Litli mallakúturinn - podcast cover

Litli mallakúturinn

Gunnar Ásgeirssonwww.gunnsi.is
Litli mallakúturinn eru hlaðvarpsþættir í umsjón Gunnars Ásgeirssonar þar sem rætt er við fólk sem hefur gengist undir aðgerðir á maga vegna offitu (Hjáveita, ermi eða magaband) Vilt þú segja þína sögu í þættinum? Endilega hafðu samband á netfangið gunnsi@gunnsi.is
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#20 - Erla Gerður Sveinsdóttir - Sérfræðilæknir við meðferð offitu

Erla Gerður Sveinsdóttir er viðmælandi í þessum tuttugasta þætti. En hún hefur lengi brunnið fyrir málefnum um offitu og hefur meðal annars starfað í offituteyminu á Reykjalundi, var ein af stofnendum Heilsuborgar og nú síðustu ár hefur hún starfað hjá Mín besta heilsa. Umræðuefni þessa þáttar er meðal annars aðgerðirnar frá sjónarhóli læknis. Og svo ræðum við einnig um þessi lyf við offitu en ávísun þessara lyfja hefur stóraukist á síðustu árum.

May 28, 20241 hr 20 minSeason 1Ep. 20

#19 - Katrín Alexandra Helgudóttir - Hjáveita "Ég vaknaði og ég hef aldrei á ævinni upplifað annan eins sársauka"

Katrín Alexandra Helgudóttir (Kata) starfar sem sjúkraliði á bráðamóttökuni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Hún segir okkur frá hennar vegferð að betra lífi. Það var í apríl 2023 sem hún gekkst undir hjáveitu á Klíníkinni. Kata hefur verið opin með ferlið sitt og segir frá reynslu sinni og skrásetur ferlið á Instagram. En þar er hún undir notendanafninu @hjaveitu_lifid

May 22, 202442 minSeason 1Ep. 19

#18 Konráð Logi Fossdal - Mini-Hjáveita - "Ég fann það bara, ég gat ekkert hlaupið á eftir þeim"

Konráð Logi Fossdal er Akureyringur í húð og hár. Árið 2022 fór hann í mini-hjáveitu í gegnum klíníkina. Ákvörðunina tók hann eftir að hann eignaðist börn og sá fyrir sér að líkamlegt ástand þyrfti að vera betra til þess að geta sinnt og leikið við börnin. Í þættinum ræðum við einnig kæfisvefn en Konni greindist með eins alvarlegan kæfisvefn og hann getur orðið.

May 07, 202441 minSeason 1Ep. 18

#17 Rafn Heiðar Ingólfsson - Hjáveita - "Púkinn á öxlinni á mér sagði mér það að ef ég færi nú í þessa aðgerð að þá yrði nú lífið bara miklu betra"

Rafn Heiðar Ingólfsson, matreiðslumeistari, eða Rabbi eins og hann er gjarnan kallaður ólst upp á Fáskrúðsfirði hjá ungri einstæðri móður. Árið 2008 flutti hann til Danmerkur og var á mjög slæmum stað andlega og taldi ástæðuna fyrir þessari vanlíðan vera ofþyngdin og var viss um að þegar hann væri orðinn grannur yrði allt betra. Árið 2011 gekkst hann undir magahjáveitu í gegnum danska heilbrigðiskerfið. Rabbi segir okkur frá því hvernig það var að fara í gegnum ferlið í Danmörku og ræðir opinská...

Apr 30, 202448 minSeason 1Ep. 17

#16 Sólveig Sigurðardóttir - Hjáveita - "Þetta var sjokk þegar mér var sagt að þetta væri eini kosturinn fyrir mig"

Sólveig Sigurðardóttir hefur lengi talað fyrir heilbrigðum lífstíl á blogginu sínu Lífstíll Sólveigar . Hún ætlaði aldrei í efnaskiptaaðgerð en fyrir tveimur árum greindist hún með vélindasjúkdóminn Barretts sem leiddi til þess að hún gekkst undir hjáveituaðgerð í Malmö í ágúst 2023. Hún er formaður SFO (Samtök fólks með offitu og aðstandendur þeirra) og ræðum við bæði hennar reynslu af magahjáveitu sem og því hvernig stóð á því að til urðu sérstök samtök fólks með offitu.

Apr 23, 20241 hr 24 minSeason 1Ep. 16

#14 Jóhannes Geir Númason - Hjáveita - "...þú þarft að drífa þig að gera þetta. Þetta er það sem þú átt að gera."

Jóhannes Geir Númason er kjötiðnaðarmeistari sem vatt kvæði sínu í kross og gerðist grunnskólakennari. Hann hafði lengi haft fordóma fyrir því að fara í efnaskiptaaðgerð, taldi þetta auðveldu leiðina og hann gæti þetta alveg sjálfur. Árið 2019 sagði hann hingað og ekki lengra og fór í hjáveitu.

Apr 09, 20241 hr 21 minSeason 1Ep. 14

#13 Íris Hólm Jónsdóttir - Magaermi - "Það kom svona lowpoint hjá mér þegar ég braut klósettsetuna heima hjá mér"

Íris Hólm Jónsdóttir er söngkona úr Mosfellsbæ. En hún steig sín fyrstu skref í sjónvarpsþáttunum X-Factor og hefur síðan þá brallað ýmislegt. Sungið með Frostrósum, á jólatónleikum Siggu Beinteins, tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins svo eitthvað sé nefnt. Í júní 2021 gekkst Íris undir magaermi á Klíníkinni.

