Hjólafréttir - podcast cover

Hjólafréttir

Hjólafréttirhjolafrettir.is
Spjall um allt tengt hjólreiðum, en þó með fókus á keppnishjólreiðar hér heima og erlendis. - hjolafrettir.is
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#23 - Riftið, Grefillinn o.fl. með gestum

Spjallað við Arnþór Gústavsson um Cycling Westfjords og Riftið. Einnig kemur Andri Már í heimsókn og segir okkur frá Greflinum sem fer fram 20. ágúst.

Jul 30, 202254 min

#22 - Keppendur í Riftinu, landsliðsmálin og besta dagleið aldarinnar

Ellefta dagleið í Tour de France er líklega einhver sú albesta sem hjólreiðaáhugamenn hafa fengið að fylgjast með á þessari öld og jafnvel í lengri tíma. Hjólafréttir fara aðeins yfir stöðuna nú þegar keppnin er hálfnuð. Þá er staðan tekin á Riftinu, en búast má við yfir þúsund erlendum hjólurum til landsins vegna hennar í næstu viku. Að lokum ræðum við um landsliðsmálin sem eru heitt málefni að vanda. Erum við að senda á rétt mót?

Jul 14, 202244 minSeason 3Ep. 11

#21 - Tour de France upphitun, uppgjör eftir Íslandsmótið og Westfjords way challenge

Tour de France byrjar nú á föstudaginn. Hverjum þarf að fylgjast með, við hverju á að búast, hvernig lítur brautin út og hverjir enda í hvaða treyjum? Eiga Roglic og Vingegaard séns í Pogacar og af hverju fékk Cavendish ekki að koma með í ár til að reyna að brjóta metið hans Merckx. Þetta og miklu meira í þættinum í dag + uppgjör eftir Íslandsmótið á Mývatni.

Jun 29, 202245 minSeason 3Ep. 10

#20 - Decode við það að klára RAAM 2022

Þegar aðeins 240 km (af 4800) eru eftir af RAAM 2022 heyrðum við í Viðari Braga Þorsteinssyni, einum liðsmanna Decode XY, og heyrðum hvernig keppnin hefði gengið. Reyndar hafði þá nýlega verið keyrt á einn liðsmann Decode, en áverkar sem betur fer ekki mjög alvarlegir. Viðar fer yfir það fyrirkomulag sem liðið notast við, hvað hafi komið á óvart og ber setup Decode við Beamer liðið sem var fyrsta 8-manna liðið í ár á nýju meti.

Jun 24, 202214 minSeason 3Ep. 9

#19 - Við hverju má búast á Íslandsmótunum?

Íslandsmótin í tímatöku og götuhjólreiðum fara fram í vikunni fyrir norðan. Við förum aðeins yfir stöðuna og við hverju megi búast þar. Þá ræðum við um önnur helstu mál í hjólreiðum á síðustu dögum og sem eru framundan auk þess að tease-a aðeins fyrir TdF. Svo er Kwaremont spurningin á sínum stað.

Jun 21, 202239 minSeason 3Ep. 8

#18 - Bikarstigin, Jökulmílan, HFA stelpur, Þorsteinn sjóari og erlendu keppnirnar

Átjándi þáttur eftir stutta pásu. Við förum yfir það helsta sem hefur verið í gangi, það sem er framundan og skoðum aðeins nánar uppskeruna í síðustu götuhjólamótum. Einnig er staðan tekin á landsliðsmálum og Rúnar spurður um ástæður þess að hann sé að færa fókusinn úr TT í RR.

Jun 07, 202237 minSeason 3Ep. 7

#17 Hafsteinn Ægir og nýja Lauf hjólið

Hafsteinn Ægir Geirsson er margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum og hefur verið í fararbroddi í sportinu hér á landi síðustu tvo áratugi. Hann er jafnfram head mechanic hjá Lauf, en fyrirtækið kynnti nýtt hjól í vikunni, Seiglu. Hafsteinn hefur hjólað á því síðan í september og prófað það meira en nokkur annar. Hann fer yfir hvað er nýtt á þessu hjóli og þróun malarhjólreiða með tilliti til dekkjabreiddar og dempunar. Hafsteinn ræðir líka nýju flokkaskiptinguna og segir okkur stutt frá þátttök...

