Mín skoðun - podcast cover

Mín skoðun

Valtýr Björnvaltyrbjorn.podbean.com
Mín skoðun með Valtý Birni
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

710.þáttur. Mín skoðun. 22122022

710.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag eru þrír viðmælendur. Kristinn Kærnested, Kristinn Hjartarson og svo Róbert Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ. Það er margt og mikið sem fjallað er um í dag og góða skemmtun og GLEÐILEG JÓL.

Dec 22, 202256 minEp. 710

709.þáttur. Mín skoðun. 21122022

709.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Svanvhíti Valtýsdóttur og við fjöllum um enska deildarbikarinn og svo kemur Svanhvít með sinn topp 10 lista yfir íþróttafólk ársins 2022 hér á landi. Hver tekur styttuna? Þá er Víðir Sigurðsson á línunni og við ræðum um bókina "Íslensk knattspyrna 2022" sem er stórkostleg rit sem hver og ein áhugamanneskja um fótbolta verður að eiga. Njótið.

Dec 21, 202256 minEp. 709

708.þáttur. Mín skoðun. 20122022

708.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er ég með til umfjöllunar ótrúlegt mál. Þannig er er mál með vexti að A-landsliðsfólk Íslands í karla-og kvennaflokki er þessa dagana að fá til sín rukkun vegna útsendinga Rúv frá undankeppni EM. Ég er með Jónu Margréti Arnarsdóttur landsliðskonu og Sigurbjörn Grétar Eggertsson formann Blaksambands Íslands í viðtali vegna þessa máls. Njótið.

Dec 20, 202240 minEp. 708

707.þáttur. Mín skoðun. 19122022

707.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Kristin Hjartarson. Við spjöllum um HM sem lauk í gær. Lið mótsins er valið, Messi og skikkjan, FIFA, og margt, margt fleira. Njótið.

Dec 19, 202248 minEp. 707

706.þáttur. Mín skoðun. 16122022

706.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera. Þrír viðmælendur. Kristinn Hjartarson, Kristinn Kærnested og Svanvhít Valtýsdóttir. Við ræðum um HM um helgina, verður Messi loksins heimsmeistari? Nær Marokkó þriðja sætinu? Hvað er að hjá KR í körfunni? Leyfiskerfi KSÍ er til umfjöllunar og annað innan KSÍ. Ómar Ingi og Gísli Þorgeir fara á kostum hjá Magdeburg og margt fleira. Njótið helgarinnar.

Dec 16, 20221 hr 15 minEp. 706

705.þáttur. Mín skoðun. 14122022

705.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í tveimur aðilum. Fyrst er það Svanvhít Valtýsd. og við tölum um leikinn á HM í gær og leikinn í kvöld. Við tölum einnig um leik Vals og Ystads í Evrópudeildinni og förum aðeins í fréttir og slúður og svo hringi ég í Kristin Hjartarson. Við tölum um Marokkó sem mætir Frakklandi á HM í kvöld. Kristinn er nefnilega ansi fróður um þá þjóð og kemur með eina sturlaða staðreynd um HM. Njótið.

Dec 14, 20221 hr 9 minEp. 705

704.þáttur. Mín skoðun. 13122022

704.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Kristinn Hjartarson víða við. Fyrri undanúrslitaleikur HM er í kvöld þegar Argentína og Króatía mætast. Messi-Modric. Valur mætir sænska liðinu Ystads í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Fréttir og slúður og svo íslenski fótboltinn. Njótið.

Dec 13, 20221 hr 12 minEp. 704

703.þáttur. Mín skoðun. 12122022

703.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að tala eftir helgina. Þýski handboltinn og íslenska landsliðið. HM í fótbolta á stóran sess en 8-liða úrslitin fóru fram um helgina. Ronaldo og Neymar eru farnir heim og undanúrslitin eru á morgun og á miðvikudag. Kristinn Hjartarson er á línunni og við spjöllum um þetta. Njótið.

Dec 12, 20221 hr 5 minEp. 703

702.þáttur. Mín skoðun. 09122022

702.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag eru tveir viðmælendur. Sá fyrri er Gísli Þorgeir Kristjánsson handboltasnillingur sem farið hefur á kostum með Magdeburg í Þýskalandi. Við tölum um hann og lífið, HM í handbolta, væntingar og svo miklu meira. Seinni viðmælandinn er Böddi Bergs. Við tölum um HM í fótbolta og Böddi spáir í leikina í 8-liða úrslitunum. Við tölum einnig um Val í handbolta og landsliðið í handbolta og margt, margt fleira. Njótið helgarinnar.

