00:00 - Fantasy Premier League 32:22 - 50skills (Pepsi Max kvenna) 1:11:43 - Eyjabitinn (Pepsi Max karla) Eftir vasklega framgöngu í síðasta þætti sneru Arnór Gauti og Kristófer Máni aftur í hljóðverið og ræddu málin á meðan Aron er að klára lengstu hringferð sögunnar. Þess má geta að strákarnir keyrðu hringinn í kringum landið á tveimur dögum síðustu helgi og voru mættir ferskir í þátt. Hver verður stigahæstur í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar? Hverja á maður að kaupa ef maður er að not...
Jul 22, 2020
Leikir unfanfarna daga hjá liðunum á Norðurlandi skoðaðir. Leikir Þór, KA og KF skoðaðir vel og aðeins rætt um hina leikina og pælingar tengdar þeim. KA vann sinn fyrsta leik í deildinni, Þórsarar gerðu jafntefli og Magni missti niður forystu. Áfram er uppskeran lítil í 2. deild en Tindastóll náði í gott stig á útivelli og Samherjar halda áfram á góðu skriði. Kvennalið Tindastóls er á toppi Lengjudeildarinnar, Þór/KA er í smá brekku og fyrsta mark Völsungs kvenna. Dagskráin: KA: 1-21(mín), Þór 2...
Jul 22, 2020
Það er nóg að gera á Heimavellinum í dag. Gestir þáttarins eru fyrrum knattspyrnukonurnar Sóley Guðmundsdóttir og Berglind Hrund. Síðasta umferð Pepsi Max deildarinnar er gerð upp ásamt því að hita upp fyrir stórleik Breiðabliks og Vals í kvöld. Meðal efnis: -Dramatísk Pepsí Max umferð -Maika'i leikmaður vikunnar - Reif sitt lið í gang -Bestu leikmenn 1.-6. umferða -Pottþétt Hekla -Upphitun fyrir stórleikinn á Kópavogsvelli -Besta byrjunarliðið hjá Val og Breiðablik
Jul 21, 2020
Undanúrslitin í enska bikarnum fóru fram um liðna helgi og í þessari viku eru framundan lokaleikirnir í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Man Utd og útvarpsmaður á Rás 2, eru gestir vikunnar í enska Innkastinu. Meðal efnis: David De Gea, leikmannakaup sumarsins, varnarvandræði, einkunnagjöf stjóranna, niðursveifla Leicester, drauma byrjunarlið á næsta tímabili, Paul Pogba, Evrópudeildin, toppbaráttan næsta vetur, fallbarát...
Jul 21, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um liðnar umferðir í 2. og 3. deild karla en það er viðburðarík helgi að baki. Kórdrengir styrktu stöðu sína enn frekar á toppi 2. deildar og það eru Reynismenn sem eru áfram númer eitt í 3. deildinni.
Jul 20, 2020
Innkastið eftir 7. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir umferðina með Elvari Geir Magnússyni. Meðal efnis: Val á besta leikmanni fyrsta þriðjungs, Rýr uppskera Breiðabliks, mikilvægur sigur Vals, Víkingar rúlla yfir ÍA, KR-ingar miklu betri en Fylkismenn, Eiður Smári mættur, nýir þjálfarar byrja vel, skýrsla frá Akureyri, Lengjudeildarhornið.
Jul 19, 2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. júlí. Elvar Geir Magnússon, Baldvin Már Borgarsson og Magnús Már Einarsson fjölluðu um íslenska fótboltann. Í fyrri hlutanum var fjallað ítarlega um Pepsi Max-deildina og Lengjudeildina, einnig lítillega um 2. deildina. Rýnt var í þjálfarahræringarnar. Í seinni hlutanum er Guðlaugur Victor Pálsson landsliðsmaður í viðtali og einnig Valdimar Svavarsson formaður FH. Í byrjun þáttar: Pepsi Max-deildin 37:00 Lengjudeildin og 2. deildin 63:00 Guðlaugur V...
Jul 18, 2020
Sæbjörn settist niður með Sævar Péturssyni, framkvæmdastjóri, og spurði hann út í þjálfaraskipti meistaraflokks KA en samstarfinu var slitið við Óla Stefán Flóventsson, nú fyrrum þjálfara liðsins, í vikunni. Við liði KA tók Arnar Grétarsson og stýrir hann liðinu í fyrsta sinn á morgun þegar KA mætir Gróttu á heimavelli. Sævar svaraði spurningum um þjálfaraskiptin og einnig spurningum um stefnu KA þegar horft er á meistaraflokk félagsins. Þá var hann spurður út í leikmannamál, Greifavöllinn og fr...
