Í ljósi krakkasögunnar - podcast cover

Í ljósi krakkasögunnar

RÚVwww.ruv.is
Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Fox systurnar

Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.

Jun 30, 202220 minEp. 21

H. C. Andersen

Í þessum þætti er sagt frá danska ævintýrahöfundinum Hans Christian Andersen sem fæddist í Óðinsvé á Fjóni árið 1805. Frá því að hann var barn var hann ákveðinn í að verða listamaður og fór sínar eigin leiðir þrátt fyrir ýmislegt mótlæti. Hann ólst upp í fátækt, pabbi hans var skósmiður og mamma hans ólæs þvottakona, að vísu hafa allt frá dögum H. C. Andersen verið orðrómar á kreiki um að hann skósmiðurinn og þvottakonan hafi ekki verið alvöru foreldrar hans heldur hafi hann verið launsonur sjál...

Jun 09, 202222 minEp. 19

Jenny Lind - sænski næturgalinn

Jenny Lind (1820-1897) var 9 ára þegar sönghæfileikar hennar voru uppgötvaðir fyrir tilviljun. Hún varð heimsfræg og varð þekkt sem sænski næturgalinn. Hún kom fram á tónleikum og skemmtunum um allan heim þar sem raddfegurð hennar var dásömuð, því miður var þetta fyrir tíma upptökutækninnar en ýmislegt var þó skrifað sem gerir okkur kleift að segja sögu hennar. Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir

Jun 02, 202220 minEp. 18

Tutankhamun

Tutankhamun var krýndur faraó yfir öllu Egyptalandi þegar hann var 8 eða 9 ára gamall og ríkti þangað til hann dó, aðeins 18 eða 19 ára. Þá var hann gerður að múmíu sem fannst árið 1922, rúmlega 3300 árum eftir að hann lést! Þetta er saga af fjársjóðsleit, múmíum og forn-egypskum guðum. Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir

May 19, 202220 minEp. 17

Egill Skallagrímsson

Þetta er sagan um Egil Skallagrímsson. Hann tilheyrir kynslóð fyrstu Íslendinganna. Saga hans er skrifuð í Egilssögu sem er ein sú elsta af Íslendingasögunum. Hún er spennandi, ævintýraleg, full af víkingum, bardögum, ferðalögum, göldrum...og ljóðum! Egill var erfitt barn sem hataði að tapa og reiddist fljótt. Hann var þriggja ára þegar hann laumaðist í partý sem hann mátti ekki fara í, sjö ára þegar hann lenti í slag og tólf ára þegar hann keppti við pabba sinn í íshokkí...með hræðilegum afleið...

Mar 24, 202221 minEp. 16

Baráttukrakkar

Þetta eru sögur af krökkum sem eru að breyta heiminum. Í dag. Núna. Þetta eru þau Malala Yousafzai frá Pakistan, stelpan sem lét ekki einu sinni byssukúlu í höfuðið stöðva sig í að sækja sér menntun og hvetja aðrar stelpur til að gera slíkt hið sama, Timoci Naulusala frá Fiji sem upplifir áhrif loftslagsbreytinga á heimkynni sín og berst fyrir aðgerðum sem skipta máli, Greta Thunberg frá Svíþjóð sem einnig berst fyrir umhverfið og þorir segja það sem segja þarf við fullorðna, forseta og annað va...

Mar 17, 202222 minEp. 15

Tilly Smith

Þetta er sagan af Tilly Smith, breskri stelpu sem breyttist í hetju á einu andartaki á annan í jólum árið 2004. Hún var stödd með fjölskyldu sinni á strönd í Taílandi þegar risavaxin skjálftaflóðbylgja skall á ströndinni og skildi eftir sig mikla eyðileggingu og dauða. Tilly tókst að bjarga fjölskyldunni sinni og öllum á hótelströndinni frá flóðbylgjunni, en hvernig? Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Mar 10, 202220 minEp. 14