Dec 09, 20221 hr 9 minEp. 702

701.þáttur. Mín skoðun. 07122022

701.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Kristinn Hjartarson um HM í fótbolta. Ronaldo er tekinn fyrir og leikir gærkvöldsins. 8-liða úrslitin er til umræðu og margt fleira. Valsmenn gerðu jafntefli í gær í Evrópudeildinni í handbolta. Þetta og margt fleira í dag. Njótið.

Dec 07, 202251 minEp. 701

700.þáttur. Mín skoðun. 06122022

700.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nýr aðili kynntur til leiks. Svanhvít Valtýsdóttir er í spjalli í dag. Við tölum um HM, leiki gærkvöldsins og leiki kvöldsins. Handboltinn og körfuboltinn hér innanlands, hvað er í gangi hjá KR í körfunni? Valur er að spila í Evrópudeildinni í dag, við förum í fréttir dagsins og slúðrið er á sínum stað. Þetta og eitthvað fleira. Njótið.

Dec 06, 202240 minEp. 700

699.þáttur. Mín skoðun. 05122022

699.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nýr maður kynntur til leiks, Kristinn Hjartarson. Við förum yfir HM leiki helgarinnar og í kvöld og tökum einnig fyrir að dómarar vilja ekki dæma leiki á fótbolta.net mótinu í ár. Þá er óvænt uppákoma í byrjun þáttar. Njótið.

Dec 05, 202245 minEp. 699

698.þáttur. Mín skoðun. 02122022

698.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Kristinn Kærnested um ýmislegt. HM í Katar en riðlakeppninni lýkur í dag og 16-liða úrslitin byrja á morgun. KR er í næstneðsta sæti Subway-deildar karla og við tölum um það. Það er allt í steik hjá Juventus og væntanlega annað Calciopoli mál á leiðinni. Þetta og margt fleira. Njótið helgarinnar.

Dec 02, 202237 minEp. 698

697.þáttur. Mín skoðun. 01122022

697.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er tímamótaþáttur þar sem Þórhallur Dan kveður en hann ætlar að taka sér hvíld. Við ræðum í dag um HM í Katar, Geir Þorsteinsson sem er hættur hjá ÍA, leikmannamál hér innanlands og svo margt fleira. Njótið.

Dec 01, 202239 minEp. 697

696.þáttur. Mín skoðun. 30112022

696.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum við Þórhallur Dan um víðan völl. HM er mikið til umræðu og við tölum einnig um KSÍ og málefni tengd þeim. Valsmenn voru í eldlínunni í gær í evrópskum handbolta og margt margt fleira er til umfjöllunnar. Njótið.

Nov 30, 202237 minEp. 696

695.þáttur. Mín skoðun. 28112022

695.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Þórhallur Dan víða við. HM í fótobolta er til umræðu, væntanlegir kaupendur á Liverpool, KSÍ og Sádí Arabíu-málið, íslenska kvennalandsliðið í körfubolta og margt, margt fleira. Njótið.

Nov 28, 202233 minEp. 695

694.þáttur. Mín skoðun. 25112022

694.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag á svörtum föstudegi förum ég og Þórhallur Dan yfir það helsta í sportinu. HM, FIFA, landsliðið okkar í fótbolta karla og körfubolta kvenna. Hverjir vilja kaupa Man.Utd.? Hvaða lið eru best á HM og margt margt fleira. Njótið helgarinnar.

Nov 25, 202242 minEp. 694

693.þáttur. Mín skoðun. 23112022

693.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum við Þórhallur Dan um víðan völl. FIFA er mikið í umræðunni er varðar HM og fleira, Valur og Flensburg mættust í gær í Evrópudeildinni í handbolta, Ronaldo, Man.Utd. er til sölu, Guardiola, KSÍ og formaður KSÍ og eitthvað fleira. Njótið.

Nov 23, 202233 minEp. 693

692.þáttur. Mín skoðun. 21112022

692.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum við Þórhallur Dan um víðan völl. Þórir Hergeirsson og EM kvenna, körfuboltinn hér heima og KR, FIFA, íslenska karlalandsliðið í fótbolta og margt fleira. Njótið.

Nov 21, 202249 minEp. 692

691.þáttur. Mín skoðun. 18112022

691.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag tölum við Þórhallur Dan um HM í Katar og spillinguna í kringum allt þetta mót. Við ræðum um pistil Sigurðar G.Guðjónssonar um Rúv, KSÍ og HM í Katar. Við tölum einnig um karlalandsliðið í fótbolta sem mætir Lettlandi á morgun í Baltic Cup og eitthvað fleira. Njótið helgarinnar.

