Klettaborgin - podcast episode cover

Klettaborgin

Dec 08, 202031 min
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Sólveig Pálsdóttir segir frá endurminningum sínum í Klettaborginni. Hér ræðir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir fjölmiðlakona við Sólveig um tilurð bókarinnar og efni hennar. Sólveig var ung send í sveit austur í Skaftafellsýslu og dvaldi í mörg ár sumarlangt á bænum Hraunkoti í Lóni. Segja má að tveir heimar hafi búið í Sólveigu alla tíð. Á veturna bjó hún í Vesturbænum en dvaldi einnig löngum á Bessastöðum þar sem afi hennar var forseti Íslands. Klettaborgin byggir á minningum Sólveigar frá æsku og fram undir tvítugt og persónugalleríið er fjölbreytt. Hún skrifar um fólk og atburði, sem hafa haft áhrif á líf hennar, og lýsir horfnum heimi og annars konar lífsgildum en við þekkjum í dag. Sólveig hefur hingað til skrifað glæpasögur við góðan orðstír. Hún hefur sent frá sér bækurnar Leikarinn, Hinir réttlátu, Flekklaus, Refurinn og Fjötrar en fyrir þá síðastnefndu hlaut hún Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu glæpasögu ársins 2019. Nú leitar hún á ný mið og rifjar með hrífandi og kærleiksríkum hætti upp atburði frá uppvaxtarárum sínum. Klettaborgin geymir fallegar sögur og dýrmætar minningar um dýrmætar manneskjur. Myndir, bréf og margt fleira prýðir síður bókarinnar. Hér má lesa nánar um bókina: https://www.salka.is/products/klettaborgin
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android