Snæbjörn talar við fólk - podcast cover

Snæbjörn talar við fólk

Hljóðkirkjanstvf.podbean.com
Snæbjörn Ragnarsson úr Skálmöld, Ljótu hálfvitunum og snjallmenni á auglýsingastofunni PiparTBWA tekur viðtöl við skemmtilegt fólk.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#0100 Magnús Blöndahl

S01E100 – Magnús Blöndahl er sálfræðingurinn minn. Hann hefur fylgt þættinum í anda í meira en ár og það var í gegnum hlustanda þáttarins sem ég fékk ábendingu um að senda honum línu og panta tíma. Það breytti mjög miklu. Hann las mig eins og opna bók, greindi kvíðann og hegðunina hjá mér niður í smáatriði og kom mér á brautina við að leysa úr málunum. Ég er allur annar en þó er ferlið ekki á enda og ég geng glaður til hans mánaðarlega. Magnús er afar fær í því sem hann gerir. Hann er vísindamað...

Apr 14, 20223 hr 56 minSeason 1Ep. 100

#0099 Laddi

S01E99 – Laddi. Það þarf auðvitað ekkert að hafa fleiri orð um það. Laddi er tónlistarmaður, leikari, grínisti og algert náttúrubarn. Hann hefur haft ofan af fyrir þjóðinni lengur en flestir gera sér grein fyrir og hefur sett niður fótinn ótrúlega víða. Ferillinn hófst við trommusettið, færðist inn í leikmunadeild RÚV og síðan á svið og fyrir framan myndavélarnar. Eftir margfaldan árangur á flestum sviðum listarinnar hefur hann nú sett stefnuna á myndlist og á margt eftir ógert þar. Laddi er alg...

Apr 07, 20222 hrSeason 1Ep. 99

#0098 Jens Ólafsson

S01E98 – Jens Ólafsson er betur þekktur sem Jenni í Brain Police. Hann er að öðrum ólöstuðum einn allra öflugasti rokksöngvari Íslandssögunnar. Hann er ógurlegur. Bæði hefur hann þennan rosalega barka, en ofan á það er hann einn mest heillandi sviðsmaður sem ég hef kynnst. Jenni er algert góðmenni og ljúfmenni, feiminn að eðlisfari og óhemju góður í því sem hann er góður í. Eins og við öll hefur hann sína djöfla að draga og það dimmir oft hjá honum. Hann hefur tekið sinn slurk af djammi og neysl...

Mar 31, 20222 hr 34 minSeason 1Ep. 98

#0097 Katrín Jakobsdóttir

S01E97 – Katrín Jakobsdóttir er forsætisráðherra Íslands. Hún er ótrúlega látlaus og skrumlaus miðað við þungavigt embættisins og fas margra sem gætt hafa þess áður. Katrín er glæpasagnanörd og fjölskyldumanneskja. Hún var send margsinnis út í sjoppu sem barn til þess að sníkja gallað nammi, þá af eldri bræðrum sínum sem glöddust yfir því hversu vel það gekk — og tóku gróðann. Eftir afburðagengi í Menntaskólanum við Sund hætti hún við að gerast leðurjakkabóhem í Frakklandi og gerði að lokum loka...

Mar 24, 20221 hr 51 minSeason 1Ep. 97

#0096 Rakel Björk Björnsdóttir

S01E96 – Rakel Björk er leikkona og söngkona. Hún ætlaði sér aldrei að verða neitt annað, sá ekki fyrir sér að Verzló myndi fara vel með hana en hins vegar varð MR henni mjög eðlilegt ferli, og þá spilaði Herranótt stærstu rulluna. Hún ólst upp við ljósleysi og málar veggina heima hjá sér í öllum mögulegum litum. Áður en leiklistarskóla lauk var hún komin í atvinnumennsku þegar Borgarleikhúsið fékk hana til liðs við sig. Þar er hún enn og Níu líf Bubba taka mikinn tíma þessa dagana ásamt fleiri ...

Mar 17, 20223 hr 57 minSeason 1Ep. 96

#0095 Aðalheiður Ámundadóttir

S01E95 – Aðalheiður, eða Alla, er gömul vinkona mín. Alveg síðan in the 80s. Við höfum gert allskonar hluti saman, brotið lögin og krufið lífið til mergjar. Við höfum haldið of litlu sambandi síðustu ár og áratugi og þess vegna var mjög gaman að setjast niður með henni núna og fylla í eyðurnar. Alla er lögfræðingur og fréttastjóri Fréttablaðsins. Hún er óhefluð og hávær, situr aldrei á skoðunum sínum og hefur mjög hátt. Hún hélt lengi framan af að hún væri heimsk, meira að segja löngu eftir að é...

