Snorri Másson ritstjóri - podcast cover

Snorri Másson ritstjóri

Snorri Mássonwww.ritstjori.is
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar

Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á stefnu og vonlaus samskipti við Reykjavíkurborg.

Mar 28, 20251 hr 26 min

Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon.

Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innleitt á samfélagsmiðlum, innflytjendamál og tálsýnin um inngildingu allra, auk ummæla dómsmálaráðherra ...

Mar 15, 20251 hr 7 min

Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu

Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis. Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við viðhorf til þjóðmenningarinnar, tungumálsins eða kynjamála?

Jan 25, 202536 min

Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina

Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku samfélagi. Ekki er hjá því komist að drepa niður fæti á mikilvægum stöðum í sögunni, ferðalög Stuðmanna til Kína og Rússlands, Kalda stríðið og Ísland í fyrri tíð. Últrafrjálshyggja eða hardcore kommúnismi - eða þriðja leiðin? Eina málið er að sjá til þess að Reykjavíkurstjórnin verði ekki l...

Nov 19, 202450 min

Ég býð mig fram

Risatilkynning: „Ég tilkynni hér með að ég sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum.“

Oct 19, 202415 min

Viðtal | Jón Gnarr um Íslendinga, hugarfar, skynsegin ráðherra og grín

Hér er rætt við Jón Gnarr grínista sem nú hyggur á þingframboð undir merkjum Viðreisnar. Við ræðum tímann sem borgarstjóri, muninn á stjórnmálaþátttöku hans þá og nú, woke-heilavírusinn, útlendingamálin, hernaðarbandalög og varnarbandalög, sögu styrjalda, eðli gríns og menntamálin þegar Jón verður fyrsti jaðarsetti skynsegin ráðherrann. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Nettó, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.

Oct 11, 20241 hr 37 min

Viðtal | Heiðar Guðjónsson um þjóðerni, auðlindir, fjölmiðlarekstur, fjárfestingar og Peter Thiel

Í viðtali vikunnar er birt á ný samtal við Heiðar Guðjónsson fjárfesti frá því í júlí 2023. Viðtalið birtist í hlaðvarpi Skoðanabræðra, Snorra Mássonar og Bergþórs Mássonar. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel, framtíðin og Guð veit hvað annað. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.

Oct 04, 20241 hr 37 min

Viðtal | Sigmar Guðmundsson um veikleika krónunnar, ESB-drauminn, mannúðarpælinguna og fíkniefni

Sigmar Guðmundsson var fjölmiðlamaður um áratugaskeið og sneri sér svo að stjórnmálum fyrir Viðreisn. Stundum kallaður best klæddi Píratinn. Hér er rætt um fíknivandann, áfengi, Evrópusambandið, ríkisfjármál, tungumálið, innflytjendur, flóttamenn, íslensku krónuna, Jón Gnarr, Viðreisn, stjórnmálastarfið, fjölmiðla, RÚV og almennt hina pragmatísku nálgun. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Sep 27, 20241 hr 38 min

Fréttir vikunnar | Jakob Birgisson um vafasöm stjórnmálatákn, þvottavélar og efnahag uppistandara

Jakob Birgisson uppistandari sest við borð ritstjórans og ræðir allt frá brottvísun flóttamanna og málefni ríkisstjórnarinnar til sálarástands ungmenna, áfengis í búðir, þvottavéla, nýs merkis Alþingis, nýrrar stjórnarsetu Brynjars Níelssonar og margs annars. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.

Sep 20, 20241 hr 9 min

Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills

Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og Miðflokk, stríðsástand og góðu og vondu kallana í heiminum, fjölskyldumál, opinbera starfsmenn og tillögur Diljár að skattaafsláttum vegna barneigna. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Sep 13, 20241 hr 30 min

Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun

Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að hugsa sinn gang. Bókin Þú ringlaði karlmaður: Tilraun til kerfisuppfærslu er afurð þess ferlis, þar sem hann rekur sína sögu sem karlmanns í íslensku samfélagi. Viðtalið er opinskátt og persónulegt spjall um skoðanakúgun, háskóla, bókmenntir, stóra bíla, föðurhlutverkið og feðraveldið. Fréttir...

