Halldór Laxness les kafla úr eigin verkum. Hljóðritanir frá ýmsum tímum.
Lestrar Halldórs Laxness úr safni RÚV eru færðir þjóðinni að gjöf í samstarfi við Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, dætur skáldsins.
Last refreshed: ⓘ
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more
Halldór Laxness les upp á fundi Norræna félagsins 15. nóvemer 1955. Upptökunni var útvarpað fyrr en löngu seinna. Halldór flytur smá formála. Þakkar stjórn Norræna félagsins og Gunnari Thoroddsenborgarstjóra, fyrir hlý orð. A: Kafli úr Heimsljósi: Ólafur Kárason; Um upphaf skáldsins; 1. Kapituli. B: Kafli úr Gerplu. Kynnir og fundarstjóri er Dr. Gunnar Thoroddsen borgarstjóri Reykjavíkur. Hann afkynnir Halldór Laxness og stjórnar húrrahrópum í lokin.
Halldór Laxness les fjórða kalfa Skáldatíma, sem nefnist; Óinnblásinn ræðumaður. Hljóðritað 1963. Bókin Skáldatími hefur að geyma hugleiðingar í samfelldu frásagnarformi um menn, atburði og hugmyndir, sem höfundurinn kynntist persónulega á síðasta hálfum-öðrum áratug fyrir heimstyrjöldina síðari. Bókin er þekktust fyrir það uppgjör skáldsins, sem þar fer fram við Stalín og kommúnismann.