Mar 10, 20223 hr 21 minSeason 1Ep. 95

#0094 Karl Ágúst Úlfsson

S01E94 – Karl Ágúst Úlfsson hefur komð svo miklu í verk að mig verkjar í verkkvíðan þegar ég hugsa um það. Spaugstofan og Stöðin eru þrekvirki út af fyrir sig, Nýtt líf, Dalalíf, Löggulíf og allt hitt. En kannski er hans stærsta afrek að hafa skrifað allt það sem hann hefur skrifað. Allar þessar þýðingar, leikrit, skáldverk, handrit hverskonar og hvað sem þetta heitir nú allt. Og allt snýst þetta um heppni og hungur, vill hann í það minnsta meina. Karl Ágúst er ótrúlega skemmtilegur sögumaður og...

Mar 03, 20222 hr 58 minSeason 1Ep. 94

#0093 Sandra Hlíf Ocares

S01E93 – Sandra er frá Akureyri en samt frá Chile. Hún lærði lögfræði þrátt fyrir góðan slurk af ADHD, eignaðist börnin á réttum aldri og gerði upp gamalt hús með hjálp vina og vandamanna. Hún hefur starfað við allskonar ólíka hluti og vill einfalda það sem flókið er. Hún er mjög berorð og beinskeytt. Mjög. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Sæktu þér pizzu á Natalía í Borg 29, Borgartúni á aðeins 1.500 krónur! – Bónus býður upp á STVF. Ef þú þarf tösku utan um kúrekastígvélin þín meðan...

Feb 24, 20223 hr 48 minSeason 1Ep. 93

#0092 Agnes Grímsdóttir [2022]

S01E92 – Þetta viðtal er ekki viðtal. Þetta er bara ég að tala við konuna mína um allt og ekkert. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Þessa vikuna býður Skyr Factory allar skálar og boozt á aðeins 1.000 kr. í Pay appinu! Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og aðeins þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið. – Sjóvá býður upp á STVF. Ég fékk póst í vikunni. Viðskiptavinir Sjóvá borga ekki lögboðnar bílatryggingar í maí. Ókei, næææs. – Bónus býður upp á STVF. Ég vann ...

Feb 17, 20221 hr 14 minSeason 1Ep. 92

#0091 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

S01E91 – Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er formaður borgarráðs, staðgengill borgarstjóra í Reykjavík og oddviti Viðreisnar í borgarstjórn Reykjavíkur. Hún hefur komið að bissness og stjórnmálum, rekið Pizza Hut á Íslandi og í Finnlandi og komið sprotafyrirtæki á laggirnar. Hún er útlærður sjónvarpsmógúll frá New Orleans en starfaði síðan hinum megin við vélarnar, sem og við hljóðnema. Þulur í Gettu betur og aldrei að pródúsera neitt. Hún er gæd og hefur sterkar tengingar við Reykjadalinn fagra. Hún e...

Feb 10, 20222 hr 45 minSeason 1Ep. 91

#0090 Ævar Þór Benediktsson

S01E90 – Við höfum sennilega öll kallað hann Ævar vísindamann, en svo einföld er sagan nú ekki. Ævar Þór er gríðarlega afkastamikill rithöfundur og grúskari en aðspurður segist hann vera leikari fyrst og allt annað á eftir. Hann er mikill talsmaður barnamenningar sem og fræðslu- og afþreyingarefnis fyrir börn og sér tækifæri í hverju horni. Hann virðist óþreytandi þegar kemur að því að koma þekkingu og gáska á framfæri en játar þó að hann sé farinn að velja tilefnin aðeins betur en hann gerði áð...

Feb 03, 20222 hr 57 minSeason 1Ep. 90

#0089 Broddi Kristjánsson

S01E89 – Broddi Kristjánsson er goðsögn. Hann hefur unnið yfir 40 íslenska titla, hefur farið á fleiri heimsmeistaramót en hann hefur tölu á og keppti á ólympíuleiknum í Barcelona árið 1992. Hann er sagnakista og ljúfmenni, lítillátur og góðlegur. Það er þó ekki erfitt að sjá keppnisskapið í gegnum þetta allt enda kemst enginn á þennan stað nema með vinnu og ákveðni. Hann vann ekki fyrsta titilinn fyrr en furðuseint, en eftir það fékk ekkert stoppað hann. Hann lærði til íþróttakennara á Laugarva...