Sep 06, 20241 hr 41 min

Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar

Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra stjórnmála almennt, ólýðræðisleg ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna, fjármálasaga Íslands, sjálfsmynd þjóðar á hnignunarskeiði í menntamálum, þjóðarstoltið, félagsleg hnignun á Vesturlöndum, mikilvægi málvöndunar, orwellísk aðför að tjáningarfrelsinu, ástandið í háskólum landsins og ósköp margt fle...

Aug 30, 20241 hr 34 min

Viðtal | Aron Kristinn um TikTok, peninga, sjálfshjálp og poppstjörnulífið

Aron Kristinn Jónasson tónlistarmaður og viðskiptafræðingur er einkar áberandi á samfélagsmiðlum þessi dægrin og segir í viðtali við ritstjórann að með því sé hann bæði að markaðssetja sig en einnig hjálpa fólki. Hér tölum við um allt frá TikTok og poppstjörnulífinu til sjálfshjálparbóka og trúarinnar. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

Aug 23, 20241 hr 24 min

Fréttir vikunnar | Aðlögun innflytjenda, fyrirlestrar frjálslyndra fjölmiðla og sögulegt símaat

Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir allt frá mislýðræðislegum aðgerðum vestrænna stjórnvalda, mórölskum fyrirlestrum meginstraumsmiðla um ákveðin mál og til aðlögunar innflytjenda í gegnum viðskipti. Einnig rifjar ritstjórinn upp sögulegt símaat sem tekið var upp í hlaðvarpi hér um árið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate. Hér má nálgast viðtalið á vef Morgunblaðsins: https://www.mbl.is/mogginn/dagmal/innskraning/?redirect=/...

Aug 15, 202426 min

Fréttir vikunnar | Þú ert líklega í sértrúarsöfnuði

Hluti þessa þáttar er efni úr þætti frá 8. febrúar 2024. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er fjallað um trúarlegt eðli stjórnmála okkar tíma, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, gaslýsingar RÚV, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og möguleikann á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Aug 09, 202427 min

Viðtal | Dóri DNA um stríðin sem skipta máli, karlmennsku og woke vs. hægrið

Í þessu mikilvæga viðtali við Halldór Halldórsson Laxness rithöfund og grínista er rætt um allt frá peningum og karlmennsku til blaðamennskunnar, fjölmiðlanna og samfélagsmiðlanna. Farið er yfir stríðin sem skipta máli, tilfinningar Dóra við að lesa X, framtíð grínsins og ótalmargt fleira afar spennandi. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Þ. Þorgrímsson.

Aug 02, 20241 hr 38 min

Viðtal | Eyþór Arnalds um regluvæðingu, jafnrétti, wokeisma, Davíð Oddsson og vitvélar

Í viðtali vikunnar fer ritstjórinn um víðan völl ásamt Eyþóri Arnalds stjórnmálamanni, frumkvöðli og listamanni. Þessa dagana er Eyþór með hugann við tónlist, gervigreind og framtíð landsins og hefur frá afar mörgu að segja um allt frá málefnum sveitarfélaga til framfara í líftækni. Annað sem verður okkur að umtalsefni er regluvæðing innan ESB, menntamál, Davíð Oddsson og verðbólgan. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Jul 26, 20241 hr 39 min

Fréttir vikunnar | Raunveruleg upptök kórónuveirunnar (viðtal v. Matt Ridley metsöluhöfund)

Í fréttum vikunnar er rætt við Matthew Ridley. Matt er blaðamaður, viðskiptamaður og stjórnmálamaður, en fyrst og fremst margverðlaunaður metsöluhöfundur sem hefur selt meira en milljón bækur á fleiri en þrjátíu tungumálum. Ridley er menntaður dýrafræðingur, með doktorsgráðu í heimspeki og nýjasta bók hans er Viral, the Search for the Origin of Covid-19. Ridley hallast að því að veiran eigi upptök sín í tilraunastofu og í þessum þætti færir hann rök fyrir því. Við ræðum margt annað við Matt Ridl...

