Síðasti þátturinn í áttundu seríu fjallar um fjárglæframanninn, spilafíkilinn, skipstjórann, landkönnuðinn, fangann, landnemann, löggæslumanninn, túlkinn, njósnarann, umbótamanninn, kaupmanninn og síðast en ekki sísts, æðsta ráðamann Íslands, Jörgen Jörgensen! Þótt aldrei hefði hann reyndar kallaði sig konung yfir einu eða neinu.
May 02, 2024•1 hr 16 min
Förum nánast til upphafs Íslandssögunnar að þessu sinni og kynnumst hinni víðförlu konu Guðríði Þorbjarnardóttur sem samkvæmt sögum ferðaðist um allan hinn þekkta heim víkingatímans; frá Vesturheimi til Rómar. Sem er áhugavert út af fyrir sig. Enn áhugaverðara er hvernig hún hefur verið notuð til landkynninga og í þjóðernislegum áróðri. Jafnvel hægt að færa rök fyrir því að hún hafi verið tekin í nútímalega dýrðlingatölu.
Apr 26, 2024•1 hr 24 min
Enn köfum við í spurningalista Þjóðminjasafnsins sem eru hafsjór af frábærum heimildum. Í þessum þætti dugði mér þó að styðjast aðeins við einn sögumann, engan annan en Magnús frá Gilsbakka í Borgarfirði. Í spurningalistanum "Hamfarir" skrásetti hann fjöldann allan af óveðrum á 20.öldinni sem all flestir Íslendingar fyrr og síðar, kannast við lýsingarnar á.. Það er komið að því að Sigrún móðgi eldri borgara af Boomer kynslóðinni.
Apr 19, 2024•1 hr 32 min•Season 8Ep. 8
Í miðjum Móðuharðindunum kom upp undarlegt mál á Suðurnesjum. Niðursetningurinn, og að okkar mati, breytingaskeiðskonan Elín tapaði lífi sínu við grunsamlegar aðstæður. Til að leysa úr málinu voru misgáfulegir menn sem gátu alls ekki orðið sammála um eitt eða neitt, enda blandaðir inn í klassíska, íslenska embættismannaflækju. Og hverjir liðu fyrir þá flækju aðrir en almúginn?
Apr 12, 2024•1 hr 1 min
Í sendnum fjörum Suðurlands má finna margar dularfullar sögur af yfirnáttúrulegum fótsporum og fyrirbærum. Þar fyrir utan býður þátturinn upp á heilmikinn haturspóst. Ekki aðeins vegna landafræði, heldur vegna mögulegra rangfærslna um vita og brýr landsins, að ógleymdri blessaðri málfræðinni. Það er af nógu að taka!
Apr 04, 2024•1 hr 11 min
Erfiðar konur hafa löngum þótt óþægilegar og þá getur verið gott að saka þær um nornaskap. Svo var um Ingibjörgu nokkra Jónsdóttur sem var uppi á hinni stórhættulegu 17. öld. Eftir að maður hennar hafði verið ásakaður um galdra, fluttist galdraorðið yfir á hana og spunnust um Imbu ótrúlegust þjóðsögur á meðan hún lifði.
Mar 29, 2024•1 hr 10 min
Uppboð voru sorgleg og undarleg "skemmtun" í íslensku samfélagi áður fyrr. Við kíkjum á eitt þekkt uppboð ef svo má segja, af Kambi á Ströndum. Sem er ekki síst áhugavert vegna þess hversu vandræðalega stutt er síðan það gerðist. Gott er að vara við andkapítalísku reiðiranti þáttarstýru í lok þáttar. Gæti farið fyrir brjóstið á einhverjum hreintrúarsinna. Ég lofa þó hvorki bót né betrun á því sviði.
Mar 21, 2024•1 hr 1 min
Þessi er hálfgerður spin off þáttur af gamla Höllu og Eyvindar þættinum okkar. Því þar brá fyrir aukapersónunni Arnesi Pálssyni sem mér fannst eiga skilið sinn eigin þátt. Til eru margar skemmtilegar þjóðsögur af honum, þótt hann virðist aðallega hafa verið einhver skítablesi.
