212.þáttur. Mikael Nikulásson (Mikki) var í spjalli um landsliðsþjálfaramál kvenna og karla og við fórum einnig yfir riðil Íslands á HM. Þórhallur Dan var svo í viðtali þar sem við töluðum meðal annars um riðil Íslands, landsliðsþjálfaramál kvenna og Tóti spáir svo í helstu leiki kvöldsins í meistaradeildinni. Njótið
Dec 08, 2020•1 hr•Ep. 210
211.þáttur. Í dag er afmælisdagur Óla Stefáns Flóventssonar og því ber að fagna. Ég hringdi í hann og talaði um "fatigue" landslið kvenna og fleira. Þá hringdi ég í Þórhall Dan og umræðuefnið var landsliðsþjálfaramál kvenna og fleira því tengt. Njótið
Dec 07, 2020•1 hr•Ep. 209
210.þáttur. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir það helsta í sportinu. Töluðum um Lar Lagerbäck sem hugsanlegan næsta landsliðsþjálfara. Fórum yfir leikina í gær. Töluðum um verðandi fjölmiðlafrumvarp og spáðum í leiki helgarinnar. Þetta og margt fleira í spjalli okkar í dag. Njótið helgarinnar.
Dec 04, 2020•1 hr•Ep. 208
209.þáttur. Í dag er alþjóðadagur fatlaðra og að því tilefni hringdi ég í Ólaf Magnússon framkvæmdastjóra Íþróttasambands fatlaðra og við fórum yfir stöðuna hjá fötluðu íþróttafólki. Þá hringdi ég í Þórhall Dan sem er hættur að tala um Fred hjá Man.Utd. hahaha. Ég og Tóti fórum yfir víðan völl í dag.
Dec 03, 2020•1 hr•Ep. 207
208.þáttur. Ég og Þórhallur Dan tókum umræðuna um íslenska kvennalandsliðið, rýndum til gagns. Við ræddum líka um afhverju handbolti og körfubolti eru enn í frosti hér á landi og fórum svo yfir meistaradeildina í fótbolta. Njótið
Dec 02, 2020•1 hr•Ep. 206
207.þáttur. Ásthildur Helgadóttir fyrrum landsliðsdrottning er á línunni vegna landsleiks Ungverjalands og Íslands í dag. Við förum einnig inná fleiri hluti, svosem að hún er komin með nýtt starf og Ásthildur svarar spurningunni, hvort hún vilji verða landsliðsþjálfari. Þórhallur Dan er svo í góðu spjalli þar sem við förum yfir gang mála í enska boltanum, Meistaradeildinni og fleira til. Áfram Ísland
Dec 01, 2020•1 hr•Ep. 205
206.þáttur. Ég hringdi í Þórhall Dan og við fórum yfir víðan völl. Körfubolti og fótbolti, höfumeiðsli, ruglið í VAR og fleira til.
Nov 30, 2020•1 hr•Ep. 204
205.þáttur. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ er á línunni frá Bratislava og einnig Baldur Þór Ragnarsson einn af þjálfurum íslenska karlalandsliðsins. Baldur er nokkuð bjartsýnn fyrir leikinn gegn Kósóvó á morgun. Þá er Þórhallur Dan í viðtali og við förum ítarlega yfir leik íslenska kvennlandsliðsins í gær þar sem Ísland vann Slóvakíu í undankeppni EM. Við förum einnig yfir Evrópudeildina, enska boltann og þann þýska og fleira til.
Nov 27, 2020•1 hr 1 min•Ep. 203
204.þáttur. Páll Kristjánsson formaður knd.KR er á línunni um synjun aga-og úrskurðarnefndar KSÍ á kærumáli KR. Ég hringi í landsliðsrútu íslenska karlalandsliðsins í körfubolta sem mætir Luxemburg í dag. Þar eru í viðtali, Hannes S. Jónsson formaður KKÍ, Tryggvi Snær Hlinason, Jón Axel Guðmundsson og Ragnar Nathanaelsson. Þá er Þórhallur Dan á línunni um Meistaradeildina og Evrópudeildina og hann svarar því hvort Maradona sé sá besti sem uppi hefur verið en Maradona lést í gær.
