Höllu

Kristján kom í spjall og segir söguna sína í þessum þætti.

Mar 07, 202257 minEp. 7

#6 Inga Hrönn

Inga Hrönn er 26 ára móðir sem gengur með sitt annað barn. Hún á stóra sögu sem hún deilir með okkur en hún hefur verið í bata frá vímuefnavanda í 13 mánuði eftir að hafa sokkið djúpt og m.a. búið á götunni. Inga Hrönn er sannkölluð fyrirmynd.

Feb 27, 20221 hr 1 minEp. 6

#5 Heiða Þórðar

Heiða Þórðar er tveggja barna móðir og amma, hún á stóra og mikla sögu sem hún segir okkur í þessum þætti. Heiða hefur þurft að takast á við fleiri áföll en flestir en horfir á jákvæðu hliðar lífsins þrátt fyrir allt.

Feb 20, 20221 hr 35 minEp. 5

#4 Elísabet Ósk

Elísabet Ósk er hjúkrunsrfræðingur og ljósmóðir sem sérhæfir sig í vinnu með konum sem glíma við geðrænar áskoranir og/eða vímuefnavanda. Hún brennur fyrir málefnið og hefur stóra drauma. Hún setti af stað verkefni sem heitir Urðarbrunnur og segir okkur frá því ásamt mörgu öðru. Við komumst að því að margt má betur fara í þessum málaflokki hér á landi. sérstaklega ef horft er til hinna norðurlandanna sem við berum okkur saman við.

Feb 06, 202255 minEp. 4

Dagbjört Rúriks

Dagbjört er ung kona og algjör sólargeisli. Hún segir okkur sína sögu i þessum þætti. Dagbjört hefur verið án hugbreytandi efna í rúmlega tvö ár og unnið í sjálfri sér ásamt því að gefa mikið af sér.

Jan 30, 202259 minEp. 3

Begga Ýr og Katrín

Berglind Ýr segir okkur söguna sína en hún hefur verið í bata frá hugbreytandi efnum í rúmlega 10 ár. Hún þurfti ung að leita sér aðstoðar í Kvennaathvarfinu vegna ofbeldis af hálfu kærasta en hefur náð góðum árangri sem hún deilir með okkur. Berglind og Katrín eiga báðar drengi sem hafa glímt við erfiðleika og kom Begga eins og stormsveipur inn í líf Katrínar, þær eru að gefa saman út dagbók um tilfinningar og stjórnun þeirra þessa dagana.

Jan 23, 202255 minEp. 2

Birna Hólm

Birna Hólm er mögnuð fyrirmynd sem segir okkur söguna sína, áföll og sigra.

Jan 16, 20221 hr 8 minEp. 1
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android