Ida Lewis

Þetta er sagan af Idu Lewis, hugrökkustu stelpu Ameríku, eins og margir hafa kallað hana. Hún fæddist á nítjándu öld og bjó á eyju í Rhode Island í Bandaríkjunum þar sem pabbi hennar var vitavörður. Fjórtán ára var hún orðin þekkt sem besta sundkona svæðisins og var líka frábær í að róa árabát. Hún fylgdist vel með umferðinni í höfninni og var fyrst á staðinn ef einhver lenti í háska. Við heyrum af hennar frægustu björgunarafrekum þar sem hún náði, ein síns liðs, að bjarga ótalmörgum mannslífum ...

Mar 03, 202218 minEp. 13

Wolfgang Amadeus Mozart

Þetta er sagan af Wolfgang Amadeus Mozart, stráknum sem skrifaði nafn sitt rækilega á spjöld sögunnar þegar hann var krakki, sem eitt merkilegasta undrabarn tónlistarsögunnar og síðar meir sem fullorðið tónskáld. Það eru mjög góðar líkur á því að þú þekkir fleiri en eitt verk eftir Mozart, hafir jafnvel spilað eða sungið tónlist eftir hann eða sofnað við vögguvísu eftir hann þegar þú varst lítið barn. En vissir þú að Mozart var átta ára þegar hann samdi sína fyrstu sinfóníu? Umsjón og lestur: In...

Feb 24, 202221 minEp. 12

Iqbal Masih

Þetta er sagan af Iqbal Masih, pakistönskum dreng sem var þræll í teppaverksmiðju frá því hann var fjögurra ára þangað til hann flúði þaðan tíu ára. Hann gerðist svo aktívisti eða aðgerðarsinni gegn barnaþrælkun í Pakistan og um heim allan. Það er talið að hann hafi hjálpað um þrjú þúsund börnum í Pakistan að losna undan vinnuþrælkun. Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Athugið að efni þáttarins gæti vakið óhug og því er mælt með að foreldrar hlusti með börnum sínum.

Feb 17, 202221 minEp. 11

Dina Sanichar - hinn raunverulegi Móglí

Þetta er sagan af Dina Sanichar sem fannst í frumskógi í Indlandi þegar hann var sex eða sjö ára. Hann var villibarn en það er mannabarn sem hefur búið langt frá samfélagi manna í langan tíma, jafnvel frá því það fæddist. Villibörn hafa lært að komast af í óbyggðum og oftar en ekki alist upp meðal dýra, til dæmis úlfa, apa, hunda, bjarna eða jafnvel hænsna. Dina Sanichar ólst upp á meðal úlfa margir halda að persónan Móglí sé byggð á honum enda eru mikil líkindi með sögum þeirra. Umsjón og lestu...

Feb 10, 202220 minEp. 10

Anna Frank

Þetta er sagan af Önnu Frank, stelpunni sem neyddist til að fara í felur þegar stríð geisaði í heimalandi hennar. Í meira en tvö ár bjó fjölskylda Önnu í leyniíbúð bakvið bókaskáp á vinnustað pabba hennar. Þar skrifaði Anna í dagbók. Þessi dagbók var gefin út eftir að hún dó og er í dag frægasta dagbók allra tíma. Í þættinum heyrast brot úr Dagbók Anne Frank í þýðingu Ólafs Rafns Jónssonar. Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Feb 03, 202220 minEp. 9

Uppfinningakrakkar

Þetta eru sögur af krökkum sem hafa fundið upp magnaðar uppfinningar í gegnum aldirnar. Krakkar eru oft bestu uppfinningamennirnir því hafa svo öflugt ímyndunarafl, sköpunarkraft og hugrekki til að láta hugmyndina sína verða að veruleika. Aldrei láta neinn segja ykkur að krakkar geti ekki verið uppfinningamenn því í þessum þætti fáið þið að heyra af mörgum uppfinningum sem heimurinn og samfélag mannanna gæti varla verið án - sem krakkar fundu upp! Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Jan 27, 202220 minEp. 8

