Lifum lengur - podcast cover

Lifum lengur

Helga Arnardóttirsoundcloud.com
Hlaðvarpið Lifum lengur er sjálfstætt framhald af samnefndum sjónvarpsþáttum sem sýndir eru á Sjónvarpi Símans Premium. Þeir fjalla um lykilstoðir heilsu: næringu, hreyfingu, andlega heilsu og svefn. Í hlaðvarpinu Lifum lengur verður áfram fjallað um lykilstoðirnar með ítarlegri viðtölum við ýmsa sérfræðinga og einstaklinga sem vilja deila með okkur fróðleik um hvernig hægt er að viðhalda góðri heilsu. Allar ábendingar og hugmyndir um umfjöllunarefni eru vel þegnar og hægt er að senda þær á lifumlengur@gmail.com
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#14 Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona lokuð inni með fjölskyldunni í 2 mánuði vegna Covid-19 á Ítalíu

Ástandið á Ítalíu hefur verið skelfilegt vegna Covid-19 og hafa tæplega tuttugu og átta þúsund manns látist af völdum sjúkdómsins þegar þetta er skrifað. Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona hefur búið í Bra á Ítalíu, tæplega þrjátíu þúsund manna bæ um 50 km sunnan við Tórínó undanfarið ár ásamt manni sínum Svavari Halldórssyni og þremur börnum á aldrinum 8,12 og 14 ára. Fjölskyldan hefur verið lokuð inni vegna farsóttarinnar í tæpa tvo mánuði. Þau kæmust ekki heim í dag nema borga fyrir það verulega...

May 01, 202057 min

#13 Kvíðaástand vegna Covid-19 og ráð við kvíða.

Það versta sem við getum gert þegar okkur líður illa er að einangra okkur því grunnuppspretta öryggis mannskepnunnar er góð tengsl við annað fólk og við fjarlægjum okkur frá þessari grunnuppsprettu ef við einangrum okkur heima. Þetta segir Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur sem segir tækni og samfélagsmiðla geta gert öllum kleift að vera í góðu sambandi við sína nánustu. Hann gefur okkur góð ráð um hvernig við getum hugsað okkur út úr kvíðaástandi vegna yfirstandandi heimsfaraldurs eða annarra ...

Apr 26, 202022 min

#12 Leikkonur á sjötugsaldri gefa góð heilsuráð í sjálfskipaðri sóttkví.

Hvað gerir eldra fólk í sjálfskipaðri sóttkví til að halda sönsum og líkamlegri heilsu? Hvernig getur fólk varið tíma sínum sem hefur nóg af honum um þessar mundir og hvað er hægt að finna jákvætt við þetta ástand? Helga Arnardóttir ræðir við tvær leikkonur á sjötugaldri sem eru báðar í sjálfskipaðri sóttkví. Önnur þeirra er Margrét Ákadóttir móðir hennar sem heldur sig heima vegna undirliggjandi nýrnasjúkdóms og hin þeirra er Edda Björgvinsdóttir sem hefur einangrað sig vegna 97 ára gamals föðu...

Apr 23, 202056 min

#11 Börn og Covid-19. Hvernig bregðast börn við smiti?

Miklu hættulegra er fyrir ungabarn að smitast af RS vírus eða almennri inflúensu en kórónuvírusnum að mati Bryndísar Sigurðardóttur smitsjúkdómalæknis sem segir börn vera með öðruvísi viðtaka í slímhúðinni en fullorðnir eru með og því nái kórónuvírusinn í flestum tilfellum ekki bólfestu í líkama barna. Ungabörn og börn langt frameftir grunnskólaaldri virðast nær einkennalaus þótt þau greinist með Covid-19 smit. Helga Arnardóttir ræðir við Bryndísi um skýringar á því af hverju börn veikjast síður...

Apr 18, 202033 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android