Jan 27, 20222 hr 12 minSeason 1Ep. 89

#0088 Vigdís Jóhannsdóttir

S01E88 – Vigdís Jóhannsdóttir er trukkur. Hún er vinkona mín og við unnum saman á auglýsingastofunni Pipar\TBWA í mörg ár. Hún er markaðsstjóri hjá Stafrænu Íslandi í dag og sinnir ytri og innri markaðsmálum. Hún er alin upp í Keflavík, miklu yngri en bræður hennar tveir, tók þátt í fegurðarsamkeppnum, lærði á hljóðfæri og lék með leikfélaginu. Hún ætlaði að verða leikkona, veðurfræðingur og allskonar fleira áður en hún lenti í kjafti fjölmiðlabransans þar sem hún ílengdist í mörg ár. Hún á börn...

Jan 20, 20223 hr 21 minSeason 1Ep. 88

#0087 Arnar Þór Gíslason

S01E87 – Arnar Þór Gíslason er einn af mest áberandi trymblum landsins. Bæði er hann afskaplega afkastamikill, spilar og hefur spilað með fjölda hljómsveita og tónlistarfólks, en þar á meðal eru Dr. Spock, Pollapönk, Mugison, Jónas Sig, Lára Rúnars, Írafár og miklu fleiri, en að auki hefur hann áberandi og heillandi stíl. Addi er þó ekki tónlistarmaður að aðalatvinnu því hann er framkvæmdastjóri þeirrar stórkoslegur búðar sem Hljóðfærahúsið kallast og stendur þar vaktina dags daglega. Hann er Ha...

Jan 13, 20222 hr 37 minSeason 1Ep. 87

#0086 Esther Talía Casey

S01E86 – Esther Talía Casey er leikkona og söngkona, tveggja bara móðir og tískuáhugamanneskja. Hún er hálfur Íri en leiðir hennar og föður hennar skildu þegar hún var tveggja ára. Siðan þá hefur hún hitt hann afar óreglulega og ekki hægt að segja að hann sé hluti af lífi hennar. En það er allt í lagi og allir sáttir. Esther var söngkona hljómsveitarinnar Bang Gang en þurfti að velja á milli hljómsveitarinnar og leiklistarferilsins, vegna þess að einhverjar leiklistarfrekjur fóru fram á það. Hún...

Jan 06, 20221 hr 46 minSeason 1Ep. 86

#0085 Sigríður Beinteinsdóttir

S01E85 – Sigga Beinteins er þjóðargersemi og í mínum veruleika hefur hún alltaf verið til. Hún hóf ferilinn í bandi með dr. Gunna, en hafði áður búið í pínulitlu asbesthúsi. Hún er ekki eins og allar stelpurnar sem hoppa upp í bíla með hverjum sem er og það eitt og sér skaut henni upp á vinsældahimininn með tilþrifum árið 1984. Hún hefur farið þrisvar í Eurovision, rekið söngskóla í tveimur löndum, fengið blóðtappa sökum álags og alið upp tvíbura. Hún er hljóðfæraleikari í dvala, rokkhundur inn ...

Dec 30, 20213 hr 12 minSeason 1Ep. 85

#0084 Jóhannes Haukur Jóhannesson

S01E84 – Ég og Jóhannes Haukur þekkjumst alveg ljómandi vel og mig langaði bara til þess að hafa jó(l)a(guðs)spjallið hressandi og algerlega inni á mínu eigin þægindasvæði. Það breytir því ekki að ég komst að ógeðslega mörgu um hann sem ég vissi ekki fyrir. Þetta varð á löngum köflum algerlega gagnvirkt spjall frekar en viðtal af nokkru tagi og hann spurði jafnvel meira en hann svaraði. Jóhannes er ótrúlegur hæfileikamaður og virðist aldrei efast um neitt. Það er samt ekki alveg svona einfalt og...

Dec 23, 20214 hr 2 minSeason 1Ep. 84

#0083 Aldís Amah Hamilton

S01E83 – Aldís Amah Hamilton er mjög berorð manneskja. Hún liggur ekki á neinum skoðunum og tók mig svona allt að því á teppið með suma hluti. Það er gott, hún gerði það vel og var mjög til í samtalið. Og hey, hún hefur líka rétt fyrir sér. Aldís Amah er fædd í Þýskalandi, er af íslenskum og bandarískum ættum en eins framandi og það kann að hljóma er hún á flestan hátt alveg ofurvenjulegur Íslendingur, í besta skilningi. Hún fór í Verzló á röngum forsendum en lærði að lokum leiklist, okkur öllum...