Nov 26, 2020•1 hr 2 min•Ep. 202
203.þáttur. Þórhallur Dan er á línunni um boltann í gær og fleira til og þá hringdi ég í Jóhann Pétursson formann Víkings frá Ólafsvík en þeir voru að ráða nýjan þjálfara.
Nov 25, 2020•55 min•Ep. 201
202.þáttur. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ er á línunni frá Bratislava þar sem íslenska landsliðið er við keppni. Hannes ræðir við mig um bubbluna, deilu FIBA og Euroleague og körfuboltann hér heima. Þá er Þórhallur Dan í spjalli um Meistaradeildina í fótbolta og fleira til.
Nov 24, 2020•1 hr•Ep. 200
201.þáttur. Ég og Þórhallur Dan ræddum um boltann í Evrópu og einnig um Zlatan. Tóti er farinn að fara með bænir um að Fred verði seldur frá Man.Utd. Þetta og margt fleira.
Nov 23, 2020•1 hr•Ep. 199
200.þáttur. Mikael Nikulásson (Mikki) var á línunni en hann er afmælisbarn dagsins. Mikki ræddi meðal annars við mig um landsliðið og einnig hver á að verða næsti landsliðsþjálfari. Þórhallur Dan var svo á línunni og spáði fyrir um leiki helgarinnar í enska boltanum og fleira. Góða helgi
Nov 20, 2020•1 hr•Ep. 198
199.þáttur. Guðjón Þórðarson fyrrum landsliðsþjálfari var á línunni og við ræddum landsleikinn í gær og Ísak Bergmann Jóhannesson sem kom inná í gær, aðeins 17 ára gamall. Þá var Þórhallur Dan á línunni og við fórum yfir A-landsleikinn, U21 árs landslið Íslands, leik Vals í Meistaradeilldinni í gær og dómgæslu.
Nov 19, 2020•1 hr 1 min•Ep. 197
198.þáttur. Guðjón Þórðarson fyrrum landsliðsþjálfari var á línunni vegna landsleiksins í kvöld og sagði mér frá skemmtilegri staðreynd varðandi leikinn. Þórhallur Dan spáði einnig í leikinn sem og leik Vals og Glasgow City í Meistaradeild kvenna í dag.
Nov 18, 2020•1 hr•Ep. 196
197.þáttur. Páll Kristjánsson formaður knd. KR er í viðtali vegna frávísunar KSÍ á máli KR. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við ræddum um þessa frávísun og margt annað tengt KSÍ og fleira.
Nov 17, 2020•1 hr•Ep. 195
196.þáttur. Þóhallur Dan Jóhannsson var í spjalli dagsins. Við fórum yfir landsliðið okkar í fótbolta og ræddum um næsta landsliðsþjálfara og svo einnig um slúður og margt fleira.
Nov 16, 2020•1 hr•Ep. 194
195.þáttur. Já við töpuðum fyrir ungverjum í gær og þannig er nú bara það. Guðjón Þórðarson fyrrum landsliðsþjálfari og þjálfari Víkings frá Ólafsvík er í viðtali um leikinn og Þórhallur Dan er ennig á línunni og við fórum að auki yfir U21 árs tapleikinn gegn Ítalíu. Góða helgi.
Nov 13, 2020•1 hr•Ep. 193
194.þáttur. Ísland mætir Ungverjalandi í kvöld í úrslitaleik um hvort liðið fer í úrslitakeppni EM . Þá mætir U21 árs landslið Íslands liði Ítalíu í dag í riðlakeppni EM. Að þessu tilefni voru Arnar Grétarsson þjálfari KA og Þórhallur Dan Jóhannsson á línunni og spáðu í spilin. Áfram ÍSLAND
Nov 12, 2020•1 hr 2 min•Ep. 192
193.þáttur. Óli Stefán Flóventsson þjálfari er með athyglisverða hugleiðingu um Fatigue sem er andlegt og líkamlegt álag leikmanna. Við fórum einnig yfir hugleiðingar varðandi landsleikinn á morgun. Þórhallur Dan var að sjálfsögðu í spjalli og við ræddum meðal annars um formann enska knattspyrnusambandsins sem sagði af sér í gær.
