Þorgeir Ástvaldsson, útvarpsmaður og tónlistarmaður
Arnþrúður Karlsdóttir og Þorgeir Ástvaldsson, útvarpsmaður og tónlistarmaður, spjalla um starf hans sem útvarpsstjóri Rásar 2 fyrir 40 árum ásamt öðru.

Arnþrúður Karlsdóttir og Þorgeir Ástvaldsson, útvarpsmaður og tónlistarmaður, spjalla um starf hans sem útvarpsstjóri Rásar 2 fyrir 40 árum ásamt öðru.
Maggi Magg og Arnþrúður - verslunarmannahelgin 4. ágúst 2023.
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins um málefni innflytenda og hin stóru málin sem eru í gangi.
Arnþrúður ræðir við Kristján Örn Elíasson um málefni drengs í Reykjanesbæ sem á að bera út úr húsi sínu á morgun.
Runólfur Ólafsson frá FÍB - Félagi íslenskra bifreiðaeigenda um rafmagnsbíla og bensín á markaðnum. FÍB er með sérstaka vegaþjónustu fyrir sína félagsmenn sem verður fróðlegt að fræðast um. Einnig er talað við Guðmund E. Björnsson, framkvæmdastj´óra Automatic um bætiefni sem hindrar skemmdir E-10 eldsneitis á bílum.
Björn Leví Gunnarsson alþingismaður frá Pírötum og Arnþrúður ræða helstu málin sem hafa verið í umræðunni undanfarið
Í dag ræðir Kristján Örn Elíasson við Björn Sævar Einarsson veðurfræðingur frá Bindindissamtökum Íslands um baráttumál þeirra gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu í landinu. 27. júlí 2023 --- Nú eru framundan bæjarhátíðir víða um land og það styttist í verslunarmannahelgina þar sem margvísleg óhöpp verða sem rekja má til áfengis eða fíkniefnaneyslu.
Arnþrúður bein útsendng sennilega Vilhjálmur Árnason alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins sem ræðir um stóru málin og stjórnmálin í skjóli sumarleyfa
Umfjöllun um alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO og undirskriftalisti sem hefur verið lagður fram til þess ða mótmæla þátttöku Íslands í farsóttasáttmála WH0 sem felur í sér fullveldisafsal Íslands. Til þess að ræða þetta mæta fulltrúar frá samtökunum mín leið mitt val þau Kristín Þormar og Leifur Árnason - Arnþrúður Karlsdóttir stjórnar þættinum
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Jón Steinar Gunnlaugsson lögmann og fyrrverandi hæstaréttardómara um ráðningu Biskups Íslands í embætti og vanvirðingu við gildandi lög. kl.13:30 ræðir Arnþrúður Karlsdóttir við Dr. Harald Ólafsson veðurfræðing og prófessor við Háskóla Íslands um hitabylgju sem gengur yfir Suður Evrópu og skógarbruna af mannavöldum.
Fiskleysi í fiskibúðum - Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Kristján fiskikóng og Jón Steinn Elíasson
Strandveiðar og Sjókvíeldi. Pétur Gunnlaugsson ræðir við Jón Kristjánsson fiskifræðing um stöðvun á strandveiðum og um sjókvíeldi
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Guðmund Hrafn Arngrímsson formann félags leigjenda um ný húsaleigulög
Pétur Gunnlaugsson og Hallur Hallsson blaðamaður og sagnfræðingur um Baráttuna um frelsun barna víða um heim úr kylífsánauð. Menningarstríðið gengur útá það.
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Eyjólf Ármannsson alþingismann Flokks Fólksins í Norðvesturkjördæmi um strandveiðar og takmörkun á veiðum ásamt fleiri málum, svo sem hvalveiðibannið, orkumál og utanríkismál.
Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélagi Akraness og Pétur Gunnlaugsson um hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur og stjórnarskrárbrot og ólöglegar ákvarðanir hennar og stöðvun strandveiða.
Stjórnmálin. Lindarhvoll, Íslandsbanki og Hvalveiðar. Lilja Alfreðsdóttir menningar og viðskiptaráðherra ræðir við Arnþrúði Karlsdóttur um stöðu þessa mál sem upp eru komin.
Lindahvolsskýrslan opinber. Þorsteinn Sæmundsson fyrrverandi þingmaður sem hefur barist allra manna mest fyrir því að upplýsa um innihald greinargerð fyrrverandi ríkisendurskoðanda, Sigurðar Þórðarsonar um sölu eigna ríkisins í gegnum félagið Lindarhvol. Hann er í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur
Stjórnmálin : Arnþrúður ræðir við Eyjólf Ármannsson alþingismann Flokk fólksins
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar um stóru málin. Svo sem Íslandsbankamálið, efnahagsmálin og hvalveiðibannið svo eitthvað sé nefnt.
Annar þáttur um stjórnsýslu og neytendamál Kristján Örn mun fjalla um nauðunarsöluna í Reykjanesbæ og spurt verður: Hvernig getur svona gerst. Húsnæði selt á 3 milljónir á nauðungarsölu en verðmæti eignar talið vera 54 milljónir. Þá verður fjallað almennt um réttarstöðu fólks þegar það hreppir þá stöðu að missa heimili sitt á nauðungarsölu. Kristján ræðir við þá Guðmund Ásgeirsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna og Björn Þorra Viktorsson hæstaréttarlögmann um þessi mál...
Stjórnsýsla og Neytendamál. Þáttastjórnandi er Kristján Örn Elíasson. Í dag mun hann ræða við Friðjón Einarsson formann bæjarráðs Reykjanesbæjar og staðgengil bæjarstjóra, um nýjust tíðindi og viðbrögð stjórnvalda en ákveðið hefur verið að beina hælisleitendum frá Reykjanesbæ og koma þeim fyrir í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu- Jafnframt munu þeir ræða um nauðungarsölu á húsi ungs manns í Reykjanesbæ og hefur verið til umfjöllunar í vikunni
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Þorstein Sæmundsson fyrrverandi þingmann Miðflokksins um Íslandsbankamálið og söluna á íbúðum Íbúðalánasjóðs.
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Arnór Sigurjónsson um þær hugmyndir hans að koma á fót íslenskum her en hann skrifaði bókina Íslenskur her- Breyttur heimur - Nýr veruleiki
Íslandsbankamálið - Arnþrúður Karlsdóttir og Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar
Íslandsbanki og hvalveiðibann - Arnþrúður Karlsdóttir og Ágúst Bjarni Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins
Arnþrúður Karlsdóttir og Inga Halldórsdóttir ræða um The Great Reset eða endurræsinguna miklu sem hefur mikil áhrif á efnahagslífið hér á Íslandi og stjórnkerfið í landinu, og birtist í margvíslegum málum sem eru í umræðunni í dag. 23. júní 2023