Puyi keisarastrákur

Þetta er sagan af Puyi, síðasta keisaranum í Kína sem var aðeins tveggja ára þegar hann var gerður að keisara. Hann var örugglega dekraðasta barn mannkynssögunnar en þurfti svo að afsala sér keisaraveldinu þegar hann var sex ára. Þá þurfti hann að læra að sjá um sig sjálfur...og muna að sturta niður sjálfur þegar hann var búinn á klósettinu. Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Jan 20, 202220 minEp. 7

Ruby Bridges

Þetta er sagan af Ruby Bridges, sex ára hugrakkri stelpu sem breytti heiminum. Hún varð fyrir fordómum þegar hún var fyrsta svarta barnið í suðurríkjum Bandaríkjanna til að ganga í skóla sem hafði áður bara verið fyrir hvít börn. Fullorðið fólk sem var svo blindað af fordómum og hatri ætlaði að banna henni að mæta í skólann. En hún lét það ekki stoppa sig! Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Jan 13, 202218 minEp. 6

Börnin í baráttunni við alnæmi

Þetta eru sögur tveggja stráka sem urðu óvænt andlit alnæmis í fjölmiðlum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Ryan White í Bandaríkjunum og Nkosi Johnson í Suður-Afríku. Þeir soguðust inn í atburðarás sem þeir höfðu enga stjórn á. Hvorugur þeirra fékk að mæta í skólann með jafnöldrum sínum eftir að það varð opinbert að þeir væru sýktir af HIV-veirunni. En hún smitast ekki milli fólks í hversdagslegum aðstæðum eins og við leik og nám í skóla. Hvers vegna var fólk þá svona hrætt við að umgang...

Jan 06, 202222 minEp. 5

Sacagawea

Þetta er sagan af Sacagaweu. Ungu frumbyggjastelpunni sem hjálpaði Lewis og Clark, bandarískum landkönnuðum, að ferðast um landið sem þeir höfðu nýlega keypt. En þeir áttu ekki landið, þetta var hennar land, hennar heimkynni og hún gerði sitt allra besta til að stuðla að friðsamlegum samskiptum aðkomumanna við sitt fólk, því það var mun betra en blóðsúthellingar, eyðilegging og stríð. Þetta gerði hún allt, sextán ára gömul með nýfætt barn sitt bundið við bakið á sér. Umsjón og lestur: Ingibjörg ...

Dec 30, 202122 minEp. 4

Börnin á Titanic II

Þetta er sagan af börnunum á Titanic, eða kannski frekar sögurnar, því það voru yfir hundrað börn um borð í þessu heimsfræga skipi sem átti ekki að geta sokkið - en gerði það samt. Síðari þáttur af tveimur. Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Athugið að efni þáttarins gæti vakið óhug og því er mælt með að foreldrar hlusti með börnum sínum.

Dec 16, 202123 minEp. 3

Börnin á Titanic I

Þetta er sagan af börnunum á Titanic, eða kannski frekar sögurnar, því það voru yfir hundrað börn um borð í þessu heimsfræga skipi sem átti ekki að geta sokkið - en gerði það samt. Fyrri þáttur af tveimur. Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Athugið að efni þáttarins gæti vakið óhug og því er mælt með að foreldrar hlusti með börnum sínum.

Dec 09, 202122 minEp. 2

Jóhanna af Örk

Þetta er sagan af Jóhönnu af Örk eða stúlkunni sem kölluð var Mærin frá Orléans. Hún var aðeins sautján ára þegar hún leiddi her konungs til sigurs í hundrað ára stríðinu í Frakklandi á fimmtándu öld. Í dag er Jóhanna goðsögn, þjóðhetja í Frakklandi og dýrlingur í kaþólskri trú því henni tókst að gera það það sem þótti vera óhugsandi! Umsjón og lestur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir. Athugið að efni þáttarins gæti vakið óhug og því er mælt með að foreldrar hlusti með börnum sínum.

Dec 02, 202121 minEp. 1
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android