Mar 15, 2024•1 hr 16 min•Season 8Ep. 3
Það er eins og allir í gamla daga hafi verið eins og ég; með myrkur í sálinni en bros á vör. Flestir þekkja sögurnar af Bakkabræðrum og við kynnum fleiri persónur til leiks. Eins og hjónin sem tímdu ekki að gefa vinnufólkinu að borða og maðurinn sem fæddi kálf.
Mar 08, 2024•1 hr
Velkomin í áttundu Myrku seríuna! Við byrjum á þætti sem var tekinn upp fyrir framan áhorfendur á Bara Fest, haustið 2023. Þess vegna er hljóðið ekki sem allra best en við vonum að fólk láti það ekki stoppa sig í að velta vöngum yfir búsetusvæðum drauga og hvort, og þá hvaða reglur gilda um lögheimili þeirra. Við komumst að því að partý getur verið svo gott að húsið fer af þakinu, læknis og lyfjaþjónusta var mun betri á Íslandi á 19.öld en núna, og að aldrei, undir nokkrum kringumstæðum skyldi k...
Mar 01, 2024•47 min•Season 8Ep. 1
Síðasti þátturinn í 7.þáttaröð fjallar um ógeðfelldar íslenskar barnagælur! Við Anna fengum liðsauka frá Gunnhildi Völu til að flytja nokkrar vel valdar vísur sem áður hrelldu börn og kannski fullorðna. Helstu persónur og leikendur sem hægt er að nefna eru krummi, boli, Grýla og Leppalúði. Þátturinn var tekinn upp fyrir framan áhorfendur í Snorrastofu í Reykholti í Borgarfirði og styrktur af Menningarsjóði Borgarbyggðar. Það er vel við hæfi að stundum heyrist í prúðu ungbarni sem var sem betur f...
Aug 14, 2023•1 hr 12 min•Season 7Ep. 10
Við förum um víðan völl og snertum á meindýraplágu í Ástralíu, dónalegum Íslendingum, samstöðu með unglingum og handsnúnu mafíósatölvu Sigrúnar sem sannarlega er ekki 17 ára, heldur aðeins frá árinu 2017! Aðal umfjöllunarefnið er samt sem áður bandalag þriggja ungra Breiðdælinga á einhverjum versta tíma Íslandssögunnar, sem endaði sannarlega óheppilega.
Aug 06, 2023•1 hr 16 min•Season 7Ep. 9
Við höfum áður rætt álfa, margar tegundir drauga og hinar ýmsu kynjaskepnur úr íslenskum þjóðsögum en ekki mikið farið í sígildar tröllasögur. Sigrún segir nokkrar minna þekktar sögur af ýmsum toga þótt það sé almenn kvenkyns slagsíða á íslenskum tröllasögum þar sem tröllkarlar viðrast hafa dáið út mun fyrr en kvenkynið sem fól vissulega í sér áskorun fyrir þær sem eftir lifðu.
Jul 29, 2023•1 hr 1 min•Season 7Ep. 8
Hver kannast ekki við Gvendarbrunna hér og þar um landið? Þeir eru tilkomnir vegna blessunar Guðmundar Arasonar Hólabiskups, oftast kallaður Guðmundur góði. Hann spígsporaði um landið með staf og stólu og blessaði vatnsból, vegi og björg, með hundruði förukvenna og fátæklinga í eftirdragi. Hann var furðufugl, meinlætamaður sem sennilega hefði aldrei átt að komast í stjórnunarstöðu og var jafnvel kennt um að hafa tapað sjálfstæðinu fyrir Íslands hönd. Hann lenti í deilum við mann og annan og jók ...