Jul 17, 20241 hr 13 min

Fréttir vikunnar | Réttindin sem ógna lýðræðinu, hópspjöll og stjörnuspeki

Í fréttum vikunnar er rýnt í umfjöllun fjölmiðla um þá ógn sem steðjar að frjálslyndu lýðræði vegna uppgangs íhaldssamra hægriafla. Bent er á hvernig glæný „réttindi“ hvers konar eru notuð sem yfirvarp til að ganga á önnur eldri réttindi. Þá er vikið að netöryggi Íslendinga og hópspjöllum og loks eru menn að opna hjarta sitt hér fyrir hinni öldnu vísindagrein stjörnuspekinni. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Happy Hydrate og Myntkaup.

Jul 12, 202423 min

Fréttir vikunnar | Skaðmenntun, lýðræðið og Biden (m. Jakobi Birgissyni og Bergþóri Ólasyni)

Mikilvæg mál eru á dagskrá í fréttum vikunnar, kosningabaráttan í Bandaríkjunum, fylgi flokka hér heima, uppgangur Miðflokksins, ferðaþjónustan, þjóðarhugtakið og gildi Íslendinga, EM og margt annað. Gestir eru Jakob Birgisson grínisti og Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins. Fréttir vikunnar eru í boði Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate.

Jul 05, 20241 hr 16 min

Fréttir vikunnar | Bakslag í woke fjárfestingum (með Bjarna Herrera sjálfbærniráðgjafa)

Þessi þáttur birtist fyrst 28. júní en datt út um hríð Í fréttum vikunnar fáum við til okkar manninn á bak við hið kynjaða skuldabréf ríkissjóðs, Bjarna Herrera sjálfbærnifræðing og rithöfund, sem var að gefa út nýja bók. Við förum yfir bakslag í „ESG“-fjárfestingum, þar sem fólk er hætt að vilja fjárfesta í sjálfbærnimerktum verkefnum sem skila slæmri arðsemi. Allir í sjokki? Bjarni hefur enn trú á verkefninu. Við víkjum einnig að áframhaldandi fylgistapi Sjálfstæðisflokksins og svo að Mannrétt...

Jul 04, 20241 hr 19 min

Fréttir vikunnar | Valdarán millistjórnandans og PC-væðing fyrirtækja

Hluti þessa þáttar er endursýnt efni frá 16. febrúar á þessu ári. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, valdarán millistjórnenda í skráðum félögum, hinseginvottun og „fjölbreytileikavegferð“ Ölgerðarinnar, leikskólamál í Reykjavík, starfsmannabyltingar, árangur Kanye West þrátt fyrir allt og allt og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Jun 21, 202439 min

Fréttir vikunnar | Vinstrisinnuð öfgahægrisveifla og strákar á móti „stelpum og stálpum“

Fréttir vikunnar eru sendar út frá Siglufirði enda stefnir ritstjórinn á að ganga í það heilaga um helgina. Umræðuefni: Sigurganga róttækra íhaldsmanna, lýðræði í ESB, kúgun drengja í skólakerfinu, gervigreind hjá Apple og umfjöllun um kjarna sósíalismans. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.

Jun 14, 202427 min

Fréttir vikunnar | Rök gegn virkjunum, íslenskir hagsmunir og vopnasendingar (með Sigríði Á. Andersen)

Í fréttum vikunnar er fyrst farið stuttlega yfir umræðu um kynhlutlaust mál og svo farið í viðtal við Sigríði Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra um allt frá nýkjörnum forseta, umræðu um vopnasendingar, efasemdir um orkuskipti, bókun 35, útlendingamál og stöðu íslenska hægrisins. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.