Jul 17, 2020
Þeir Sæbjörn Þór og Aci fóru yfir leikina undanfarna daga. Þór/KA fór áfram í Mjólkurbikarnum en annars var uppskeran slöpp á Norðurlandi, einungis fimm stig af 27 mögulegum. Það var Tindastóll sem hélt upp í heiðrinum með sigri og Samherjar ásamt KA fengu stig á heimavelli. Dagskráin: KA 1-16 (mín), Þór 16-23, Magni 23-34, 2. deild 34-48 Tindastóll kk 48-51, Samherjar 51-55, Mjólkurbikar kvenna 55-60 Þór/KA vs. FH og næstu leikir 60-69. Umsjónarmenn Sæbjörn Þór Þórbergsson og Aksentije Milisic....
Jul 15, 2020
00:00 - Eyjabitinn 45:14 - 50skills 1:07:30 - Premier League Það voru hægðir og lægðir í þessari viku hjá Fantasy leikmönnum. Lítið um hæðir. Kristófer Máni og Arnór Gauti, varamenn Fantabragða, mættu til Gylfa í stúdíóið á meðan Aron er í sumarfríi. Stigaleysið var algjört í Eyjabitanum. Meira var um að vera í 50skills þótt einungis tveir leikir hafi farið fram í síðustu umferð. Enska Fantasy er nánast búið. Þrátt fyrir erfiða tíma í Fantasy, eins og venjan hefur verið, voru strákarnir kátir en...
Jul 14, 2020
Í þessu Innkasti er farið yfir sjöttu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson skoða leikina og helstu fréttapunktana. Lengjudeildin er einnig til umræðu. Meðal efnis: Skagamenn skora mörkin, dýrkeypt markvarðamistök, vonbrigði á Hlíðarenda, góðir KR-ingar, Fylkismenn koma öllum á óvart, andleysi í FH, KA í vandræðum, þjálfari Ólafsvíkur rekinn, efri hluti Lengjudeildarinnar þéttist.
Jul 13, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Kórdrengir tróna á toppi 2. deildar og það eru Reynismenn sem eru númer eitt í 3. deildinni. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Í þætti vikunnar fara þeir yfir 5. umferðirnar í deildunum.
Jul 13, 2020
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977. Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Stjörnunnar, mætti í heimsókn en hann er nýlaus úr sóttkví eins og stærsti hluti leikmannahóps Garðabæjarliðsins. Stjarnan mætir aftur til leiks í Pepsi Max-deildinni á mánudaginn þegar liðið mætir Val. Eyjólfur er styrktarþjálfari Stjörnunnar ásamt því að spila með liðinu.
Jul 11, 2020
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um kynþáttafordóma í 4. deild og hituðu upp fyrir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar.
Jul 11, 2020
Í þættinum fara þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson yfir leikina í miðri viku. Bæði lið Tindastóls sigruðu sína leiki, KF heldur sínu taki á Dalvík/Reyni og Völsungur fékk sitt fyrsta stig. Síðustu leikir voru ekki góðir fyrir Þór, KA og Magna og er staðan skoðuð. Skýrsla úr leikjunum hjá Þór og KA ásamt leiknum á Dalvík. Dagskráin Dalvíkurvöllur: (mín) 0-26, Völsungur: 26-28 Tindastóll kk: 28-31, Magni: 31-36, Þór: 36-49, KA: 49-57 Lengjudeild kvk og næstu leikir: 57-65 Hafa samba...
Jul 10, 2020
Það er Arsenal þema í enska innkastinu að þessu sinni en skytturnar hafa verið á góðu flugi að undanförnu. Gestir þáttarins eru Arsenal stuðningsmennirnir Jón Kaldal og Engilbert Aron Kristjánsson.
Jul 10, 2020
Innkastið fjallar um leiki 5. umferðar Pepsi Max-deildar karla og einnig er farið yfir 4. umferðina í Lengjudeildinni. Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir málin í þætti dagsins. Meðal efnis: Óskar Hrafn pirraður eftir jafntefli gegn FH, stefnir í spennandi toppbaráttu, Vængbrotnir Víkingar í veseni gegn Val, Grótta opnar flóðgáttir, Valgeir sýndi gæði sín gegn ÍA, næstu tveir leikir KA ráða hitastiginu á sæti Óla Stefáns, Hemmi Hreiðars tekur við Þrótti Vogum, músagangu...
Jul 09, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þórarinn Jónas Ásgeirsson, aðstoðarþjálfari Hauka, er gestur í Ástríðunni að þessu sinni. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi. Þeir þrír fóru yfir síðustu tvær umferðir í 2. og 3. deild karla.
Jul 09, 2020
Boltinn rúllar í öllum deildum og knattspyrnuþjálfararnir Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir mæta á Heimavöllinn í dag og fara yfir gang mál ásamt þáttastýrum. Þær renna yfir stöðuna í deildunum þremur, fara yfir helstu fréttir og kaffistofuspjallmola og benda hlustendum á leikmenn sem lofa góðu í Maxinu svo eitthvað sé nefnt.
