152.þáttur. Þórhallur Dan kom í heimsókn og við ræddum um fótboltann hér innanlands sem og uttanlands. Fórum í mál eins og leikbönn og Gumma Ben málið þar sem Gummi sagði í gær að Arnar Grétarsson yrði ekki áfram með KA á næstu leiktíð. Ég heyrði í Sævari Péturssyni framkvæmdastjóra KA vegna þessarar umræðu. Þá var Maggi Bö( Magnús Valur Böðvarsson) sérfræðingur í neðri deildunum í fótbolta á línunni vegna úrslitakeppni 4.deildar.
Sep 15, 2020•1 hr 15 min•Ep. 150
151.þáttur. Þórhallur Dan kom í heimsón að vanda og við ræddum um íslenska boltann sem og þann enska. Þá heyrði ég í afmælisbarni dagsins sem er Guðjón Þórðarson þjálfari Víkings frá Ólafsvík og ég hringdi svo í Friðrik Inga Rúnarsson körfuboltasérfræðing og við spjölluðum um NBA úrslitakeppnina.
Sep 14, 2020•1 hr 24 min•Ep. 149
150.þáttur. Jóhannes Lange handboltasérfræðingur kom í heimsókn og við ræddum um Olísdeild kvenna ásamt því að hringja í Ágúst Jóhannsson þjálfara Vals. Þórhallur Dan var á línunni um íslenska boltann og þann enska. Rúnar Kristinsson þjálfari KR var í samtali sem var tekið upp í Morgunsporti SportFM og Friðrik Ingi var í spjalli um NBA körfboltann en það er oddaleikur í kvöld á milli Boston og Toronto í undanúrslitum austurstrandar. Takk fyrir vikuna og góða helgi.
Sep 11, 2020•1 hr 57 min•Ep. 148
149.þáttur. Það var mikið um að vera í dag og handboltinn var í fyrirrúmi þar sem Olísdeild karla hefst í kvöld. Aron Kristjánsson þjálfari Hauka, Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar, Patrekur Jóhannesson þjálfari Stjörnunnar og Róbert Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ voru í spjalli. Þá heyrði ég í Kjartani Atla Kjartanssyni NBA sérfræðingi en Boston og Toronto mætast í oddaleik um hvort liðið fer í úrslit austurstrandarinnar.
Sep 10, 2020•1 hr 31 min•Ep. 147
148.þáttur. Þórhallur Dan kom í heimsókn og við ræddum um landsleikinn í gær og fórum dálítið ítarlega yfir þann leik. Ásthildur Helgadóttir var á línunni um PepsiMax kvenna og spáði í leiki kvöldsins. Friðrik Ingi Rúnarsson NBA sérfræðingu var svo á línunni og það var talað um margt þar.
Sep 09, 2020•1 hr 30 min•Ep. 146
147.þáttur. Þórhallur Dan kom í heimsókn og við ræddum um Lengjudeildina, landsliðið, golf, Gareth Bale og fleira. Friðrik Ingi spáði í leiki kvöldsins í NBA en hann er á því að Lakers hafi betur gegn Houston.
Sep 08, 2020•1 hr 13 min•Ep. 145
146.þáttur. Þórhallur Dan kom í heimsókn og við ræddum landsleikina hjá A-landsliðinu og U21 árs liðinu sem og Lengjudeildina. Hrafn Kristjánsson körfuboltagúru var á línunni um NBA. Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ var í spjalli um KSÍ og tvo leikmenn enska landsliðsins sem brutu sóttvarnarreglur. Þá var Björgvin Karl Gunnarsson þjálfari kvennaliðs Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis í viðtali vegna óvenjulegs leiks sem hans lið lék um helgina.
Sep 07, 2020•1 hr 36 min•Ep. 144
145.þáttur. Magnús Þ:ór Jónsson formaður knd. ÍR var á línunni en hátíðarhöld eru á ÍR svæðinu í dag. Þórhallur Dan kom í heimsókn og ræddi við mig um U21 landslið Íslands og stillti upp sínu A landsliði og við ræddum aðeins um Messi. Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari kvennaliðs Selfoss var á línunni sem og Friðrik Ingi Rúnarsson NBA sérfræðingur.
Sep 04, 2020•1 hr 30 min•Ep. 143
144.þáttur. Haukur Magnsússon, Köttari númer 1 og fyrrum formaður Þróttar, er hættur og hann er ekki sáttur með hvernig honum var bolað út. Haukur mætti í viðtal og sagði sína sögu. Þórhallur Dan fór yfir gang mála í Lengjudeldinni og fleira til. Friðrik Ingi Rúnarsson var á línunni um úrslitakeppni NBA en Miami er óvænt komið í 2-0 gegn Milwaukee Bucks.
Sep 03, 2020•1 hr 38 min•Ep. 142
143.þáttur. Mikael Nikulásson (Mikki) þjálfari Njarðvíkur var í ítarlegu spjalli um 2.deildina, Lengjudeildina og landslið Íslands. Þá var NBA sérfræðingurinn Friðrik Ingi Rúnarsson á línunni um úrslitakeppni NBA.