Nov 11, 2020•1 hr•Ep. 191
192.þáttur. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ var á línunni frá Heraklion í Grikklandi þar sem íslenska kvennalandsliðið er að fara að leika í EM. Þórhallur Dan var einnig á línunni og við fórum yfir stöðu dagsins í boltanum.
Nov 10, 2020•57 min•Ep. 190
191.þáttur. Þórhallur Dan var á línunni og við ræddum um boltann um helgina, nýja þjálfara hjá FH, brotthvarf Óla Jó frá Stjörnunni, VAR, Njarðvík og margt fleira.
Nov 09, 2020•1 hr 3 min•Ep. 189
190.þáttur. Mikael Nikulásson (Mikki) var í góðu spjalli vegna brottreksturs síns frá Njarðvík. Hákon Daði Styrmisson handboltakappi var á línunni en hann sló í gegn í landsleiknum gegn Litháen. Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handbolta og leikmaður Lemgo greindist með Covid 19 og ég hringdi í kappann og athugaði með líðan hans. Þá heyrði ég í Jóhannesi Lange vegna þáttarins Handboltinn Okkar og að lokum heyrði ég að sjálfsögðu í Þórhalli Dan. og í lok spjallsins við Þórhall Dan datt inn stó...
Nov 06, 2020•1 hr 51 min•Ep. 188
189.þáttur Arnar Daði Arnarsson þjálfari Gróttu í handbolta gerði upp landsleikinn í gær þar sem Ísland vann Litháen með 16 marka mun. Þórhallur Dan var á línunni og við ræddum um margt og mikið, meðal annars um brottrekstur Mikhaels Nikulássonar sem þjálfara Njarðvíkur.
Nov 05, 2020•1 hr 3 min•Ep. 187
188.þáttur. Arnar Daði Arnarsson þjálfari Gróttu í handbolta er í viðtali um landsleikinn gegn Litháen í kvöld. Þórhallur Dan var á línunni um Meistaradeildina og svo innanlands slúður.
Nov 04, 2020•1 hr 2 min•Ep. 186
187.þáttur. Páll Kristjánsson formaður knattpsyrnudeildar KR er í góðu spjalli en KR skilar inn kæru til KSÍ í dag vegna ákvörðunar KSÍ um lok Íslandsmótsins. Þórhallur Dan var svo í góðu spjalli að vanda þar sem við fórum um víðan völl.
Nov 03, 2020•59 min•Ep. 185
186.þáttur. Gísli Gunnar Oddgeirsson framkvæmdastjóri Magna frá Grenivík er á línunni og tjáir sig um þá ákvörðun KSÍ að stöðva Íslandsmótið en Magni féll í 2.deild á markamun þar sem einu marki munaði á Magna og Þrótti R. Þá er Þórhallur Dan að sjálfsögðu í góðu spjalli.
Nov 02, 2020•1 hr 1 min•Ep. 184
185.þáttur. Rúnar Kristinsson þjálfari KR var á línunni og við ræddum um soninn sem lék í marki Arsenal í gær og fleira til. Þá kom Þórhallur Dan að vanda og við fórum yfir málin. Ræddum Covid 19 og fótbolta.
Oct 30, 2020•55 min•Ep. 183
184.þáttur. Þórhallur Dan kom og við ræddum og allt, Covid 19, fótbolta, handbolta og ég veit ekki hvað. Þá hringdum við í Binna Jó, (Brynjar Jóhannesson) og heyrðum í honum hljóðið en Binni er afar kátur eftir sigur Man.Utd. í gær og Fred er í sérstöku uppáhaldi hjá Binna.
Oct 29, 2020•55 min•Ep. 182
183.þáttur. Þórhallur Dan kom og við ræddum um Meistaradeildina, íslenska kvennnalandsliðið í fótbolta og fleira til. Tóti spáir Man.Utd. tapi í kvöld gegn Leipzig. Þá var Hannes S.Jónsson formaður KKÍ á línunni í athygisverðu spjalli.
Oct 28, 2020•1 hr 2 min•Ep. 181