Heilsuhegðun ungra Íslendinga - podcast cover

Heilsuhegðun ungra Íslendinga

Eggert Gunnarssonpodcasters.spotify.com
Í vísindahlaðvarpsþáttunum Heilsuhegðun ungra Íslendinga verður fjallað um heilsu, líðan og velferð ungs fólks á Íslandi. Umræðuefni þáttanna tengist langtímarannsókn sem vísindafólk við Menntavísindasvið Háskóla íslands gerði á stöðu ýmissa þátta í heilbrigði ungra Íslendinga. Þar var skoðuð staða og breyting til langframa á hreyfingu, svefni, þreki, kyrrsetu, andlegum þáttum frá sjö til sautján ára aldurs. Viðmælendur í þáttunum eru vísindamenn sem komu að rannsókninni og ræða um niðurstöður sínar á mannamáli við ungt fólk á framhaldsskólaaldri.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Skjátíma ungra barna og leiðir til lausna

Totoli er sprotafyrirtæki stofnað í Berlín sem vinnur að smáforriti (appi) fyrir börn 2-5 ára. Forritið er þróað með sálfræðingum og sérfræðingum í uppeldisfræðum - byggir á fræðarannsóknum og praktík og er ætlað að hjálpa ungum börnum að mynda heilbrigt samband við skjátíma. Forritið inniheldur fjölbreytt uppbyggilegt efni (mynd-, hljóð-, og leiki) sem er sérvalið og þróað til að ýta undir þroska barna í leik á fjölbreyttum sviðum (s.s. skapandi, vitsmunalegum þroska, tilfinningaskilningi, menn...

Jan 17, 20231 hrSeason 2Ep. 6

Nýstárlegt skólaumhverfi á framhaldsskólastigi

Í þessum þætti ræða þau Lára Stefánsdóttir, skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga, og Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólameistari Framhaldsskólans á Laugum um nýjar leiðir við menntun nemenda á framhaldsskólastiginu. Þau tala meðal margs annars um hvernig framhaldsskólinn hefur breyst með tilkomu snjallvæðingarinnar, hvað skólinn geti gert til að auka námsáhuga í gegnum tæknina og hvernig skólaumhverfið geti haft áhrif á skjánotkun. Þau ræða það hugtak sérstaklega og ekki síst hversu flott ky...

Dec 09, 20221 hr 5 minSeason 2Ep. 5

Nýstárleg skólaumhverfi á grunnskólastigi

Nýstárleg skólaumhverfi á grunnskólastigi Hvernig getur skólinn komið til móts við nýjan veruleika barna? Hvaða nemendahópar blómstra í þessu nýja umhverfi? Nýstárlegar aðferðir við kennslu. Erum við í stakk búin að undirbúa nemendur fyrir störf framtíðarinnar? Framtíð skólastarfs í stafrænum heimi. Viðmælendur: Gísli Rúnar Guðmundsson menntastjóri NÚ og Hallbera Gunnarsdóttir kennari við Bláskógaskóla á Laugarvatni.

Nov 28, 202254 minSeason 2Ep. 4

Tómstundir, hreyfing og mataræði ungs fólks

Í vísindahlaðvarpinu Heilsuhegðun ungra Íslendinga er fjallað um heilsu, líðan og velferð ungs fólks á Íslandi. Umræðuefni þáttanna tengist langtímarannsókn sem vísindafólk við Menntavísindasvið HÍ gerði á stöðu ýmissa þátta í heilbrigði ungs fólk. Markmið hlaðvarpsins er að efla vitund og auka þekkingu á heilbrigðu líferni. Í þessari annarri þáttaröð hlaðvarpsins verður sjónum beint að skjánotkun ungmenna, heimilinu og skólaumhverfi. Viðmælendur í þáttunum eru vísindamenn sem gera grein fyrir s...

Nov 24, 202249 minSeason 2Ep. 3

Skjárinn, foreldrahlutverkið og heilbrigð samskipti

Í vísindahlaðvarpinu Heilsuhegðun ungra Íslendinga er fjallað um heilsu, líðan og velferð ungs fólks á Íslandi. Umræðuefni þáttanna tengist langtímarannsókn sem vísindafólk við Menntavísindasvið HÍ gerði á stöðu ýmissa þátta í heilbrigði ungs fólk. Markmið hlaðvarpsins er að efla vitund og auka þekkingu á heilbrigðu líferni. Í þessari annarri þáttaröð hlaðvarpsins verður sjónum beint að skjánotkun ungmenna, heimilinu og skólaumhverfi. Viðmælendur í þáttunum eru vísindamenn sem gera grein fyrir s...

