Í tilefni þess að Þjóðleikhúsið frumsýnir brátt hið fræga leikrit Bertholts Brechts og Margarete Steffin, Mutter Courage und Ihre Kinder, sem gerist í 30 ára stríðinu í Þýskalandi verður hér rakin þessa grimmilega stríðs sem geisaði í hjarta Evrópu 1618-1648. Blóðþyrstir málaliðaherir fóru um Þýskalandi í upphafi stríðsins og eirðu engu og talið er að villimennska stríðsins hafi verið meiri og andstyggilegri en í nokkurri styrjöld fram að því. En innan um herina reyndi fólk eins og Mutter Courag...
Oct 15, 2023•52 min•Ep. 50
Öðru hvoru síðustu árin hefur verið lesið úr frásögnum Marco Polos um ferð sína til Kína við lok miðalda. Hér segir Marco Polo frá merkilegu ríki sem hann kom til í Kína og hafði kóng svo friðsaman að þar í ríkinu voru engir hermenn, og kóngurinn undi sér við nautnir og gleði með þúsund konum sem voru í fylgdarliði hans. En hvað gerist í slíku ríki þegar óvígur her Mongóla og Kínverja stendur á landamærunum? Umsjón: Illugi Jökulsson.
Oct 08, 2023•52 min•Ep. 49
Lesið er úr æskuminningum Þorvalds Thoroddsen og framan af þætti mest um þjóðhátíðina 1874 þegar Kristján IX konungur kom til Íslands. Þorvaldur lýsir konungskomunni hispurslaust og án hátíðleika og hann og Matthías Jochumsson segja frá sérkennilegum gestum sem hingað komu vegna hátíðarinnar. Lýst er heldur hráslagalegu lífi í Reykjavík en síðan vikið til Kaupmannahafnar þar sem Jón Sigurðsson ber ægishjálm fyrir alla Íslendinga. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Oct 01, 2023•52 min•Ep. 48
Sveinn Pálsson var landlæknir í byrjun 19. aldar og vann ómetanlegt starf sem slíkur en eftir á eru rannsóknarferðir hans um Ísland þó sennilega það merkasta sem eftir hann liggur. Í þessum þætti tekur umsjónarmaður saman margt gott og fróðlegt bæði úr ferðabókum hans og dagbókum, og er óhætt að segja að bæði glöggt og bráðskemmtilegt er Sveins augað þegar hann rannsakar bæði náttúruna og mannfólkið. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Sep 24, 2023•52 min•Ep. 47
Sveinn Pálsson var einn merkasti vísindamaður og læknir Íslands um aldamótin 1800. Í þessum þætti verður fjallað um ævi hans framan af og stuðst við stórmerkilega sjálfsævisögu sem hann skrifaði. Hann segir frá uppvexti sínum fyrir norðan, skólagöngu fyrir sunnan og svo dvöl sinni í Kaupmannahöfn þar sem hann veit í fyrstu ekki nákvæmlega hvað hann ætlar að læra en fær loks tækifæri til að fara í rannsóknarferð til Íslands. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Sep 17, 2023•52 min•Ep. 46
Hreinsanir í Sovétríkjunum færast í aukana í frásögn Úkraínumannsins Viktors Kravténko (1905-1966) og nú er hann sjálfur í stórhættu. Vinur hans og samstarfsmaður er tekinn fyrir á opinberum fundi og Kravténko veit að þessi vinur hans getur orðið þess valdandi að hann sjálfur falli í ónáð, sem svo endar ævinlega með ósköpunum. Í síðari hluta þáttarins segir Kravténko svo frá morðinu á kommúnistaleiðtoganum Kírov 1934, sem varð Stalín tilefni til enn grimmari hreinsana en áður. Umsjón: Illugi Jök...