Apr 14, 202237 minSeason 3Ep. 6

#16 - Nýtt flokkakerfi - Með og á móti

Fyrir um viku síðan kynnti HRÍ tillögu stjórnar fyrir komandi Hjólreiðaþing um breytt fyrirkomulag flokkakerfisins. Í grunninn stjórn leggur til að slaufa masters flokkunum og hafa frekar getuskipt flokkakerfi A-B-C flokka. Bjarni Már Gylfason mætir í þáttinn til að ræða slíkar breytingar og hvaða þýðingu það hefði. Hverjir eru kostirnir og hverjir eru gallarnir?

Feb 21, 202254 minSeason 3Ep. 5

#15 - Ása Guðný ræðir um aðstöðumál og þjálfun

Við fengum góðan gest í settið í þetta skiptið, en hún Ása Guðný Ásgeirsdóttir, yfirþjálfari hjá HFR, kom og ræddi við okkur um stöðuna í þjálfunarmálum hjá yngri deildinni. Hvað dregur ungt fólk í sportið, hvernig erum við að standa okkur og hvað má gera betur. Auk þess ræðum við um aðstöðumál og hvernig hún sjái fyrir sér næstu skref í frekari uppbyggingu.

Feb 09, 202237 minSeason 3Ep. 4

#13 - Ný ofurhjólakeppni á Vestfjörðum og Cycling Westfjords verkefnið

Nýlega var kynnt til sögunnar ný ofurhjólakeppni á Vestfjörðum sem verður haldin í fyrsta skiptið í sumar. Við erum að tala um 930 km yfir fjóra hjóladag og fullt af hækkun. Bæði malbik og möl og allt yfir 210 km dagleiðir. Við ræðum við Halldóru Björk Norðdahl, sem er ein fjögurra sem stendur á bak við mótið og verkefnið Cycling Westfjords.

Jan 06, 202226 minSeason 3Ep. 2

#12 - Árið 2022 framundan

Hlaðvarpið snýr aftur eftir smá pásu. Í þættinum skoðum við aðeins við hverju megi búast á komandi keppnistímabili, hverjir hafa flutt sig milli liða og hverju það skipti, auk þess að skauta hratt yfir síðasta tímabil.

Jan 01, 202238 minSeason 3Ep. 1

#11 - Sögur frá Euro á Ítalíu og Worlds í Belgíu

Við heyrum í tveimur keppendum á Evrópumeistaramótinu og heimsmeistaramótinu. Við heyrum í Hafdísi Sigurðardóttur, einni af Akureyrardætrunum sem keppti í TT og RR á Euro á Ítalíu í síðustu viku og Bríeti Kristý Gunnarsdóttur sem keppti í vikunni á heimsmeistaramótinu í Flanders í tímatöku og mun á laugardaginn taka þátt í götuhjólreiðum. Þær gefa okkur innsýn inn í það að fara út í stórar keppnir sem þessar og beint í djúpu laugina, við fáum að heyra wattatölur og Bríet lýsir baráttu við hjólið...

Sep 24, 202131 minSeason 2Ep. 2

#10 - Valið á landsliðshópnum, markmiðin og afreksmál - Mikael Schou, afreksstjóri HRÍ

Framundan er stórhátíð fyrir íslenskt hjólreiðaáhugafólk. Tólf íslenskir keppendur taka þátt í Evrópumótinu í Trentino á Ítalíu eftir viku og fjögur mæta á heimsmeistaramótið í Belgíu eftir tvær vikur. Mikael Schou, afreksstjóri HRÍ, kynnti hópinn í ágúst, en í nýjasta hlaðvarpi Hjólafrétta fer hann yfir valferlið á keppendum, markmiðin, framtíðarhugmyndir í afreksmálum og nýlega æfingarferð til Svíþjóðar svo eitthvað sé nefnt. Það eru hjólavinirnir í KPMG sem eru bakhjarl þáttarins.

Sep 02, 202140 minSeason 2Ep. 2

#9 - Hvað felst í nýrri hjólreiðaáætlun Reykjavíkur? Katrín Atladóttir situr fyrir svörum.