Jun 07, 20241 hr 22 min

Fréttir vikunnar | Vanhæft ríki, gaslýsingar Landsbankans og nauðsynlegar upplýsingar um kosningar

Í fréttum vikunnar er farið yfir áhrif misheppnaðra inngripa ríkisvalds í markaði, Landsbankann á TikTok en fyrst og fremst er farið vítt og breitt um sviðið í kosningabáráttunni. Jakob Birgisson grínisti og álitsgjafi kemur að borðinu með verðugar pælingar. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og loks Rafstorm

May 31, 202444 min

Fréttir vikunnar | Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP um Ísland, tölvuleiki og framtíðina

Í fréttum vikunnar er rætt við engan annan en Hilmar Veigar Pétursson frumkvöðul og forstjóra CCP, sem stendur þessa dagana í ströngu við að koma út glænýjum tölvuleik. Í viðtalinu er rætt um þjóðríkið sem fyrirbæri, framtíð gjaldmiðla í stafræna heiminum, verðmæt störf á Íslandi, foreldra í snjallsímum og framtíðarplön hins öfluga íslenska tölvuleikjafyrirtækis. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og loks Rafstorm.

May 24, 202452 min

Fréttir vikunnar | Halla Hrund ruglast, fjallkonan og gervigreind lýgur vísvitandi að ritstjóranum

Í fréttum vikunnar förum við yfir byltingar í gervigreind og átök innan eins mikilvægasta fyrirtækis heims á því sviði, við tökum gervigreindina tali (skrýtin uppákoma) við ræðum þjóðernishyggju þá og nú, nefnum þar misheppnaða bókargjöf forsætisráðherra og svo förum við yfir rugling hjá Höllu Hrund og skandala í hennar sögu. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og einnig Rafstorm.

May 17, 202439 min

Fréttir vikunnar | Leiðbeiningar fyrir nýja vinstrið, málfrelsi mótmælenda og heilagir embættismenn

Í fréttum vikunnar er fjallað um draumórakenndar ráðleggingar fyrrverandi þingmanns til hins svonefnda nýja vinstris (loftslagsmál, femínismi og alþjóðahyggja koma þar við sögu), fjallað er um mótmæli gegn Ísrael vestanhafs, áskoranir kjarnafjölskyldunnar, forsetaframbjóðanda Morgunblaðsins og minnkandi lífslíkur á Íslandi. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

May 10, 202436 min

Fréttir vikunnar | Velferðarkerfi og opin landamæri fara ekki saman – viðtal við David Friedman

David D. Friedman er eðlisfræðingur að mennt en hefur lagt stund á lögfræði og hagfræði með áherslu á frjálsa markaði og anarkókapítalískt kerfi. Hans framlag til anarkókapítalískrar hugmyndafræði er þýðingarmikið. Faðir David var Milton Friedman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði. Í þessu viðtali fer David yfir siðferði og löggæslu í Íslendingasögunum, sem hann hefur rannsakað sérstaklega út frá hagfræðilegu sjónarhorni, við fjöllum líka um peninga, um opin og lokuð landamæri, um velferðarkerfi, u...

May 03, 202442 min

Fréttir vikunnar | Órólega deild Samfylkingarinnar, enskuverðlaun og hættulegar upplýsingar

Fréttir vikunnar að þessu sinni fjalla um verðlaun Byggðastofnunar fyrir stjórnsýslu á ensku, hörð viðbrögð við að gagnrýna þau verðlaun, innflytjendastefnu Samfylkingarinnar, loftslagsmál, stórhættulegar upplýsingar og skoðanir Prettyboitjokko á hefðbundnum kynjahlutverkum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

Apr 26, 202436 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android