Nov 18, 202242 minEp. 691

690.þáttur. Mín skoðun. 16112022

690.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um landsliðið okkar í fótbolta karla sem mætir Litháen í dag. Pólitík fléttast inní þetta og við tölum um HM og Katar, slúður og fleira. Njótið.

Nov 16, 202226 minEp. 690

689.þáttur. Mín skoðun. 14112022

689.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Það er af ýmsu að taka hjá mér og Þórhalli Dan í þætti dagsins. Enski boltinn, íslenska karlalandsliðið í fótbolta, íslenska karlalandsliðið í körfubolta, Ronaldo, Mourinho, Matthías Vilhjálmsson og margt fleira. Njótið dagsins.

Nov 14, 202234 minEp. 689

688.þáttur. Mín skoðun. 11112022

688.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera. Við Þórhallur Dan ræðum um körfuboltann í kvöld, Ísland-Georgia, enska boltann, FIFA og spillinguna þar og svo viðurkenningar á vegum KSÍ. Þar erum við með reglugerðina. Handboltinn í Þýskalandi og margt fleira. Þá er Hannes S.Jónsson formaður KKÍ á línunni en íslenska karlalandsliðið í körfubolta getur í kvöld nánast tryggt sig í úrslitakeppni HM og ég spyr Hannes um þjóðarhöllina. Njótið helgarinnar og takk fyrir að hlusta.

Nov 11, 202256 minEp. 688

687.þáttur. Mín skoðun. 10112022

687.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um landsliðsvalið á karlaliðinu í fótbolta en Ísland tekur þátt í Baltic Cup síðar í þessum mánuði. Við tölum einnig um evrópuboltann og þar kemur Mourinho við sögu ásamt fleiru. Þetta og svo margt fleira í þætti dagsins. Njótið.

Nov 10, 202232 minEp. 687

686.þáttur. Mín skoðun. 08112022

686.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan höldum áfram að ræða um viðurkenningar á vegum KSÍ sem hafa verið til umræðu undanfarna daga. ÞAð var dregið í meistaradeildina og evrópudeildina í gær og við ræðum það aðeins og Heimir Guðjóns verður næsti þjálfari FH. Þetta og eitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið.

Nov 08, 202242 minEp. 686

685.þáttur. Mín skoðun. 07112022

685.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag eæðum við Þórhallur Dan um enska boltann um helgina. Við tölum einnig ítarlega um KSÍ og jafnrétti og margt fleira þar á bæ. KR kemur við sögu og margt fleira. Njótið.

Nov 07, 202233 minEp. 685

684.þáttur. Mín skoðun. 04112022

684.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Kristinn Kærnested víða við í spjalli okkar. Evrópuboltinn, Subway deildin, enski boltinn um helgina og ítalski boltinn. Pigue er að hætta með Barcelona og svo tölum við um landsleik Íslands við Sádí Arabíu. Afhverju erum við að spila við þessa þjóð? Þetta og margt fleira í þætti dagsins. Njótið helgarinnar.

Nov 04, 202242 minEp. 684

683.þáttur. Mín skoðun. 02112022

683.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Þórhallur Dan um meistaradeildina í gær og í kvöld og spyrjum, hvort Ísland á að spila við Sádí Arabíu? Arnór Snær Óskarsson handboltakappi í Val fór á kostum í gær þegar Valur vann sinn annan leik í evrópudeildinni. Arnór Snær er á línunni frá Spáni. Njótið.

Nov 02, 202241 minEp. 683

682.þáttur. Mín skoðun. 01112022

682.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag tek ég viðtal við tvo kappa. Óskar Bjarni Óskarsson aðstoðarþjálfari karlaliðs Vals í handbolta er á línunni frá Spáni en í kvöld mætir Valur liði Benidorm í evrópudeildinni. Kristinn Kærnested er svo á línunni og við ræðum um Bestu deildina í sumar; vonbrigði, spútniklið, besti leikmaður, efnilegasti og margt fleira. Við ræðum einnig um meistaradeildina sem er í kvöld. Njótið.

Nov 01, 202246 minEp. 682

681.þáttur. Mín skoðun. 31102022

681.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er uppgjör hjá mér og Þórhalli Dan í Bestu deild karla. Bestu leikmenn, efnilegustu og við förum einnig í hvernig spár manna voru fyrir leiktíðina. Úrslit í stóru tippkeppninni. Við tölum aðeins um enska boltann og eitthvað fleira. Njótið.

Oct 31, 202252 minEp. 681
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android