Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Innkastið - 65% líkur á sæti á HM

Ísland komst upp að hlið Króatíu á toppi riðilsins með 1-0 sigri í uppgjöri toppliðanna í kvöld. Hörður Björgvin Magnússon skoraði eina markið undir lokin eftir hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net, og Magnús Már Einarsson settust niður á Laugardalsvelli eftir leik og fóru yfir leikinn. Í þættinum.... Frábær varnarleikur Íslands, öxlin hans Harðar, likurnar á sæti á HM, betri blanda en malt og appelsín, Modric hvarf og var síðan afklæddur, stemning...

Jun 11, 2017

Viðar Örn: Þessi umræða truflaði mig

Viðar Örn Kjartansson, framherji Maccabi Tel Aviv, er ekki í íslenska landsliðshópnum sem mætir Króatíu á sunnudaginn. Viðar byrjaði gegn Kósóvó í mars en hann var síðan ekki valinn í hópinn fyrir stórleikinn á sunnudaginn.

Jun 08, 2017

Landsliðshópurinn gegn Króatíu til umræðu

Á föstudaginn tilkynnti Heimir Hallgrímsson landsliðshópinn sem mætir Króatíu í stórleik á Laugardalsvelli næstkomandi sunnudag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um hópinn í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn. Fjarvera Theódórs Elmars Bjarnasonar og Viðars Arnar Kjartanssonar var meðal annars til umræðu.

Jun 06, 2017

Pepsi-hringborðið - Ítarleg upphitun fyrir 5. umferðina

Framundan er 3. umferð Pepsi-deildarinnar og var hitað vel upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Gestur var Grétar Sigfinnur Sigurðarson, sérfræðingur þáttarins. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu við Grétar um helstu tíðindi deildarinnar og spáðu í spilin fyrir komandi umferð.

May 27, 2017

Innkastið - Lokahóf ensku deildarinnar

Það er komið að Evrópu-Innkastinu en í þessum þætti er rætt um sigur Manchester United í Evrópudeildinni og enska úrvalsdeildin gerð upp. Farið er lauslega yfir tímabil allra liða í deildinni.

May 25, 2017

4. umferð Pepsi skoðuð og rætt um stórtíðindin úr Víkinni

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hituðu upp fyrir 4. umferð Pepsi-deildarinnar á X-inu í dag. Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur þáttarins, var á línunni. Rætt var um stóru fréttirnar úr Fossvoginum en Milos Milojevic varð í gær annar þjálfarinn í deildinni sem hverfur á braut.

May 20, 2017

Enska hringborðið - Tímabilið gert upp með Tryggva og Kristjáni

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson héldu að vanda um stjórnartaumana í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Enska hringborðið var dregið fram. Komin er inn upptaka af hringborðinu en sérfræðingar þáttarins, Tryggvi Páll Tryggvason af raududjoflarnir.is og Kristján Atli Ragnarsson af kop.is fóru yfir tímabilið og völdu úrvalslið tímabilsins og fleira.

May 20, 2017

Pepsi-hringborðið - Ítarleg upphitun fyrir 3. umferðina

Framundan er 3. umferð Pepsi-deildarinnar og var hitað vel upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Gestur var Grétar Sigfinnur Sigurðarson, sérfræðingur þáttarins. Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon ræddu helstu tíðindi deildarinnar og spáðu í spilin fyrir komandi umferð.

May 13, 2017

Inkasso-yfirferð með Davíð Snorra

Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, er útvarpsþættinum Fótbolti.net til halds og trausts þegar kemur að því að fylgjast með Inkasso-deildinni. Annarri umferð deildarinnar er að ljúka og var farið yfir málin í þættinum í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Davíð og er hægt að heyra umræðuna í spilaranum hér að ofan.

May 13, 2017

Ítalski boltinn - Juventus

Í vikunni komst Juventus í úrslitaleik meistaradeildarinnar og er því við hæfi að podcast vikunnar fjalli um la vecchia signora - Gömlu dömuna. Liðið er sigursælasta félagslið Ítalíu frá upphafi og hefur unnið ítölsku deildina síðastliðin fimm ár. Í þættinum verður fjallað um skrautlegu eigendafjölskyldu liðsins, Danina tvo sem léku með Juventus og hétu sama nafni, stórkostlega markmannssögu félagsins og auðvitað einn besta leikmann félagsins frá upphafi sem var einmitt frá Wales, þar sem úrslit...

May 12, 2017

Innkastið - Vinavellir hrópa á Ajax og Man Utd

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir dramatískt Evrópudeildarkvöld og ræddu ýmislegt fleira í Evrópu-Innkasti kvöldsins. Daníel var með fréttaskýringu varðandi baráttuna um að enda í topp fjórum í ensku úrvalsdeildinni og Elvar fór yfir uppgang Ajax og ferð sína til Englands.

May 11, 2017

Championship-Innkastið - Áhugaverðir eigendur og stórveldi með peninga

Keppni í ensku Championship deildinni lauk um helgina eftir maraþon tímabil. Newcastle og Brighton eru komin upp í ensku úrvalsdeildina en framundan er umspil hjá Reading, Sheffield Wednesday, Huddersfield og Fulham um síðasta lausa sætið. Gunnar Sigurðarson, Gunnar á völlum, og Viðar Ingi Pétursson fylgjast með hverju sparki í Championship deildinni. Magnús Már Einarsson settist niður með þeim og fór yfir tímabilið í ástríðunni í Championship.

May 11, 2017

Gummi Tóta vonast til að geta gefið út fleiri lög

Guðmundur Þórarinsson var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu á laugardaginn. Þar ræddi hann meðal annars frabært mark sem hann skoraði í 3-3 jafntefli Norrköping og Djurgarden í sænsku úrvalsdeildinni á dögunum. Guðmundur telur að markið sé það flottasta á ferlinum hingað til.

May 08, 2017

Ítalski boltinn - Calcio, trequartista, regista, metronome

Ítalski boltinn er Podcast í umsjón Björns Más Ólafssonar. Í hverjum þætti er fjallað ítarlega um eitt ítalskt knattspyrnulið á Ítalíu. Farið er yfir sögu félagsins, menningu og áhugaverðar staðreyndir.

May 05, 2017

Innkastið - Lambabaka, markaleysi, fall og dýfur

Daníel Geir Moritz reif sig upp úr veikindum til að fara yfir boltann með Elvari Geir Magnússyni í Evrópu-Innkasti vikunnar. Daníel var um helgina á leik Crystal Palace og Burnley og kom með skýrslu frá þeirri ferð þar sem hann smakkaði meðal annars lambaböku.

May 03, 2017
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android