Jul 09, 2020
Fantasy Premier League heldur áfram og Manchester United leikmenn eru heldur betur að gera það gott. Bruno Fernandes, Martial, Rashford og Greenwood skipta stigunum á milli sín í að því er virðist hverjum leik og nú er þetta bara spurning um hvaða þrjá af þessum þú ætlar að hafa í þínu liði. Manchester City eiga frábæra leikjadagskrá framundan en fóru illa að ráði sínu gegn Southampton og töpuðu 1-0 þar sem þeirra helstu Fantasy karlar fengu 1 stig hver. Tottenham líta illa út og við ætlum ekki ...
Jul 07, 2020
Í þættinum er farið yfir leikina átta hjá liðunum fyrir norðan sem leiknir voru fyrir helgi og um helgina. Fjórir sigrar unnust, eitt jafntefli og þrjú töp. Þórsarar eru með fullt hús, fyrstu sigrarnir í 2. deild og KA fékk stig á Greifavelli. Magni og Völsungur eru án stiga á meðan Samherjar rétta skútuna við. Dagskráin: KA: 0-23 (mín), Þór: 23-38, Magni: 38-45 KF: 45-60, Dalvík/Reynir: 60-64, Völsungur: 65-67 Tindastóll (Völsungur kvk): 67-71 Samherjar, hláturskast og næstu leikir: 71-77 Umsjó...
Jul 06, 2020
Það var líf og fjör í leikjum helgarinnar í Pepsi Max-deildinni. Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir alla leikina í Innkastinu. Meðal efnis: Víkingar sáu rautt, vanstilltir dómarar, Greifavöllurinn áfram í umræðunni, Lengjudeildarbragur yfir leik Gróttu og HK og Gunni giskar.
Jul 06, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu sérfræðinga þáttarins um Lengjudeildina í heimsókn þegar einum leik var ólokið í 3. umferð. Úlfur Blandon og Rafn Markús Vilbergsson mættu í hljóðver og fóru yfir gang mála og hvað við höfum lært í byrjun móts.
Jul 04, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór gerðu upp óvæntan skell Vals gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni. Tómas var á vellinum. Fjallað var um gluggatíðindi vikunnar. Einnig var rætt um nýtt landsliðsmerki Íslands og treyjuna frá Puma. Stefán Gunnarsson. markaðsstjóri KSÍ, var á línunni.
Jul 04, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þættinum að þessu sinni er fjallað um það sem gerðist í 2. umferð og leikmannaskipti frá gluggadeginum í 2. og 3. deild skoðuð. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.
Jul 02, 2020
Í sjötta þætti Boltans á Norðurlandi er rætt um leiki síðustu helgar og frestanirnar á þeim leikjum sem ekki fóru fram. Þórsarar héldu áfram að harka inn sigra á meðan uppskeran var engin í 2. deild. Stólarnir létu vængina hrapa, eins og einn ágætur maður orðaði það, punktur hjá kvennaliðinu og þrjú stig af sex mögulegum hjá Hömrunum. Gestur þáttarins er Ólafur Jóhann Magnússon fyrrum Íslandsmeistari með Fram í handbolta og áður markvörður í fótbolta. Dagskráin: Þór mín: 0-23 (Þór/KA 24. mín) Ma...
Jul 01, 2020
Liverpool tryggði sér enska meistaratitilinn í fyrsta skipti í 30 ár í síðustu viku.
Jul 01, 2020
Strákarnir í Fantabrögðum fundu stund milli stríða og fóru yfir stöðuna í íslenska og enska boltanum. Fyrsta góða umferðin í Eyjabitanum leit dagsins ljós þar sem m.a. voru skoraðar tvær þrennur. Aron tók Wildcard, bæði í draumaliðsdeildum Eyjabita og 50 skills, en þó með misgóðum árangri. Gylfi hélt tryggð við Fylkismenn sem gaf vel. Manchester United líta vel út og spurning hvort þetta sé ekki tíminn til að taka inn þrjá leikmenn frá þeim. FPL: 00:00 50skills: 25:35 Eyjabiti: 54:45
Jun 30, 2020
Allir leikir 3. umferðar Pepsi Max-deildarinnar eru skoðaðir í Innkastinu... allir nema Stjarnan - KA. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson eru í þættinum að þessu sinni. Meðal efnis: Óttar maður umferðarinnar, boltakrakki í sviðsljósinu, FH fékk skell, Grótta vill ekki skora, ferli Helga Vals líklega lokið, Blikar á sigurbraut, Pepsi Max í skimun, Lalli ósáttur, Valur með yfirlýsingu, Palli Pedersen með þrennu, dómaraglens, Jói Kalli skýtur á KR.
Jun 29, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um Liverpool, kom í heimsókn og gerði upp tímabilið hjá Liverpool. Hann valdi besta leikmanninn, besta leikinn, verstu stundina og skoðaði hvar liðið gæti bætt sig fyrir næsta tímabil. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Jun 27, 2020