Dec 16, 20212 hr 49 minSeason 1Ep. 83

#0082 Elíza Geirsdóttir Newman

S01E82 – Elíza Geirsdóttir Newman er söngkona, fiðluleikari og forsprakki Kolrössu Krókríðandi, sem síðar nefndist Bellatrix. Kolrassa var stofnuð laust fyrir Músíktilraunir Tónabæjar 1992 og vann keppnina með afar sannfærandi hætti. Þá strax fór allt af stað sem leiddi bandið og Elízu til útlanda þar sem reynt var á meikdraumana. Allt var það keyrt til enda og síðan þá hefur Elíza búið til og gefið út tónlist, bæði sem sóló en líka í slagtogi við aðra. Fyrir utan tónlistina hefur Elíza gert mar...

Dec 09, 20212 hr 39 minSeason 1Ep. 82

#0081 Lára Sóley Jóhannsdóttir

S01E81 – Lára Sóley er framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og er fullkomin í djobbið. Hún er Húsvíkingur í grunninn, var fyrirmyndarbarn og -unglingur, lærði á fiðlu og fór snemma að skipuleggja viðburði. Allt sem hún lærði lærði hún vel, og mögulega stundum aðeins of vel. Árum saman var hún stór hluti af tónlistarlífi Akureyrar, kom að uppbyggingu Hofs og þjónaði starfi framkvæmdastjóra þar um tíma. Fram og til baka hefur hún numið tónlist og tónlistarstjórnun erlendis og lauk meistar...

Dec 02, 20212 hr 47 minSeason 1Ep. 81

#0080 Hinrik Þór Svavarsson

S01E80 – Hinrik Þór er alls ekki venjulegur maður. Hann á stórfurðulega ævi að baki og lifir í dag lífi sem myndi sjálfsagt ekki henta öllum. Hann hefur aldrei haft skýra stefnu en þó hefur hann verið viss í sinni sök og vitað hvar áhuginn liggur. Neysla og óregla kom þó í veg fyrir að hann næði takmörkum sínum, ástand sem knúið var af kvíða og rótleysi. Hann var mjög týndur um tíma og lét sig hverfa til útlanda. Á þessum 40 árum hefur hann unnið afar mikið en stundum afar lítið, eignast tvö bör...

Nov 25, 20215 hr 17 minSeason 1Ep. 80

#0079 Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir

S01E79 – Sigurlína Valgerður er oftast kölluð Lína. Hún er súpernörd sem hefur haft áþreifanleg áhrif á tölvuleikjaspilun heimsins, og þá einna helst með aðkomu sinn að FIFA-fótboltaleikjunum frá EA þar sem hún setti fjölbreytileikann í forgang. Hún stjórnaði einnig gerð Star Wars Battlefront og að þessu vann hún, ásamt fleiru, á nokkurra ára flakki sínu með fjölskylduna um Svíþjóð, Kanada og Bandaríkin. Nú er hún komin heim og vinnur sitt lítið af hverju og hefur miklu að miðla, enda mikið gers...

Nov 18, 20213 hr 41 minSeason 1Ep. 79

#0078 Örn Eldjárn

S01E78 – Örn Eldjárn er að norðan, úr Svarfaðardal nánar tiltekið. Hann er sveitastrákur að upplagi, hóf sína heimavistarvist aðeins sjö ára gamall og leið oftast vel í skólanum, þrátt fyrir margvíslega námserfiðleika. Hann fékk heyrnina fimm ára gamall og varð strax óskaplega góður gítarleikari. Hefðbundið nám lá ekki fyrir honum og þá tókst elítunni næstum því að eyðileggja fyrri honum gítarferilinn. Næstum því, en sem betur fer tókst það ekki vegna þess að í dag er hann einn uppteknasti gítar...

Nov 11, 20212 hr 45 minSeason 1Ep. 78

#0077 Margrét Stefánsdóttir

S01E77 – Margrét Stefánsdóttir fluttist úr villingaskóla í Versló og lærði að lokum hagnýta fjölmiðlun. Hún stytti Frakklandsdrauminn til þess að koma öðru í lífinu að og var fastagestur á sjónvarpsskjám landsmanna sem fréttakona í mörg ár. Hún hefur síðan komið að PR-mennsku, kynningarmálum og fyrirtækjastússi ýmiskonar, hefur stofnað sinn eigin rekstur, eignast þrjár dætur og leitast við að gera það sem henni finnst skemmtilegt og breyta því leiðinlega til hins betra. Um þessar mundir sýnir Sj...