Sep 02, 2020•1 hr 31 min•Ep. 141
142.þáttur. Þórhallur Dan kom í hljóðver þar sem farið var í mál U21 árs landsliðsins, fjölmiðlastyrk ríkisins og fleira. Marteinn Ægisson formaður Þróttar Vogum var á línunni. Jóhannes Lange var í viðtali um handboltann hér á landi og körfboltasérfræðingurinn Kjartan Atli Kjartansson spáði í spilin í NBA úrslitakeppninni.
Sep 01, 2020•1 hr 36 min•Ep. 140
141.þáttur. Jón Páll Pálmason fyrrum þjálfari Víkings frá Ólafsvík mætti í hljóðver og tjáði sig um brotthvart sitt frá félaginu en starfslokasamningur hefur enn ekki verið gerður. Þórhallur Dan kom í heimsókn og fékk sér Cafe Latte með mér og spjalli um boltann hér heima og fleira. Þá heyrði ég í herra NBA, Friðriki Inga Rúnarssyni.
Aug 31, 2020•1 hr 43 min•Ep. 139
140.þáttur. AFreksíþróttafólkið, Hilmar Örn Jónsson og Vigdís Jónsdóttir geta ekki hætt að setja íslandsmet í sleggjukasti og þau komu í gott spjall í hljóðver í dag. Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari karla í fótbolta var á línunni en hópurinn sem mætir Englandi og Belgíu var valinn í dag. Þórhallur Dan var í spjalli um boltann hér heima og erlendis og Tóti hafði ýmislegt að segja um valið á landsliðinu sem og U21. Þá heyrði ég í Kristínu Ýr um PepsiMax deild kvenna en hún er ótrúleg...
Aug 28, 2020•1 hr 37 min•Ep. 138
139.þáttur. Þórhallur Dan var í símanum um PepsiMax karla og við fórum einnig enska boltann og fleira. Haraldur Haraldsson frmakvæmdastjóri Víkings var á vellinum í Ljubliana þar sem Víkingur var í evrópukeppninni og ég heyrði einnig í Viðar Halldórssyni formanni FH sem var á leik FH og Dunajska Streda í evrópukeppninni.
Aug 27, 2020•55 min•Ep. 137
138.þáttur. Páll Kristjánsson formaður KR tjáir sig um pistil Guðna Bergssonar formanns KSÍ. Þórhallur Dan er á línunni um boltann hér heima og erlendis og þá hringdi ég í Friðrik Inga Rúnarsson körfuboltagúru um NBA úrslitakeppnina.
Aug 26, 2020•1 hr 36 min•Ep. 136
137.þáttur. Þórhallur Dan í spjalli um Pepsi Max og segir einnig skemmtilega sögu af sjálfum sér og Garðari Erni Hinrikssyni. Alfreð ELías Jóhannsson þjálfari Selfoss er kátur eftir sigur á blikum og er í viðtali. Gisli Þorgeir Kristjánsson og Elliði SNær Viðarsson eru í spjalli í handboltanum okkar með Jóa Langer og Andra Snæ´. Þá er Friðrik Ingi Rúnarsson sá mikli viskubrunnur í viðtali um NBA.
Aug 25, 2020•1 hr 53 min•Ep. 135
Kristín Ýr Bjarnadóttir var í góðu sðjalli um PepsiMaxdeild kvenna. Þórhallur Dan, sá mikli spámaður, var á línunni um erlendan fótbolta sem og íslenskan. Þá var Magnús Þórir Matthíasson leikimaður Kórdrengja í spjalli sem var einnig í morgunþættinum á SportFM 102.5 en Magnús (vítabani) er öllu þekktari fyrir að skora mörk eða leggja upp heldur en verja vítaspyrnur. Mín skoðun alla virka daga á SportFM milli klukkan 16 og 18.
Aug 24, 2020•1 hr 17 min•Ep. 134
Róbert Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ var á línunni vegna HM 2021 og spurt er; fer keppnin fram? Kjartan Atli Kjartansson körfuboltasérfræðingur fór yfir NBA úrslitakeppnina með mér og fleira og þá var Þórhallur Dan á línunni um evrópuboltann og þann íslenska. Njótið og góða helgi.
Aug 21, 2020•1 hr 23 min•Ep. 133
Ásthildur Helgadóttir fyrrum landsliðskona í fótbolta var í viðtali um Breiðabliksliðið í dag og fyrr og einnig um framkvæmdir á svæði Fram í Úlfársárdal. Þórhallur Dan var á línunni um evrópuboltann og þann íslenska. Friðrik Ingi Rúnarsson körfuboltasérfræðingur var svo í spjalli um NBA úrslitakeppnina. Allt þetta var í beinni á SportFM í dag milli klukkan 16 og 18.
Aug 20, 2020•1 hr 32 min•Ep. 132
Rúnar Kristinsson þjálfari KR og hans liðsmenn eru komnir í sóttkví eftir leik í Meistaradeildinni í gær. Rúnar var í viðtali vegna þessa. Kjartan Atli Kjartansson körfuboltasérfræðingur var í viðtali um NBA úrslitakeppnina og Þórhallur Dan fór yfir gang mála í Meistaradeildinni og íslenska fótboltann. Þetta var allt í beinni á SportFM 102.5 milli klukkan 16 og 18 í dag.