Sep 10, 2023•50 min•Ep. 45
Í samantekt umsjónarmanns á liðinum misserum úr stórmerkum æviminningum Úkraínumannsins Viktors Kravténkos (1905-1966) var sögunni þar komið að eftir hrylling hungursneyðarinnar miklu í Úkraínu var Stalín einræðisherra Sovétríkja fullur tortryggni í garð raunverulegra og ímyndaðra andstæðinga. Hreinsanir voru að hefjast og í þessum þætti segir Kravténko frá fundum þar grunaðir stjórnarandstæðingar voru teknir fyrir, jafnvel af sínum bestu vinum og varpað út í ystu myrkur. Umsjón: Illugi Jökulsso...
Sep 03, 2023•52 min•Ep. 44
Hér segir frá ferðalagi Ítalans Marco Polos frá Evrópu til Kína á ofanverðri 13. öld. Marco er nú kominn til hirðar hins mikla keisara Kublai Kahn og vinnur trúnað hans með þeim árangri að keisarinn sendir hann út í rannsóknarferð um lítt kunnar slóðir inni í víðáttum Kína þar sem eru ríki og þjóðir sem Evrópumenn höfðu aldrei kynnst. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Aug 27, 2023•52 min•Ep. 43
Jóhann Kúld var sjómaður sem var við störf á norskum skipum á árunum upp úr 1920 eins og þegar hefur verið lýst í einum þætti af Frjálsum höndum. Hér er svo lýst vist hans á norsku selveiðiskipi sem sigldi inn í hafísinn og athafnaði sig þar vikum saman. Í þá daga efaðist enginn um réttmæti selveiða og lýsingin á veiðum og hættum inni í hafísbreiðum er litrík. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Aug 20, 2023•52 min•Ep. 42
Einar Hjörleifsson Kvaran var í upphafi 20. aldar einn vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar en hann var jafnframt vel metinn blaðamaður. Árið 1907 fór hann í ferðalag til Vesturheims, þar sem hann hafði áður búið, og í þessum þætti er lýst ferðalagi hans og ferðafélögum. Einar hefur augun hjá sér í lýsingum á fólki en getur sjaldan stillt sig um að víkja talinu að dulrænum efnum. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Aug 13, 2023•52 min•Ep. 41
Á vordögum las umsjónarmaður næsta ótrúlega frásögn um heimsókn Breta sem Stuart hét til Íslands árið 1926. Hann fór um suðurland í fylgd Stefáns Filippussonar leiðsögumanns og hegðaði sér hvarvetna stórundarlega, þótt hinn þrautþjálfaði leiðsögumaður hafði aldrei kynnst öðrum eins ferðamanni. Í þessum þætti er lýst framhaldi ferðarinnar og jafnframt síðari ferð Stuarts á Öræfajökli sem er engu skrýtnari en fyrri ferðir hans. Í lok þáttar er svo lýst ferð Stefáns yfir Sprengisand 1936. Umsjón: I...
Aug 06, 2023•50 min•Ep. 40
Jóhann Kúld frá Mýrum segir frá ferð sem hann fór árið 1924 á norsku selveiðiskipi, sem hélt norður í íshafi til að stunda þar selveiði. Skipið sigldi inn í ísinn sem virtist ætla að ganga vel, en það breyttist á augabragði.
Jun 04, 2023•52 min•Ep. 39
Stefán Filippusson fæddist 1870 í Vestur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp. Hann var bóndi í Borgarfirð eystra og var m.a. fylgdarmaður erlendra ferðamanna sem komu til landsins. Árni Óla skráð æviminningar Stefáns Filippussonar, sem komu út í bókinni Fjöll og firnindi. Illugi Jökulsson les frásögn úr bókinni sem heitir Einkennilegur ferðalangur. Þar segir frá ferð sem Stefán fór í með erlendan ferðamann sem hét Stuart sem kom þrisvar til Íslands, en Stefán var fylgdarmaður hans í tvígang.
May 28, 2023•52 min•Ep. 38
Umsjónarmaður heldur áfram að glugga í bókina Milljónin sem segir frá ferðum Marco Polo og föður hans, ásamt frænda þeirra til Kína. Þeir eru komnir til Kína og hitta stórkhaninn Kublai Khan, sem var frá Mongólíu og sonarsonur Genghis Khan. Umsjón: Illugi Jökulsson.