Nov 04, 20213 hr 53 minSeason 1Ep. 77

#0076 Auðunn Blöndal

S01E76 – Auðunn Blöndal, einnig þekktur sem Auddi Blö, er fjölmiðlamaður, vel athyglissjúkur og skemmtikraftur inni að beini. Hann veit ekkert skemmtilegra en augnablikin stuttu áður en að nýtt verkefni sem hann hefur unnið hörðum höndum er opinberað í fyrsta sinn. Um þetta leyti eru slétt 20 ár frá því hann hóf feril sinn í fjölmiðlum í þáttunum 70 mínútur og segist Auddi hafa dýrkað hverja mínútu. Frá unga aldri langaði Auðunn að vera þjóðþekktur og lifði þann draum langt fyrir efni fram, keyp...

Oct 28, 20212 hr 10 minSeason 1Ep. 76

#0075 Einar Þór Jóhannsson

S01E75 – Einar Þór Jóhannsson er gítarmeistari og tónlistarmaður í húð og hár. Hann hefur skemmt landsmönnum í tugi ára, einna lengst með hljómsveitunum Dúndurfréttum og Buffi og er að eigin sögn alveg ómögulegur ef hann er ekki að gera músík. Tónlistin hefur átt hug Einars alla tíð og hefur hann aldrei fundið aðra vinnu sem honum líkar við. Einnig er hann mikill einfari, veit ekki hvað það er að vera einmana og nýtir mikinn tíma í að vera einn með sjálfum sér. Þó á Einar oft við kvíða að etja e...

Oct 21, 20213 hr 49 minSeason 1Ep. 75

#0074 Hörður Ágústsson

S01E74 – Hörður Ágústsson er stofnandi Maclands, tveggja dætra faðir og mikill græjukarl. Hann er sannur viðgerðarmaður, gerir við græjur og vill einnig gera við vandamálin í lífinu. Nú reynir hann þó að venja sig af því að gera alltaf við og leyfa sér frekar að vera bara ekki góður öðru hvoru. Hörður hefur unnið mikið í sjálfum sér og talar hér umbúðalaust um ýmsa bresti í sínu eigin fari í gegnum árin og hvernig hann reynir í dag að forðast að verða þrothringnum að bráð. Til dæmis safnar hann ...

Oct 14, 20213 hr 57 minSeason 1Ep. 74

#0073 Brynhildur Guðjónsdóttir

S01E73 – Brynhildur Guðjónsdóttir er leikkona og leikstjóri með meiru, og hefur í dag sinnt starfi leikhússtjóra Borgarleikhússins í rúmt eitt og hálft ár. Því hafa vissulega fylgt ýmsar áskoranir á borð við örsmáan heimsfaraldur, fjöldatakmarkanir og leikhússlokanir, en hún er þó hvergi af baki dottin. Í dag nýtur hún að fá að taka almennilega á því stóra verkefni að setja saman leikhúsprógram fyrir listasoltna þjóð. Leiklistin á huga Brynhildar að mestu, en hún er þó einnig frönskumælandi, Aer...

Oct 07, 20212 hr 35 minSeason 1Ep. 73

#0072 Eva María Jónsdóttir

S01E72 – Það eru kannski heil 11 ár síðan Eva María Jónsdóttir kvaddi skjái landsmanna en hún er þó hvergi nærri af baki dottin. Líf hennar hefur einkennst af heilmikilli vinnu, barnaláni og nýjum áskorunum, en þessa dagana hefur hún vent sínu kvæði í kross, tekið sér frí frá vinnu sinni í Árnagarði, lært jógakennslu og reynir að gera hluti af áhugahvöt, ekki í blindni hins hraða nútíma. Evu Maríu finnst æðislegt að eiga lífsförunaut og trúir því að öll séum við að gera okkar allra besta sem við...

Sep 30, 20213 hr 3 minSeason 1Ep. 72

#0071 Ásmundur Einar Daðason

S01E71 – Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum. Ásmundur hefur unnið ötult starf í þágu barnaheillar á Íslandi en leiðin lá þó ekki alltaf á þing; hann er menntaður búfræðingur og stefndi lengi á að reka sitt eigið bú. Hann á átta hunda, nýtur kosningabaráttunnar og leitar sér að á...

Sep 23, 20212 hr 14 minSeason 1Ep. 71
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android