https://solvitryggva.is/ Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.
Dec 01, 2022•51 min•Season 3Ep. 134
https://solvitryggva.is/ Einar Kárason er einn farsælasti rithöfundur Íslands og hefur gefið út ógrynni bóka sem notið hafa mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Einar og Sölvi um HM í fótbolta, ristkoðun í listum og bókmenntum, feril Einars og margt fleira.
Nov 29, 2022•12 min•Season 3Ep. 145
https://solvitryggva.is/ Kristján Einar Sigurbjörnsson er nýkominn til Íslands eftir að hafa setið 8 mánuði í fangelsi á Spáni. Í fangelsinu upplifði hann hræðilega hluti sem flestir geta bara ímyndað sér úr bíómyndum. Í þættinum segir hann söguna alla.
Nov 26, 2022•44 min•Season 3Ep. 144
https://solvitryggva.is/ Inga Sæland er formaður Flokks fólksins. Í þættinum ræðir hún um hvað þarf að laga í íslensku samfélagi, hvað gerist á bakvið tjöldin á Alþingi, sorgina eftir að hafa misst 3 unga ástvini og margt margt fleira.
Nov 21, 2022•19 min•Season 3Ep. 143
https://solvitryggva.is/ Nicolai Engelbreght er ungur maður sem um áraraðir var fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, en fann svo leiðina út og hjálpar nú föngum og öðrum við að bæta líf sitt. Í þættinum fer hann yfir árin í undirheimunum, hvernig hann hefur reynt að bæta fyrir brot sín, karlmennsku og margt fleira.
Nov 16, 2022•20 min•Season 3Ep. 142
https://solvitryggva.is/ Hjalti Úrsus Árnason er einn öflugasti aflraunamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræðir hann um gullaldarárin í kraftasportinu, æfingarnar og ferðalögin með Jóni Páli og réttarmorðið á syni hans, sem nýlega lést aðeins 29 ára að aldri.
Nov 14, 2022•15 min•Season 3Ep. 141
https://solvitryggva.is/ Margrét Friðriksdóttir rekur fréttamiðilinn frettin.is. Hún hefur verið mjög umdeild fyrir skoðanir sínar á undanförnum árum. Í þættinum ræðir hún föðurmissirinn, tímann þegar hún flakkaði um Indland í leit að svörum, hvatvísina og margt fleira.
Nov 09, 2022•20 min•Season 3Ep. 140
Donna Cruz flutti fjögurra ára gömul til Íslands frá Filippseyjum. Hún sló nýlega í gegn fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Agnes Joy, þar sem hún fór með eitt af aðalhlutverkunum. Í þættinum ræða Sölvi og Donna um leiklistina, samfélagsmiðla, falinn rasisma á Íslandi og margt fleira. Þátturinn er í boði: Arionbanki - https://www.arionbanki.is/ Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Promennt - https://www.promennt.is/ Narfeyrarstofa - https://nar...
Nov 09, 2022•1 hr 3 min•Season 2Ep. 99
https://solvitryggva.is/ Kristján Jóhannsson er þekktasti óperusöngvari Íslandssögunnar. Hann hefur sungið í mörgum af stærstu listahúsum heims í áratugi. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján ótrúlegan feril Kristjáns, árin áður en stóra tækifærið kom, fjölmiðlatryllinginn í kringum styrktartónleikana um árið og margt margt fleira.
Nov 07, 2022•10 min•Season 3Ep. 139
https://solvitryggva.is/ Sigríður Klingenberg er löngu orðin landsþekkt fyrir stórmerkilegan fatastíl, spádóma og skemmtanir um allt land. Í þættinum ræða Sigga og Sölvi um ótrúlegar sögur af Siggu, getuna til að standa með sjálfum sér og margt margt fleira.