May 21, 2023•52 min•Ep. 37
Sumarið 1874 stóð mikið til í Reykjavík og nágrenni. Haldin var þjóðhátíð til að minnast 1000 ára afmælis Íslands byggðar. Bayard Taylor, bandarískt skáld og ferðabókahöfundur, kom til Íslands þetta ár á vegum bandaríska blaðsins New York Tribune, til að fylgjast með hátíðahöldunum. Hann kom til landsins frá Egyptalandi og skrifaði bók um dvöl sína þar og í sömu bók segir hann frá dvölinni á Íslandi. Umsjónarmaður les frásögn hans. Umsjón: Illugi Jökulsson.
May 14, 2023•52 min•Ep. 36
Árið 1948 kom út bókin Tvennir tímar eftir Elínborgu Lárusdóttur rithöfund, með endurminningum Hólmfríðar Margrétar Björnsdóttur Hjaltason. Sagan hefst norður á Siglufirði árið 1870 og lýsir ævi alþýðukonu er giftist Guðmundi Hjaltasyni kennara og alþýðufræðara. Umsjónarmaður les kafla sem fjalla um átakanleg æskuár Hólmfríðar sem ólst upp við mikla fátækt og þurfti að þola mikið harðræði og hungur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
May 07, 2023•52 min•Ep. 35
Haldið er áfram að lesa úr bókinni Ég kaus frelsið eftir Viktor Kravtsjenko. Hungursneyðin hræðilega í Úkraínu stóð sem hæst og Viktor Kravténko átti að sjá til þess að bændurnir færu eftir fyrirmælum að ofan. Eftir að aðeins fór að slakna hungursneyðin í Úkraínu, hefði átt að komast á einhver ró en það var öðru nær. Stalín var að undirbúa hreinsanir í flokknum og samfélaginu sem áttu að gera hann algjörlega öruggan í sessi. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Apr 30, 2023•52 min•Ep. 34
Lesið er úr bókinni Bréf frá Íslandi eftir Uno von Troil, sænskan guðsmann sem kom til Íslands 1772. Hann ritaði bréfin eftir Íslandsför sína. Bókin var gefin út árið 1961 í íslenskri þýðingu Haraldar Sigurðssonar, sem ritaði jafnframt formála. Frásögnin hefst á því að umsjónarmaður les formálann. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Apr 23, 2023•52 min•Ep. 33
Umsjónarmaður heldur áfram að lesa úr Mósebók Biblíunnar. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Apr 16, 2023•52 min•Ep. 32
Páskahátíðin í Jerúsalem, þar sem Jesú mætti örlögum sínum, var haldin til minningar um þann atburð þegar Móse leiddi Ísraelsmenn úr Egyptalandi. Þetta var og er mesta hátíð Ísraelsmanna. En hver var Móse og var hann allur þar sem hann er séður? Í páskaþætti Frjálsra handa er lagst í Mósebækur og reynt að grafast fyrir um hver Móse var. Umsjónarmaður: Illugi Jökulsson.
Apr 09, 2023•52 min•Ep. 31
Árið 1271 lagði Marco Polo af stað í ferð til Kína og fór eftir Silkileiðinni. Faðir hans og föðurbróðir höfðu komið til Kína nokkrum árum áður og hitt Kublai Khan, keisara í Kína. Umsjónarmaður hefur frásögnina þar sem Ítalarnir þrír eru komnir til borgarinnar Shangdu. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Apr 02, 2023•50 min•Ep. 30
Umsjónarmaður grípur í þriðja sinn niður í bókinni Svaðilfarir á sjó og landi. Herferðir og kátleg ævintýri Münchausens baróns, eins og hann sagði þau við skál við vini sína, eftir Gottfried August Bürger, í þýðingu Ingvars G. Bryjólfssonar. Bókin var gefin út af bókaútgáfunni Norðra árið 1951. Í þetta sinn liggur leið hans um ísilagðar slóðir Norðurhafa, þar sem hann hittir ísbirni og allskonar kvikindi, öðru sinni fer hann til tunglsins og svo meira að segja gegnum jörðina sjálfa. Umsjón: Illu...
