MS-kastið - podcast cover

MS-kastið

Þorsteinn Polat Árnason Sürmelipodcasters.spotify.com
MS-kastið er hlaðvarp um MS-sjúkdóminn og starfsemi MS-félagsins á Íslandi. Í hverjum þætti ræðum við við sérfræðinga, fagaðila, fólk með MS og hverja aðra sem geta veitt innsýn í viðfangsefni tengt sjúkdómnum, nýjustu rannsóknir, meðferðir, stuðning og hvað annað gagnlegt fyrir hlustendur. Ég hvet ykkur til að vera hluti af þessu samfélagi og deila þáttunum með þeim sem þið teljið að geti haft gagn og gaman að.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#3 Að gangast við stöðunni og finna nýjan farveg: Ella Björt taugasálfræðingur

Hversdagsleikinn getur oft verið yfirþyrmandi fyrir okkur með MS. Skipulag út í eitt, fundir fyrir og jafnvel eftir hádegi, afmæli í dag, ferming á morgun, ábyrgðarhlutverk gagnvert fjölskyldu, vinasambönd sem þarf að rækta og á sama tíma að reyna að öðlast innri ró. Að ná utan um allt þetta og vinna með er m.a. það sem felst í starfi taugasálfræðinga. Ella Björt taugasálfræðingur hjá taugasviði Reykjalundar fræðir okkur um hvernig taugasálfræðin snertir okkur með MS og hvað við getum gert til a...

Jun 24, 202541 min

#2 Eftir höfðinu dansa limirnir: Ólafur Árni Sveinsson, taugalæknir við LHS.

Sólin hátt á himni skein þennan síðasta dag aprílmánaðar. Ég sat fyrir utan MS-félagið og baðaði mig í sólargeislunum þegar Ólafur Árni kom gangandi frá Landspítalanum Fossvogi þar sem skrifstofa hans er. Þótt veðrið hafi verið gott fengum við okkur sæti inni í hljóðveri félagsins og spjölluðum um leið hans inn í taugalækningar, MS-sjúkdóminn almennt, nýjustu rannsóknir, meðferðarúrræði, kænsku, D-vítamín og fleira. Njótið vel. Þorsteinn Á. Sürmeli – thorsteinnsurmeli@gmail.com . Endilega sendið...

May 06, 202541 min

#1 Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS-félagsins

Ég settist niður með Hjördísi Ýrr formanni MS-félagsins og ræddi við hana um starf félagsins, stuðninginn sem boðið er upp á, ráðgjöf, fræðslu, vinnu þess í þágu félagsmenn gagnvart stjórnvöldum og yfirvöldum almennt og fleira. Við töluðum einnig um mikilvægi þess að efla MS-samfélagið hér á landi og hverju hægt er að áorka í krafti fjöldans. Endilega sendið mér ábendingar eða tillögur að efnistökum eða viðmælendum á thorsteinnsurmeli@gmail.com. Sérstakar þakkir: – Samfélagssjóður Landsbankans –...

Apr 02, 202531 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android