Af hverju verður meiri uppbygging hjólreiðainnviða vestan Elliðaáa á næstu árum? Hvað er gert ráð fyrir að lagt verði af hjólastígum á næstu 5 árum? Förum við að sjá sérstakar aðgerðir fyrir hjólreiðar við gatnamót og hvaða hjólaframkvæmdir verða stærstar í ár? Katrín Atladóttir leiddi hóp sem lagði fram drögð að nýrri hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík nýlega og hún ræðir þessi mál og fleiri við Hjólafréttir, meðal annars hvað hún telji að geti orðið hlutfall hjólandi ferða í öllum ferðum innan bo...

Jun 11, 202145 minSeason 1Ep. 9

#8 - Uppgjör á Jökulmílunni - Er Örninn ósigrandi?

Þriðja bikarmótið í götuhjólreiðum fór fram á Snæfellsnesi um helgina. Hjólafréttir gera upp keppnina, hvernig baráttan í helstu flokkum þróaðist og fara yfir áhugaverð augnablik sem skiptum sköpum varðandi útkomuna.

Jun 07, 202143 minSeason 1Ep. 8

#7 - Uppgjör eftir Suðurstrandarveginn

Rúnar Örn kryfur Suðurstrandarvegskeppnina sem fór fram á laugardaginn og rýnir í dýnamíkina sem var í gangi. Hvað var að virka í karla- og kvennakeppnunum og hvað leiddi til sigurs?

May 25, 202141 minSeason 1Ep. 7

#6 - Ingvar Ómarsson og "super stage" framundan

Hjólreiðamaðurinn Ingvar Ómarsson er þessa stundina staddur á Spáni, réttara sagt í héraðinu Andaluciu, þar sem hann tekur þátt í fjöldægra fjallahjólakeppni ásamt tékkneskum liðsfélaga. Rætt er við hann um hvernig hafi gengið, stemninguna úti og hvernig hann horfi á morgundaginn, en það verður lengsta dagleiðin.

May 20, 202143 minSeason 1Ep. 6

#4 - Heldur núverandi keppnisflokkakerfi aftur af þróun á Íslandi?

Í þessum þætti ræðum við núverandi keppnisflokkafyrirkomulag og veltum fyrir okkur stöðu masters-flokka og hvort þeir haldi jafnvel aftur af þróun hér á landi. Farið er yfir ráðningu nýs afreksstjóra HRÍ og hvernig landsliðið geti virkað sem gulrót á stærri hóp en hefur verið. Við förum líka yfir erlendar keppnir og hvort yfirfæra megi árangur Quicksteps á íslenska keppnislandslagið. Við rennum einnig yfir það hvað sé framundan á erlendum vettvangi. Gleðilega páska.

Apr 01, 202133 minSeason 1Ep. 4

#3 - Löggumálið, Zwift landslið, classics keppnir og nei við ERG mode

Í þriðja þættinum ræðum við um stóra löggumálið sem ýtti hressilega við hjólasamfélaginu. Fögnum vorinu (sem er komið á meginlandi Evrópu) með umfjöllun um classics keppnirnar og förum yfir nokkrar spurningar frá lesendum. Auk þess höldum við áfram að velta fyrir okkur Zwift keppnum og möguleikum á íslensku landsliði á þeim vettvangi.

Mar 05, 202140 minSeason 1Ep. 3

#2 - Íslenskt Zwift-lið, CX worlds og keppnissumarið á Íslandi

Hvaða möguleika hafa íslenskir zwiftarar að taka þátt í alvöru zwift-keppnum erlendis? Farið yfir CX worlds og keppnissumarið á Íslandi skoðað nánar. Þátturinn var tekinn upp í síðustu viku og því gætu nokkrar dagsetningar valdið misskilningi.

Feb 09, 202136 minSeason 1Ep. 2

#1 - Hvað færði árið 2020 okkur í hjólreiðum?

Fyrsti þáttur hlaðvarps Hjólafrétta er þá kominn í loftið. Við byrjum á að líta um um öxl og förum yfir árið 2020. Hvað stóð upp úr bæði á innlendum og erlendum vettvangi?

Jan 29, 202134 minEp. 1
Hosted on Buzzsprout
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android