Aug 19, 2020•1 hr 29 min•Ep. 131
Þórhallur Dan talaði við mig um evrópuboltann og þann íslenska. Friðrik Ingi Rúnarsson körfuboltaþjálfari og sérfræðingur var á línunni vegna NBA. Jóhannes Langer kom í spjall útaf hanboltanum hér heima og við hringdum í formann handknattleiksdeildar Vals, Gísla Gunnlaugsson en allar líkur eru á að Valur dragi lið sitt úr evrópukeppninni. Þá heyrði ég að lokum í Jónasi Kiristinssyni framkvmdastjóra KR en þeir eru í Glasgow í forkeppni Meistaradeildarinnar. Allt þetta var í beinni á SportFM 102.5...
Aug 18, 2020•1 hr 33 min•Ep. 130
Þórhallur Dan er í psjalli um evrópuboltann og þann íslenska. Þá var Róber Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ á línunni vegna Covid19 reglna í handboltanum og þá kom körfuboltasérfræðingurinn Kjartan Atli Kjartansson í heimsókn og við ræddum um NBA úrslitakeppnina og fórum aðeins í ítalska boltann.
Aug 17, 2020•1 hr 46 min•Ep. 129
Þórhallur Dan ræddi við mig um íslenska boltann sem og evrópuboltann. Þá var Kristín Ýr á línunni vegna PepsiMax deild kvenna og ég hringdi í Ólafsvík í Guðjón Þórðarson þjálfara.
Aug 14, 2020•1 hr 39 min•Ep. 128
Óli Stefán Flóventsson fyrrum þjálfari KA var í einkaviðtali hér hjá mér í dag á SportFM 102.5 (16.00-18.00) og tjáði sig um allt. Þá heyrði ég í Þórhalli Dan um evrópuboltann (Meistaradeildina) og fleira.
Aug 13, 2020•1 hr 40 min•Ep. 127
Logi Ólafsson annar þjálfara FH var á línunni í dag og þá var viðtal við Ray Anthony Jónsson þjálfara kvennaliðs Grindavíkur en Andri Steinn og Óskar Smári tóku viðtalið í Morgunsportinu á SportFM 1102.5 í dag. Þá heyrði ég í Hannesi S.Jónssyni formanni KKÍ en sambandið hefur blásið af deildarbikarinn og þá var Þórhallur Dan á línunni um evrópuboltann og slúður dagsins.
Aug 12, 2020•1 hr 17 min•Ep. 126
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings var á línunni í dag og einnig Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ. Þá heyrði ég í Þórhalli Dan um evrópuboltann og fleira og Rúnar Kristinsson var svo í viðtali í Morgunsportinu á SportFM 102.5 hjá Magga Bö og Andra Steini.
Aug 11, 2020•1 hr 31 min•Ep. 125
Valdimar Svavarsson formaður knd.FH var í spjalli útaf evrópukeppninni en FH fær heimaleik gegn liði frá Slóvakíu og ekki ljóst hvort leikurinn geti farið fram í Kaplakrika. Þórhallur Dan ræddi við mig um Evópuboltann og Íslandsmeistararnir í golfi, Bjarki Pétursson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir voru í viðtali.
Aug 10, 2020•1 hr 37 min•Ep. 124
Umræðuefni dagsins var höfnun heilbigðisyfirvalda á undanþágubeiðni KSÍ til keppni í á Íslandsmótinu. Þórhallur Dan, sérfræðingur þáttarins, kom í heimsókn og þá heyrði ég í Eysteini Pétri Lárussyni framkvæmdastjóra Breiðabliks, Viðari Halldórssyni formanni FH og Jónasi Kristinssyni framkvæmdastjóra KR um málið.
Aug 07, 2020•1 hr 43 min•Ep. 123
Gunnlaugur Jónsson nýráðinn þjálfari Álftaness var í viðtali í morgunþættinum á SportFM 102.5 og þá kom Þórhallur Dan í heimsókn opg ræddi við mig um Evrópudeildina og fleira. Þá heyrði ég í Jón Arnóri Stefánssyni körfuboltasnillingi sem er nýgenginn í raðir Valsmanna.
Aug 06, 2020•1 hr 11 min•Ep. 122
Haukur Hinriksson yfirlögfræðingur KSÍ var á línunni um agamál leikmanna og reglugerðir. Guðjón Þórðarson þjálfari Víkings frá Ólafsvík er í sóttkví líkt og allir leikmenn og aðstandendur liðsins. Guðjón var í viðtali. Jón Arnór Stefánsson er genginn til liðs við Val í körfuboltanum og Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals og Ágúst Björgvinsson aðst.þjálfari Vals voru á línunni. Þá heyrði ég í Þórhalli Dan um Evrópudeildina í fótbolta.
Aug 05, 2020•1 hr 24 min•Ep. 121