Frelsi og fullveldi - podcast cover

Frelsi og fullveldi

Málfundafélagið frelsi og fullveldi
HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI? Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar. Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar. Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki. Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem stendur vörð um hag þeirra sem standa höllum fæti. Ísland á í góðum samskiptum við umheiminn og við stöndum fast að baki því að eiga í góðu alþjóðlegu samstarfi með áherslu á Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið og norræna samvinnu auk samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem tryggir frjáls viðskipti við Evrópuríkin. Við stjórn efnahagsmála leggur Frelsi og fullveldi áherslu á ábyrga stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum, takmörkuð umsvif hins opinbera og lækkun skatta og álaga. Þetta eru höfuðatriðin í stefnu félagsins.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Málfundur #11: Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis

Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 4. nóvember 2024 en þetta var ellefti opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis. Framsögumenn voru þeir sr. Geir Waage og sr. Halldór Gunnarsson. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir. Stefnumálin eða hugmyndir Málfundafélagsins eru einkum unnar upp úr fundum félagsins og er ætlað a...

Nov 15, 20242 hr 4 minEp. 13

Málfundur #10: Staða Íslands innan EES og bókun 35

Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 16. september 2024 en þetta var tíundi opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Staða Íslands innan ESS og bókun 35 . Framsögumenn voru þeir Hjörtur J. Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur með áherslu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál og Bjarni Jónsson alþingismaður. Báðir hafa þeir nýleg skrifað athyglisverðar...

Sep 25, 20241 hr 55 minEp. 12

Málfundur #9: Verjum hag eldra fólks

Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 22. apríl 2024 en þetta var níundi opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Verjum hag eldra fólks . Framsögumenn voru þeir Ragnar Árnason prófessor emerítus og sr. Halldór Gunnarsson fyrrverandi sóknarprestur . Þeir upplýsa um stöðu eldra fólks en stór hluti þess háir erfiða lífsbaráttu og skerðingar á réttindum. Fundarstjóri var dr....

May 01, 20241 hrEp. 11

Málfundur #8: Varðstaða um íslensk gildi

Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 18. mars síðasliðinn en þetta var áttundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var Varðstaða um íslensk gildi . Framsögumenn voru þeir Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og Birgir Þórarinsson alþingismaður. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir . Á fundinum var ályktun um aðgerðir til að tryggja varðstöðu um íslensk gildi borin upp og sam...

Apr 02, 20242 hr 3 minEp. 10

Málfundur #7: Löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 26. febrúar síðasliðinn en þetta var sjöundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum . Framsögumenn voru þeir Karl Gauti Hjaltason , lögreglustjóri og fv. alþingismaður og Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræðingur og formaður tollvarðafélags Íslands. Funarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir . Á fundinum var...

Mar 07, 20242 hr 10 minEp. 9

Málfundur #6: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærin

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til 6. umræðufundar félagsins í Catalínu í Hamraborg, Kópavogi mánudaginn 15. janúar síðastliðinn. Umræðuefni: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærin Framsögumenn: Jón Magnússon og Ólafur Ísleifsson fyrrverandi alþingismenn Fundarstjóri: Anna Björg Hjartardóttir Breytt stefna í málefnum hælisleitenda var mikið rædd og eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu opnaði fundarstjóri á mælendaskrá fundarins. Miklar og góðar umræður spunnust en hlýða má ...

Jan 23, 20241 hr 49 minEp. 8

Jón Magnússon: Mikilvægustu þjóðfélagsmálin í þessu ölduróti

Jón Magnússon er í viðtali við Edith Alvarsdóttur. Hann segir frá hvers vegna hann valdi að starfa með Málfundafélaginu Frelsi og fullveldi. Jón segir að þetta sé félagsskapur sem hann eigi fulla samleið með, félagsskapur sem vilji þoka málum áfram, vilji brydda upp á umræðum um mikilvægustu þjóðfélagsmálin á grundvelli þjóðfrelsis og fullveldis íslensku þjóðarinnar. "Þetta skiptir verulegu máli, ekki síst núna í þessu ölduróti og umróti sem við erum stödd í, þar sem við erum að horfa upp á að þ...

Jan 09, 202428 minEp. 7

Jólahugvekja sr. Halldórs Gunnarssonar í Holti

Í tilefni jóla sendir sr. Halldór Gunnarsson í Holti jólahugvekju til allra félagsmanna í Málfundafélaginu Frelsi og fullveldi. Eftir hugvekjuna flytja Baggalútur, BRÍET og Valdimar Guðmundsson lagið Jólin eru okkar.

Dec 25, 202311 minEp. 6

Þjóðin er fullvalda, ekki stjórnmálastéttin

Edith Alvarsdóttir ræðir við sr. Geir Waage, formann Málfundafélagsins Frelsis og fullveldis í þessum hlaðvarpsþætti. Aðspurður um hvers vegna farið hafi verið af stað með það að stofna málfundafélagið segir Geir: "Það eru ýmsar forsendur fyrir því. Auðvitað þreyta þeirra sem hafa verið að taka þátt í pólitísku starfi á undanförnum áratugum. Það er hvergi pláss eða friður til þess að standa að neinni pólitískri samstæðu eða pólitískri umræðu innan stjórnmálaflokkanna. Stjórnmálaflokkarnir hafa b...

Dec 17, 202319 minEp. 5

Málfundur #2: Þrælshringurinn og vakningarákall til þjóðarinnar

Þessi upptaka er frá öðrum málfundi Málfundafélagsins Frelsis og fullveldis sem haldinn var á Catalínu í Kópavogi þann 27. apríl 2023. Framsögumenn voru Arnar Þór Jónsson lögmaður og sr. Geir Waage . Miklar og góðar umræður áttu sér stað eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu. Hér er upptaka af ræðum framsögumanna (47 mínútur) en upptaka af öllum fundinum, þ.e. ræður framsögumanna og umræður allra sem tóku til máls verður líklega birt á nýrri YouTube-rás félagsins sem er í vinnslu. (Smá hlj...

Dec 11, 202347 minEp. 4

Hvernig verjum við frelsi og fullveldi Íslands?

Hér er viðtal sem Edith Alvarsdóttir tók við Arnar Þór Jónsson lögmann 29. nóvember 2023. Edith spurði Arnar út í bókun 35 og þá þróun sem verið hefur síðan Ísland samþykkti að ganga inn í viðskiptabandalag og gerast aðili að Evrópska efnahagssvæðinu fyrir 30 árum. Þau ræða um forsetaembættið og Arnar svarar spurningunni um hvernig við verjum frelsi og fullveldi Íslands. Arnar veltir fyrir sér hvort íslenskur almenningur sofi áhyggjulaus á sínum kodda.

Dec 04, 202327 minEp. 3

Málfundur #5: Stefnir í annað hrun? Hvað er til ráða?

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til 5. umræðufundar félagsins í Catalínu í Hamraborg, Kópavogi mánudaginn 6. nóvember síðastliðinn. Umræðuefnið var: Stefnir í annað hrun? Hvað er til ráða? Framsögumenn voru þeir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins og Ólafur Ísleifsson fyrrverandi alþingismaður og hagfræðingur. Fundarstjóri var Geir Waage . Miklar og góðar umræður áttu sér stað eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu og má hlýða á frams...

Nov 18, 20232 hr 8 minEp. 2
Hosted on Transistor
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android