Jul 21, 2023•1 hr 32 min
Í tilefni af 66. myrka þættinum langaði mig að ræða við ykkur um Satan! Úr varð einhver samtíningur um komu Satans inn í líf Íslendinga og hvernig hann hvarf þaðan aftur eftir nokkur hundruð góð ár. Við förum um víðan völl, langt aftur í tímann, til útlanda, í kirkjudanspartý, löngu dauður biskup auglýsir óvart bæði nammi og bjór og við komumst loksins að því hvaðan lúsmýið er komið!
Jul 01, 2023•1 hr 14 min
Í janúar árið 1903 strandaði þýskur síldarbátur við Ísland með 12 manna áhöfn, á Skeiðarársandi. Skipverjar lifðu strandið í rauninni af en eftirleikurinn er eins og besta Hollywood handrit. Fátt sem gleður Sigrúnu eins mikið og að detta niður á svona góða hrakningasögu sem hefur upp á allt að bjóða; vonlaust íslenskt vetrarveður, vonleysi, læknaleysi, rúm á sleðum, limlestingar og almennan hetjuskap.
Jun 30, 2023•57 min
Hver kannast ekki við að þurfa að verja búfé sitt fyrir tófubiti, sefa óvini sína eða vanta peninga? Hér er lausnin komin; allt um hvernig þú getur létt þér lífið með hinum ýmsa galdri og særingum.
Jun 23, 2023•1 hr 5 min
Litla krúttlega húsið sem nú hýsir kaffisölu Árbæjarsafnsins á sér áhugaverða, rómatíska en á köflum ógeðfellda sögu. Sigrún og Anna keyrðu alla leið í Stykkishólm til að ræða það mál á Narfeyrarstofu fyrir framan áhorfendur á myrkum dögum í vetur.
Jun 23, 2023•1 hr 4 min
Það gleður okkur alltaf að finna góðar sögur af áhugaverðum konum og ekki verra ef það er frá 15. öld, sem er tímabil sem við höfum ekki fjallað mikið um vegna heimildafátæktar frá þeim tíma. Sögurnar af hirðstjórafrúnni og skörungnum Ólöfu ríku á Skarði á Skarðsströnd eru því sennilega stórlega ýktar, en skemmtilegar engu að síður!
Jun 09, 2023•1 hr 16 min
Rétt fyrir aldamótin1900 kom til Íslands undarlegur förumaður sem kallaði sig barón. Hann skapaði ótal kjaftasögur og kenningar og hleypti ferskum vindum í landann. Við reynum að komast að því hvort maðurinn var snillingur eða bara tæpur á geði.
Jun 08, 2023•1 hr 8 min•Season 7Ep. 3
Loksins kemur að þessum þætti! Ekki aðeins síðasta þætti sjöttu séríu og síðasta þætti ársins, heldur hunskaðist Sigrún loksins til að taka þetta mál fyrir sem hefur lengi staðið til og verið óskað eftir. Tvo dauðföll verða í Rauðasandshreppi á Vestfjörðum og sveitin logar í kjaftasögum. Við vitnum hægri vinstri í frásögn Gunnars Gunnarssonar í bókinni Svartfugl, sem fer ágætlega eftir heimildum og er alveg eins góð útgáfa af atburðunum og hver önnur.
Dec 30, 2022•1 hr 24 min
Við höldum aftur til Danborg á Sri Lanka þar sem við skildum við Jón Ólafsson í síðasta þætti. Þar dvaldi hann í eitt ár og lenti í hinum ýmsu skemmtunum, uppákomum og hrakförum. Hann var þarna orðinn viðförlasti Íslendingur allra tíma og við fylgjum honum heim á leið aftur þar sem hann hafði safnað saman upplýsingum og sögum sem síðar varð að hinni 400 blaðsíðna ferðabók sem hér hefur verið vitnað í.
Dec 20, 2022•1 hr 18 min
Anna er enn að reyna að yfirtaka umræðurnar! Nú bættir hún við dagskrárliðnum "Anna les úr þjóðskránni" sem á eflaust eftir að slá í gegn í Austur Indíum, en þangað er ferðinni einmitt heitið í þætti dagsins! Hver man ekki eftir viðar og tekk búðinni Jóni Indíafara? Nefnd eftir Jóni Ólafssyni sem lengi vel var víðförlasti Íslendingurinn. Hann skrifaði 400 blaðsíðna reisubók sem ég þvældi mér í gegnum og efnið er svo mikið að við komumst ekki yfir það í einum þætti.