Apr 02, 202449 minSeason 1Ep. 13

#12 Andrea Ævarsdóttir - Mini-Hjáveita - "...og svo segir ein þeirra: 'Við eigum því miður ekkert í þinni stærð.' Ég var 16 ára!"

Andrea Ævarsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur og allskonar-nörd eins og hún segir sjálf. Hún hafði velt fyrir sér magahjáveitu í yfir 20 ár en taldi þetta ekki vera lausnina fyrir sig, var hrædd við svona aðgerð. Það er síðan í desember 2019 þegar hún stendur á stórum palli úti í Gvatemala að hún fær hugljómun: „Þú verður að fara í þessa aðgerð, þú ert ekki að ráða við þetta án aðstoðar“. Hún lendir á Íslandi 19. des og er floginn út til Eistlands í aðgerð 12. janúar. Andrea lítur björ...

Mar 26, 202455 minSeason 1Ep. 12

#11 Ásgerður Arnardóttir - Magaermi - "Ég ligg bara hérna ber á borðinu eins og Jesú með blóð í annan handlegginn og næringu í hinn."

„Ég ligg bara hérna ber á borðinu eins og Jesú með blóð í annan handlegginn og næringu í hinn. Og þá bara dett ég út aftur…“ Þetta er ekki venjubundin upplifun sem fólk sem gengst undir efnaskiptaaðgerðir verður fyrir á skurðstofunni en það var nú samt raunin í tilviki Ásgerðar Arnadóttur þegar hún fór á eigin vegum til Póllands í magaermi í febrúar árið 2023. Aðgerðin gekk ekki vel og missti hún t.a.m. miltað í aðgerðinni. Tveimur vikum eftir heimkomu til Íslands fór Ásgerður að veikjast. Ásger...

Mar 19, 202443 minSeason 1Ep. 11

#10 Hólmfríður Lovísudóttir - Mini-Hjáveita

Hólmfríður Lovísudóttir var í nóvember 2021 komin með fitulifur, of háan blóðþrýsting, sykursýki, liðverki og mikla mæði, þá orðin 150 kg þegar hún setti sig í samband við Aðalstein á Klíníkinni. Niðurstaðan var að hún fór í mini-hjáveitu í apríl árið 2022. Hólmfríður segir okkur sína sögu í þættinum.

Mar 12, 202446 minSeason 1Ep. 10

#9 Gíslunn Hilmarsdóttir - Hjáveita

Áföllin gera ekki boð á undan sér. Gíslunn Hilmarsdóttir varð fyrir þeirri lífsreynslu árið 2017 að lenda í alvarlegu bílslysi sem varð til þess að hreyfing var ekki eins auðveld og áður. Hún fór í prógramm hjá Erlu Gerði árið 2021 og var svo ári seinna mætt til Svíþjóðar í hjáveitu. Gíslunn segir sína sögu í þessum þætti.

Mar 05, 202434 minSeason 1Ep. 9

#7 Vordís Baldursdóttir - Hjáveita

Vordís Baldursdóttir ræðir um aðdraganda þess að hún fór í prógramm á Reykjalundi og síðan í aðgerð árið 2020 og hvernig lífið er í dag.

Feb 15, 20241 hr 6 minSeason 1Ep. 7

#6 María Friðriksdóttir Árdal - Hjáveita

María fór í hjáveitu í gegnum Erlu Gerði og Heilsuborg árið 2018. Síðan hefur hún misst um 100 kg og sér ekki eftir neinu. Þetta er sagan hennar Maríu.

Mar 28, 202242 minSeason 1Ep. 6

#5 Valdís Anna Jónsdóttir - Hjáveita

Valdís Anna Jónsdóttir fór í hjáveitu árið 2016 eftir undibúning á Kristnesi. Hún segir hér sögu sína og hvernig hefur gengið á þeim fimm árum síðan aðgerðin var gerð.

Mar 08, 202135 minSeason 1Ep. 5

#4 Olga Helgadóttir - Magaermi

Olga Helgadóttir fór í magaermi árið 2017 í gegnum einkastofu hér á landi. Hún ræðir sína reynslu, ástæðuna fyrir aðgerðinni og hvernig lífið er í dag.

Feb 26, 202145 minSeason 1Ep. 4

#3 Ólöf Öfjörð - Magaermi

Ólöf Öfjörð fór í magaermi í gegnum Reykjalund/Landspítalann árið 2019. Hér segir hún frá sinni reynslu og hvernig hefur gengið.

Feb 20, 202154 minSeason 1Ep. 3

#2 Fylgikvillar, fordómar og andleg líðan

Í þessum þætti ræði ég um þá fylgikvilla sem voru að plaga mig þegar ég var hvað þyngstur. Ég kem einnig inn á fitufordóma og andlega líðan er snýr að offituaðgerðum.

Jun 29, 202017 minSeason 1Ep. 2

#1 Mín saga og kynning á podcasti

Í þessum fyrsta þætti segi ég frá því sem framundan er í þessum hlaðvarpi og segi einnig mína sögu. En ég fór í magahjáveitu á Landspítalanum þann 30. apríl 2019

Jun 26, 202028 minSeason 1Ep. 1
Hosted on Buzzsprout
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android