Síðdegisútvarpið - podcast cover

Síðdegisútvarpið

Útvarp Sagawww.utvarpsaga.is
Opin og beinskeitt umræða um þjóðfélagsmál.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Kristinn Sigurjónsson faðir, afi og fyrrverandi lektor við Háskólann í Reykjavík

Feðradagurinn: Af hverju kynjastríð? Kristinn Sigurjónsson, faðir, afi og fyrrverandi lektor við Háskólann í Reykjavík var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum Síðdegisþætti. Kristinn sagði frá upphafi og sögu feðradagsins, sem er á sunnudaginn kemur, en hann er haldinn hátíðlegur í mörgum löndum til að heiðra feður. Hann talaði um hvers vegna hann hefði farið að kynna sér feðradaginn, nauðsynlega aðkomu feðra við uppeldi barna, feðraveldið, #MeToo-hreyfinguna, kvennafrídaginn og margt fle...

Nov 10, 202349 minEp. 545

09.11.23 - Hugmyndir Miðflokksins - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra mætir og ræðir um hugmyndir Miðflokksins hvernig hægt er að mæta greiðsluerfiðleikum fólks við þær aðstæður sem eru nú upp i í þjóðfélaginu - háir vextir og verðtrygging hærri hér en í nágrannalöndunum. Miðflokkurinn samþykkti á landsþingi sínu að lækka virðisaukaskatt á matvælum til að lækka matarkörfuna. Pétur Gunnlaugsson ræðir við Sigmund Davíð

Nov 09, 202353 minEp. 543

07.11.23 - Seðlabankastjóri hætti þegar í stað. Ásthildur Lóa Þórsdóttir alþingismaður Flokks Fólksins sem á sæti í efnahags-og viðskiptanefnd Alþingis

Ásthildur Lóa Þórsdóttir alþingismaður Flokks Fólksins sem á sæti í efnahags-og viðskiptanefnd Alþingis hefur ásamt Ragnari Þór, formanni VR sagt að það eigi að láta Seðlabankastjóra hætta þegar í stað. Hefur þessi yfirlýsing vakið verulega athygli. Pétur Gunnlaugsson og Ásthildur Lóa ræða þetta og fleiri mál.

Nov 07, 202356 minEp. 541

Ráðningasamningur og staða biskups: Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson fyrrverandi sóknarprestur

Kristján Örn Elíasson ræðir við Sr. Kristin Jens Sigurþórsson fyrrverandi sóknarprest á Saurbæ á Hvalfjarðarstönd um þjóðkirkjuna, kirkjuþing, ráðningasamning og stöðu biskups. Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson er síðasti sóknarpresturinn sem sat Saurbæ á Hvalfjarðarströnd en prestakall hans og sóknarprestsembætti var lagt niður af kirkjuþingi og biskupi Íslands í mars árið 2019.

Oct 27, 202357 minEp. 537

16.10.23 - Flensufaraldur. Staðan í bólusetningunum - Guðmundur Karl Snæbjörnsson læknir

Heilbrigðismál. Flensufaraldur. Staðan í bólusetningunum. Hverja er verið að sprauta núna og hvaða efni er verið að sprauta í fólk. Guðmundur Karl Snæbjörnsson læknir eða Kalli Snæ ræðir við Arnþrúði Karlsdóttur og það verður opinn sími í seinni hluta þáttarins og fólk getur komið með spurningar fyrir Guðmund Karl. 16. okt. 2023

Oct 16, 202353 minEp. 529

13.10.23 - Jakob Frímann Magnússon alþingismaður Flokks Fólksins hefur beðið þjóðina afsökunar á bankahruninu frá 2008

Bankahrunið. Jakob Frímann Magnússon alþingismaður Flokks Fólksins er sá þingmaður sem hefur beðið þjóðina afsökunar á bankahruninu frá 2008 þótt svo hann hafi ekki verið á þingi þá en hann ræðir um Bankahrunið og afleiðingar fyrir fólk sem sumir hverjir eru ekki búnir að jafna sig eftir það. Jakob á sæti í utanríkisnefnd Alþingis. Arnþrúður Karlsdóttir

Oct 13, 202346 minEp. 528
Hosted on Transistor
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android