Nov 01, 2022•20 min•Season 3Ep. 138
https://solvitryggva.is/ Sergio Moreno er ungur maður sem fæddist í versta fátækrahverfinu í Medellin í Kólombíu . Sölvi tók viðtalið þegar hann var sjálfur á ferðalagi í Suður-Ameríku. Sergio vann sig út úr fátæktinni og rekur nú ferðaþjónustui. Í þættinum lýsir hann því hvernig var að sofna við skotbardaga sem barn, sjá lík á götunum, eiga vini í verstu glæpaklíkum Kólombíu og mörgu fleiru.
Oct 27, 2022•20 min•Season 3Ep. 137
https://solvitryggva.is/ Tinna Marína Jónsdóttir hefur unnið til verðlauna í lyftingum aðeins örfáum árum eftir að hafa greins með MS-sjúkdóminn. Eftir að hafa farið niður í 45 kíló og farið í djúpan dal, hefur hún unnið upp þrek, líkamlegan styrk og jákvætt hugarfar á undraverðan máta. Í þættinum fara Sölvi og Tinna yfir vegferð Tinnu, allt frá keppni í Idol stjörnuleit fram á daginn í dag.
Oct 24, 2022•20 min•Season 3Ep. 136
https://solvitryggva.is/ Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.
Oct 17, 2022•15 min•Season 3Ep. 135
https://solvitryggva.is/ Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.
Oct 17, 2022•15 min•Season 3Ep. 134
https://solvitryggva.is/ Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva. Eftir áratugi á þingi og setu í ráðherrastól er Guðni nú kappsamur um að njóta lífsins. Í þættinum ræðir hann um störfin á þinginu, umræðuna í samfélaginu, bætta heilsu og margt fleira.
Oct 16, 2022•58 min•Season 3Ep. 113
https://solvitryggva.is/ Guðni Gunnarsson hefur í áratugi starfað við allt sem snýr að andlegri og líkamlegri heilsu bæði á Íslandi og erlendis. Í þættinum ræða Sölvi og Guðni um feril Guðna, árin í Los Angeles, leiðir til að bæta heilsu og margt fleira.
Oct 15, 2022•20 min•Season 3Ep. 133
https://solvitryggva.is/ Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt eftir að hafa starfað sem þula á Ríkissjónvarpinu um árabil. Hún er óhrædd við að segja skoðanir sínar og fer vægast sagt sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræðir hún um hamingjuna, stöðuna í samfélaginu, mikilvægi þess að standa með sjálfum sér og margt fleira.
Oct 14, 2022•1 hr 24 min•Season 3Ep. 112
https://solvitryggva.is/ Guðjón Heiðar Valgarðsson er eins konar andlit samsæriskenninga á Íslandi. Eftir að hafa haft frekar hefðbundnar skoðanir á unga aldri varð kúvending eftir atburðina 11. september 2001. Síðan þá hefur Guðjón Heiðar efast um mjög margt sem er borið á borð fyrir okkur. Í þættinum ræða hann og Sölvi um samsæriskenningar, upplýsingaflæði, fjölmiðla og fleira.
Oct 13, 2022•20 min•Season 3Ep. 132
https://solvitryggva.is/ Hafsteinn Þór Guðjónsson eða Haffi Haff skaust fram á sjónarsviðið eftir vaska framgöngu í undankeppni Eurovision. Síðan þá hefur hann komið fram víða og vakið athygli hvert sem hann fer. Í þættinum fara Sölvi og Haffi yfir feril Haffa, pólariseringu í samfélaginu, trúnna, það að mega vera öðruvísi og margt fleira.
Oct 10, 2022•20 min•Season 3Ep. 131
https://solvitryggva.is/ Erna Ýr Öldudóttir blaðamaður hefur oft vakið athygli fyrir að ganga gegn meginstraumnum í ýmsum málum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn í fjölmiðlum, stöðuna í heimsmálum, samfélagsgerðina á Íslandi og margt fleira.