Dec 08, 2022•1 hr 13 min•Season 6Ep. 8
Ósvífna Anna reynir að stela þætti dagsins með tali um Disneymyndir, áramótaskaup og Eyjólf bróður sinn! Þegar ég loksins kemst að, segi ég ykkur frá Eyjólfi sem var myrtur í Reykjavík, árið 1913. Ekki bróðir Önnu samt, hann var hvorki fæddur, né myrtur á þessum tíma og er að ég held enn á lífi. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma enda íbúar smábæjarins Reykjavíkur ekki vanir morðmálum. Æsifréttasnepillinn Morgunblaðið kemur líka sterkt inn sem sögupersóna í þessu máli.
Dec 08, 2022•59 min
Þótt við hættum að brenna grunað galdrafólk á báli, var ekki þar með sagt að við hættum að segja af þeim sögur eða finnast galdrar spennandi. Síður en svo! Á 18. öld náðu sögusagnir af galdrafólki hámarki og þar af er sennilega frægastur Loftur nokkur, kenndur við galdra. Við heyrum söguna af honum og hvort einhver fótur hafi verið fyrir henni yfirleitt.
Dec 01, 2022•52 min
Við höldum áfram að segja sögur af fólki í Árnessýslu í upphafi 19. aldar. Þá riðu ekki kannski hetjur um héruð, skulum frekar kalla þá hraustmenni. Þar ber hæst heljarmennið Sigurð Gottsvinsson sem hefði vissulega getað nýtt hina miklu krafta sína til betri hluta en hann gerði. Ránið á Kambi var á sínum tíma stærsta sakamál sem komið hafði upp á Íslandi og í það flæktist margt fólk, margir Jónar og Þuríður formaður!
Nov 23, 2022•1 hr 10 min•Season 6Ep. 5
Stígið um borð í sjálfstæðan fyrrihluta þáttar um mannlífið í Árnessýslu í byrjun 19. aldar. Hér stýrir Þuríður Einarsdóttir bátnum okkar og annarra á Höggstokkseyrarbakka, þegar það þótti ekkert tiltökumál þótt konur væru sjómenn. Þuríður var merkiskona sem kemur einnig við sögu í næsta þætti og því mikilvægt að kynnast henni áður en lengra er haldið.
Nov 16, 2022•55 min•Season 6Ep. 4
Við förum út á hálan jarðfræðiísinn hjá Eyjafjallajökli og Grímsvötnum í dag. Hamfarir eru ekki bara lengst í sögulegri fortíð okkar heldur eigum við fjöldan allan af virkum eldstöðvum sem minna sífellt á sig og halda okkur á tánum. Sigrún er óvenju málhölt og treg í þessum þætti enda er hún ekki með nein próf á tölur og stærðir nema um sé að ræða prjónaskap.
Nov 10, 2022•1 hr 14 min•Season 6Ep. 3
Við eigum svo mörg skemmtileg og falleg orð í íslensku, eins og þessi tvö; tilberi og margýgja! Því miður vill svo til að þau lýsa mjög ógeðfelldum fyrirbærum úr íslenskum þjóðsögum, sem er einmitt það sem gerir þau stórkosleg. Eða allavega í okkar augum.
Nov 03, 2022•52 min
Í upphafi 6. seríu förum við í fjársjóðsleit! Því fyrir 400 árum strandaði glæsilegt hollenskt skip á Suðurlandi sem hvarf svo bara í sandinn og enginn lagði á minnið hvar það sást síðast. Um það hafa síðan spunnist sögur og vonir og þrár ævintýra og athafnamanna um að finna óskemmt skipið í sandinum, fullt af gersemum.
Oct 27, 2022•1 hr 14 min•Season 6Ep. 1