Gunnlaugur M. Ingvarsson leigubílstjóri ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um fyrirhugaða lagasetningu sem gerir ráð fyrir meira frelsi til leigubílaaksturs, en margir leigubílstjórar eru mjög andvígir frumvarpinu og telja öryggi farþega og gæðum aksturs verði fórnað.
Feb 08, 2022•45 min•Ep. 66
Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um Uber leigibifreiðaakstur og hvort slíkt sé raunhæft hér á landi, málefni útlendinga og heilbrigðismál.
Feb 04, 2022•53 min•Ep. 65
Ólöf Helga Adolfsdóttir varaformaður Eflingar ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um þá ókyrrð sem verið hefur innan Eflingar og verkalýðsmál og stöðu verkafólks.
Feb 04, 2022•41 min•Ep. 64
Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um verkalýðsmál, verðbólgu og hækkandi húsnæðisverð.
Feb 04, 2022•44 min•Ep. 63
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um borgarmálin og fer yfir þau mál sem hafa komið upp á kjörtímabilinu.
Feb 02, 2022•41 min•Ep. 62
Albert Jónsson fyrrverandi sendiherra ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um málefni Úkraínu og þróun mála í úkraínudeilunni og hver möguleg þróun í málinu verður á næstu vikum og mánuðum.
Feb 01, 2022•51 min•Ep. 61
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræðir í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur og Pétur Gunnlaugsson um hækkanir á vöruverði og orku og stöðu neytenda á Íslandi.
Jan 25, 2022•53 min•Ep. 60
Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um stefnu ríkisstjórnarinnar í sóttvarnamálum, hvort nægileg rök séu fyrir núverandi sóttvarnafyrirkomulago og raforkuskortinn á Íslandi.
Jan 20, 2022•52 min•Ep. 59
Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um borgarmálin, sölu eigna borgarinnar og rifjar upp helstu málin sem komið hafa upp á kjörtímabilinu.
Jan 19, 2022•49 min•Ep. 58
Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri var með símann opinn fyrir þá hlustendur sem ræddu um Covid, bólusetningar, sóttvarnarreglur og þjóðmálin.
Jan 17, 2022•58 min•Ep. 57
Jan 14, 2022•54 min•Ep. 56
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður og þingmaður Miðflokksins ræðir í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur um vilja erlendra afla til þess að komast til áhrifa hér á landi og þá segir Sigmundur frá sinni reynslu af samskiptum sínum við þá aðila.
Jan 14, 2022•58 min•Ep. 55
Guðmundur Karl Snæbjörnsson sérfræðingur í heimilislækningum ræðir í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur um bólusetningar gegn Covid á börnum og þá gefst hlustendum færi á að hringja í þáttinn og leggja fram spurningar fyrir Guðmund. Síminn er 588-1994.
Jan 12, 2022•59 min•Ep. 54
Hallur Hallsson blaðamaður og sagnfræðingur ræðir í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur um samráð Evrópskra fjölmiðla í fréttaflutningi, veru Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í innsta hring auðmanna í Davos, framleiðslu bóluefna og leynisamningana við lyfjarisana og bólusetningar barna.
Jan 12, 2022•59 min•Ep. 53
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Ingu Sæland formann Flokks fólksins og Björn Leví Gunnarsson þingmann Pírata um stöðuna í stjórnmálunum, sóttvarnaaðgerðir og fleiri mál.
Jan 06, 2022•53 min•Ep. 51
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Björn Inga Hrafnsson ritstjóra Viljans um þau ummæli Björns Inga að innflytjendur séu "bleiki fíllinn í stofunni" þegar kemur að þeim sem séu óbólusettir. Þá er einnig rætt við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur Barnasmitsjúkdómalæknir á sóttvarnasviði hjá embætti landlæknis.
Jan 05, 2022•1 hr 4 min•Ep. 50
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur miðil og spákonu, en Guðrún ætlar að horfa til ársins 2022 og greina hlustendum frá þeim atburðum sem hún sér gerast á nýju ári.