Oct 05, 2022•20 min•Season 3Ep. 130
solvitryggva.is Kristinn Sigmarsson er ungur maður sem hefur sérhæft sig í öllu sem snýr að heilsu og bættum lífsstíl. Eftir að hafa ætlað að taka eigið líf aðeins 15 ára gamall lagði hann allt í sölurnar til að finna hamingjuna og starfar nú við að hjálpa fólki.
Oct 03, 2022•20 min•Season 3Ep. 129
solvitryggva.is Iaroslav Lekhterov Kom hingað frá Úkraínu eftir að hafa flúið stríðið í heimalandinu. Eiginkona hans og barn komust úr landi, en honum var meinað að fara yfir landamærin. Eftir að hann náði loks að flýja bað konan hans um skilnað. Hann ákvað því að flytja til Íslands. Í þættinum ræðir hann um dagana sem spreningarnar byrjuðu, ótrúlegt ferðalag til að komast úr landi og hvernig það er að vera kominn í annað land allslaus eftir að hafa skilið allt eftir.
Sep 28, 2022•20 min•Season 3Ep. 128
https://solvitryggva.is/ Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem stendur fast á sannfæringu sinni. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera í faraldrinum og segir læknum bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og hvað þarf helst að óttast.
Sep 28, 2022•1 hr 37 min•Season 3Ep. 117
https://solvitryggva.is/ Hafsteinn Númason hefur gengið í gegnum meira en flestir. Hann hefur misst 4 börn, þar af 3 í snjóflóðinu á Súðavík, auk þess að lenda svo sjálfur í alvarlegu slysi. Í þættinum ræða Hafsteinn og Sölvi um atburðina fyrir vestan, þrautseigju, trúna á guð, tilgang og margt fleira.
Sep 26, 2022•20 min•Season 3Ep. 127
https://solvitryggva.is/ Þórhildur Magnúsdóttir er verkfræðingur sem vakið hefur athygli fyrir að tala opinberlega um að vera í opnu ástarsambandi. Í þættinum ræða Sölvi og Þórhildur um sambönd, afbrýðissemi, samfélagsnorm og margt fleira.
Sep 19, 2022•20 min•Season 3Ep. 126
https://solvitryggva.is/ Jón Steinar Gunnlaugsson er hæstaréttarlögmaður og prófessor í lögfræði. Hann hefur vakið athygli í gegnum árin fyrir að segja skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Jón Steinar um samfélagsmál, fíkniefni, dómstóla og margt fleira....
Sep 15, 2022•20 min•Season 3Ep. 125
https://solvitryggva.is/ Arnþrúður Karlsdóttir hefur starfað við fjölmiðla í 40 ár. Hún var líka ein fyrsta lögreglukona Íslands, er með 3 háskólagráður og var afrekskona í íþróttum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn, allt frá stofnun Rásar 2 til áranna 20 á Útvarpi Sögu.
Sep 12, 2022•20 min•Season 3Ep. 124
https://solvitryggva.is/ Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og fleira. Í þættinum er farið yfir magnaða sögu Guðrúnar, heilsu, upplýsingar, fjölmiðla og fleira.
Sep 09, 2022•10 min•Season 3Ep. 123
https://solvitryggva.is/ Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og fleira. Í þættinum er farið yfir magnaða sögu Guðrúnar, heilsu, upplýsingar, fjölmiðla og fleira.
Sep 08, 2022•10 min•Season 3Ep. 122
https://solvitryggva.is/ Sigurður Þ. Ragnarsson hefur um árabil verið á skjám landsmanna og er löngu orðin goðsögn í íslenskum fjölmiðlaheimi. Í þættinum segir Siggi Stormur sögur af ferlinum í fjölmiðlum og stjórnmálum, ræðir opinskátt um skammdegisþunglyndi sem hann glímir við og baráttu sonar hans, sem hefur verið meira og minna í 9 mánuði á spítala.
Sep 06, 2022•5 min•Season 3Ep. 121