Mar 26, 2023•52 min•Ep. 29
Hornhöfði, syðsti oddi Suður-Ameríku, er sakleysislegur í góðu veðri en sumarið (veturinn!) 1838 var bandaríska skipið Alert vikum saman að reyna að brjótast fyrir hann gegnum hafísbreiður, jakaborgir og illviðri sem stóðu vikum saman. Fyrir viku las Illugi Jökulsson úr frásögnum Richard Henry Dana, háseta á Alert, en þá voru aðstæður um borð orðnar svo skelfilegar að skipverjar voru farnir að undirbúa uppreisn gegn skipstjóra sínum. Löðrið gengur yfir skipverjana þar sem þeir hírast uppí rá og ...
Mar 19, 2023•52 min•Ep. 28
Illugi Jökulsson les úr bók eftir bandaríska rithöfundinn Richard Henry Dana, sem fæddist í Cambridge í Massachusetts árið 1815. Hann réð sig sem óbreyttur háseti á flutningaskipi sem sigldi fyrir Hornhöfða, syðsta odda Suður-Ameríku til Kaliforníu. Hann skrifaði bókina Two Years Before The Mast, þar sem hann lýsir þvi sem fyrir hann bar. Í maí 1836 lagði hann af stað á öðru skipi til baka, sem hét Alert. Lýsingar Dana eru magnaðar, einkum af því þegar Alert reynir vikum saman að ná fyrir Hornhö...
Mar 12, 2023•52 min•Ep. 27
Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa úr æviminningum Gunnars Þorbergssonar, eða Gunnars Th. Oddssonar, eins og nefndi sig þegar hann bjó vestanhafs. Frásögnin hefst á því þegar ísbjörn nálgast land í Loðmundarfirði árið 1881.
Mar 05, 2023•52 min•Ep. 26
Illugi Jökulsson heldur áfram að vinsa efni úr hinum fróðlegu æviminningum Gunnars Þorbergssonar, eða Gunnars Th. Oddssonar, sem fæddist á Loðmundarfirði 1865. Hann greinir frá uppeldi sínu á venjulegu alþýðuheimili á látlausan en snotran hátt og hlustendur frá að kynnast ýmsu sem ekki öllum hefði þótt frásagnarvert.
Feb 26, 2023•52 min•Ep. 25
Árið 1936 birtist frétt í Norðablaðinu Degi, þar sem sagt var frá Gunnari Th. Oddssyni, sjötugum íslenskum hlaupara í Vesturheimi. Hann fæddist í Nes-hjáleigu í Loðmundarfirði 1865. Þegar hann var gamall maður í Vesturheimi ritaði hann svolítið kver með sjálfsævisögu sinni og fylgdi henni úr hlaði með þessum orðum: „Þó ég taki nú penna í hönd til að rita ferðasögu mína yfir lífshafið, finn ég vel að mig vantar flest af því sem nauðsynlegt er við ritstörf. Mentun hef ég enga. Íslenzka tungu kann ...
Feb 19, 2023•52 min•Ep. 24
Umsjónarmaður heldur afrma að lesa úr æviminningum Viktors Kravtsenkos. Haldið er áfram að segja frá hungursneyðinni í Úkraínu, sem Sovétmenn reyndu að halda í þagnargildi. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Feb 12, 2023•50 min•Ep. 23
Umsjónarmaður les úr æviminningum Viktors Kravtsenkos, þar sem fjallað er um samykjubúin í Úkraínu, iðnvæðinguna og harðstjórn Moskuvaldsins. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Feb 05, 2023•50 min•Ep. 22
Höfundur heldur áfram að lesa úr æviminningumr Úkraínumannsins Viktors Kravtsjhenkos, Ég kaus frelsið. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Jan 29, 2023•52 min•Ep. 21