Dec 30, 2021•1 hr 1 min•Ep. 49
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræða um fund Velferðarnefndar Alþingis þar sem fjallað var um bólusetningar 5-11 ára barna. Í þættinum er meðal annars rætt við Guðmund Inga Kristinsson þingmann Flokks fólksins sem spurði á fundinum hvaða rannsóknir lægju að baki áhrifa bóluefnanna á börn og Sigurlaugu Ragnarsdóttur formann stjórnar samtakanna Mín leið, mitt val sem lýst hafa efasemdum um Covid bólusetningar barna.
Dec 29, 2021•55 min•Ep. 48
Sirrý spá ræðir í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur um komandi nýtt ár og Sirrý kíkir í kristalskúluna síóna og segir hlustendum frá þeim atburðum sem hún sér fyrir sér að muni gerast á árinu 2022.
Dec 28, 2021•1 hr 4 min•Ep. 47
Guðmundur Karl Snæbjörnsson ræðir um omicron afbrigði veirunnar, eiginleika afbrigðisins, einkenni og áhrif.
Dec 28, 2021•1 hr 55 min•Ep. 46
Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður og flugmaður ræðir í viðtali við Magnús Þór Hafsteinsson um nýja bók sem Ómar var að senda frá sér sem nefnist Sumargleðin en í bókinni segir Ómar á litríkan og bráðsmellinn hátt frá árum sínum með Sumargleðinni, sem hann stofnaði ásamt Ragnari Bjarnasyni söngvara.
Dec 22, 2021•59 min•Ep. 45
Dec 22, 2021•58 min•Ep. 44
Séra Pétur Þorsteinsson prestur Óháða safnaðarins ræðir í viðtali við Magnús Þór Hafsteinsson um jólahátíðina og hátíðarhöld Óháða safnaðarins um hátíðarnar.
Dec 21, 2021•56 min•Ep. 43
Páll Halldórsson fyrrum flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni og Landgræðslunni og Sveinn Runólfsson fyrrum landgræðslustjóri ræða í viðtali við Magnús Þór Hafsteinsson um bókina Landgræðsluflugið sem fjallar um landgræðsluflugin sem farin voru á eins hreyfils flugvélum en í bókinni má meðal annars sjá mikinn fjölda mynda af þessum flugvélum sem og frá hinum ýmsu landgræðsluverkefnum vélanna.
Dec 16, 2021•1 hr•Ep. 42
Saga Skagafjarðar
Dec 15, 2021•1 hr 4 min•Ep. 41
Arnþrúður kynnir sér nýtt jólasveinaspil frá Sýsla.is með Kristinn Gylfa og Pétri.
Dec 15, 2021•56 min•Ep. 40
Magnús Þór Hafliðason fer yfir sögu mislinga sem er umfjöllunarefni nýju bókar Dr. Erlu.
Dec 14, 2021•55 min•Ep. 39
Magnús Þór Hafliðason ræðir við þá um laxeldi.
Dec 14, 2021•52 min•Ep. 38
Dr. Jón Þ. Þór sagnfræðingur ræðir í viðtali við Magnús Þór Hafsteinsson um tvær bækur sem komu út á dögunum í hans þýðingu en það eru bækurnar Fjórar systur – Saga rússnesku keisaradætranna sem fjallar um ævi rússnesku keisaradætranna, Olgu, Tatjönu, Maríu og Anastasíu og örlög þeirra. Hin bókin ber heitið Bretaveldi og fjallar um þá tíð þegar Bretar réðu víðfeðmasta heimsveldi sem mannkynssagan kann frá að greina. Saga þess hófst á valdadögum Elísabetar I – meykonungsins – á sextándu öld og st...
Dec 09, 2021•58 min•Ep. 37
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þjóðfræðingur og rithöfundur ræðir í viðtali við Magnús Þór Hafsteinsson um nýja bók sem Ólína var að senda frá sér sem ber heitið: Ilmreyr, móðurminning en bókin er sjálfsævisaga með sagnfræðilegu og þjóðfræðilegu ívafi.
Dec 08, 2021•52 min•Ep. 36