Nov 11, 202250 minSeason 2Ep. 2

Skjánotkun ungmenna og áhrif á heilsu

Í vísindahlaðvarpinu Heilsuhegðun ungra Íslendinga er fjallað um heilsu, líðan og velferð ungs fólks á Íslandi. Umræðuefni þáttanna tengist langtímarannsókn sem vísindafólk við Menntavísindasvið HÍ gerði á stöðu ýmissa þátta í heilbrigði ungs fólk. Markmið hlaðvarpsins er að efla vitund og auka þekkingu á heilbrigðu líferni. Í þessari annarri þáttaröð hlaðvarpsins verður sjónum beint að skjánotkun ungmenna, heimilinu og skólaumhverfi. Viðmælendur í þáttunum eru vísindamenn sem gera grein fyrir s...

Nov 05, 202253 minSeason 2Ep. 1

Mataræði, næring og heilsa

Í þessum þætti af hlaðvarpi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um heilsuhegðun ungra Íslendinga ræða þau dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir professor í næringarfræði og Baldur Steindórsson nemi við MH um mataræði, næringu og heilsu. Þau velta fyrir sér hvernig ræða mataræði og meðvitund fyrir hollum mat. Orkudrykkir, vegan, matvendni og unninn matur koma við sögu og svo margt annað.

Oct 07, 20211 hr 7 minSeason 1Ep. 7

Áhrif umhverfisins á líðan og heilsu

Áhrif umhverfis á heilsu. Ástríður Stefánsdóttir læknir og dósent í siðfræði við deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda við Háskóla Íslands og Katrín Ólafsdóttir doktorsnemi við deild menntunar og margbreytileika takast á um hvernig margvíslegir og ólíkir þættir í umhverfinu hafa áhrif á líðan og heilsu.

Sep 16, 20211 hr 6 minSeason 1Ep. 6

Andleg líðan ungmenna, kyrrseta og skjánotkun

Í fimmta þætti vísindahlaðvarpsins heilsuhegðun ungra Íslendinga er rætt um andleg líðan ungmenna, kyrrsetu og skjánotkun ungs fólks. Dr. Sunna Gestsdóttir lektor við deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda Elfa Óskarsdóttir nemi við FG skiptast á skoðunum um hvern farið er að því að styrkja andlega heilsu. Tölvunotkun, skyndibiti og félagaþrýstingur er meðal þess sem ber á góma.

Jun 24, 202150 minSeason 1Ep. 5

Félagsleg líðan og heilsa

Í fjórða þætta vísindahlaðvarpsins heilsuhegðun ungra Íslendinga fjallar dr. Ársæll Arnarson prófessor í tómstunda- og félagsmálafræði um félagsleg líðan og heilsu. Þær Bára Björg Ólafsdóttir og Björk Bjarnadóttir úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ spjalla við hann um einelti, samfélagsmiðla og hvað það merkir að vera unglingur. Varpað er upp og svarað spurningunni og um hvernig efla megi og styrkja þessa mikilvægu heilsufarsþætti hjá ungu fólki í nútímaþjóðfélagi.

Jun 17, 20211 hr 1 minSeason 1Ep. 4

Mikilvægi svefnsins, áhrif hans á einkunnir og hugræna frammistöðu

Þriðji þáttur vísindahlaðvarpsins heilsuhegðun ungra Íslendinga er nokkurs konar framhald af öðrum þætti. Rúna Sif Stefánsdóttir doktorsnemi í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands heldur áfram að fjalla um mikilvægi svefnsins, áhrif hans á einkunnir og hugræna frammistöðu svo eitthvað sé nefnt. Rúna Sif spjallar við þær Elfu Óskarsdóttur og Báru Ólafsdóttur um þær breytingar sem verða á unglingsárunum og tröppuganginn sem er á milli skólastiganna hér á landi.

Jun 10, 20211 hr 3 minSeason 1Ep. 3

Svefn, hreyfing og lifnaðarhættir ungs fólks

Í öðrum þætti vísindahlaðvarpsins Heilsuhegðun ungra Íslendinga eru svefn, hreyfing og lifnaðarhættir ungs fólks til umræðu. Það er dr. Vaka Rögnvaldsdóttir lektor við Háskóla Íslands sem spjallar um hver staðan er í þessum málum og um þá þætti sem hafa áhrif á svefn og hreyfingu við þeir Jökull Þór Ellertsson og Baldur Steindórsson úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Sömuleiðis fjallar Vaka um hvaða leiðir séu færar til að bæta svefn og heilsu.

Jun 03, 20211 hr 5 minSeason 1Ep. 2

Kynningarþáttur

Í fyrsta þætti vísindahlaðvarpsins Heilsuhegðun ungra Íslendinga er rætt við forvígismann verkefnisins, dr. Erling Jóhannesson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði. Hann fjallar um mikilvægi þess að huga að heilsunni, gildi hreyfingar, hvíldar og svefns og einnig um hvernig rannsóknarverkefnið varð til. Erlingur greinir einnig frá hvernig hugmyndin að hlaðvarpinu varð til og hvað verður þar á dagskrá auk margs annars.

May 26, 202156 minSeason 1Ep. 1
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android