Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Innkastið - Hátíð hjá Wenger og Fáskrúðsfirðingum

Það er komið að þriðja þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en fótboltahelgin er gerð upp. Í þessum þætti er enski boltinn í brennidepli fyrri hlutann en í þeim síðari er íslenski boltinn til umfjöllunar.

Sep 26, 2016

Gummi Steinars skoðar spennandi 21. umferð

Næst síðasta umferð Pepsi-deildar karla fer fram á morgun en allir leikirnir verða á sama tíma. Það er spennandi umferð framundan en Guðmundur Steinarsson rýndi í umferðina með Elvari og Tómasi í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag.

Sep 24, 2016

Addó: Erum tilbúnir fyrir skrefið upp

Lokaumferð 2. deildar karla fer fram í dag. Það verða hátíðarhöld í Breiðholtinu þar sem ÍR-ingar fá bikarinn fyrir sigur í deildinni eftir leik gegn Aftureldingu. ÍR hefur verið í 2. deild síðan liðið féll úr 1. deild 2012.

Sep 24, 2016

Innkastið - Agabönn, Evrópa og þjálfaramál

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson gera upp 20. umferð Pepsi-deildarinnar í hljóðvarpsþættinum Innkastið þennan þriðjudaginn. Umferðin var áhugaverð. FH innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn og Þróttur féll endanlega. Það er þó enn mikil spenna í Evrópubaráttunni og óljóst hverjir fara með Þrótturum niður.

Sep 20, 2016

Bestur í 19. umferð: Býst við að fara aftur út eftir tímabilið

„Ég hef kannski ekki beint svarið við því hver ástæðan er, svona fór þetta bara, en ég á eitt ár eftir og ég býst við því að ég fari aftur út eftir tímabilið," sagði Árni Vilhjálmsson, framherji Breiðabliks, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Hann var þarna að ræða um dvöl sína hjá Lilleström í Noregi, en hann er í láni hjá Breiðablik út þetta leiktímabil. Árni er leikmaður 19. umferðar í Pepsi-deildinni, en hann skoraði tvívegis í 3-0 sigri Blika á Valsmönnum á fimmtudagskv...

Sep 17, 2016

Lið 19. umferðar: Toppliðin áberandi

Efstu þrjú liðin í Pepsi-deildinni skipa stóran sess í úrvalsliði umferðarinnar að þessu sinni. Arnar Grétarsson er þjálfari umferðarinnar eftir 3-0 útisigur Breiðabliks á Val. Árni Vilhjálmsson og Gísli Eyjólfsson eru báðir í liðinu en þeir sáu um markaskorun Blika í leiknum.

Sep 17, 2016

EM-partí úr útvarpinu - Sif, Berglind og Guðbjörg

Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér í gær sæti í lokakeppni Evrópumótsins. Stelpurnar hafa þó ekki náð markmiðum sínum að vinna riðilinn. Framundan er toppslagur gegn Skotlandi á Laugardalsvelli á þriðjudag.

Sep 17, 2016

Kristján Atli gerir upp leik Chelsea og Liverpool

Kristján Atli Ragnarsson á vefsíðunni kop.is var á línunni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Hann fór yfir 2-1 útisigur Liverpool gegn Chelsea ásamt Elvari og Tómasi.

Sep 17, 2016

Innkastið - Fallfnykur og Stjörnuströggl

19. umferð Pepsi-deildarinnar fer fram á einu bretti á morgun en óhætt er að segja að fallbaráttan sé orðin galopin. Í Innkastinu er umferðin skoðuð af fréttariturum Fótbolta.net. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson skoða leikina og stöðu mála.

Sep 14, 2016

Innkastið - Fyrsta Evrópuferð tímabilsins

Það er komið að fyrsta þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið. Síðasta tímabil var einblínt á Meistaradeildina en nú eru nýjar áherslur og þátturinn er á dagskrá vikulega, í upphafi nýrrar vinnuviku.

Sep 12, 2016

Matti Villa: Eiginlega of létt

Matthías Vilhjálmsson og félagar í Rosenborg hafa algjöra yfirburði í norsku úrvalsdeildinni en liðið náði þó ekki að komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Rosenborg, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær.

Sep 11, 2016

Guðmann: Annar hver maður var grátandi

„Þetta hefur verið hrikalega skemmtilegt sumar," segir varnarmaðurinn Guðmann Þórisson en hann hefur verið lykilmaður í liði KA á Akureyri sem trónir á toppi Inkasso-deildarinnar. Guðmann var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í gær. KA hefur þegar tryggt sér sæti í Pepsi-deildinni á næsta ári og skiljanlega ríkir mikil gleði í gula hluta Akureyrar.

Sep 11, 2016

Tryggvi Páll gerir upp leik United og City

Hádegisleikurinn í enska boltanum var stórleikur Manchester United og Manchester City. Þar unnu gestirnir í City 2-1 sigur. Fótbolti.net fékk Tryggva Pál Tryggvason á raududjoflarnir.is til að gera leikinn upp. Að hans mati var Paul Pogba stóru vonbrigði leiksins. Hlustaðu á hans sýn á þennan leik í spilaranum hér að ofan.

Sep 10, 2016

Gummi Steinars rýnir í komandi leiki í Pepsi

Guðmundur Steinarsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, fór yfir 18. umferðina í Pepsi-deildinni í dag. Umferðin hefst í dag með tveimur leikjum. Guðmundur ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um komandi leiki og er hægt að heyra spjallið í spilaranum hér að ofan. Einnig er rætt aðeins um íslenska landsliðið og ferðalag þess til Úkraínu.

Sep 10, 2016

Óli Kristjáns: Mér líður betur í þessum klúbb

Randers hefur byrjað vel í dönsku úrvalsdeildinni undir stjórn Ólafs Kristjánssonar. Eftir sjö umferðir er Randers með 14 stig, stigi á eftir toppliði Bröndby. Ólafur var í löngu viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net um helgina. „Við höfum verið mjög solid í varnarleik og ekki gefið mikið af færum og mörkum á okkur. Það hefur verið erfitt að spila á móti okkur. VIð höfum fengið næstfæst mörk á okkur á eftir FC Kaupmannahöfn. Við höfum verið að vinna þessa 1-0 sigra," sagði Ólafur í viðtali við ...

Sep 05, 2016

Oliver Sigurjóns: 1-0 ljótur sigur var sanngjarn

Oliver Sigurjónsson, leikmaður Breiðabliks og U-21 árs liðs Íslands spjallaði við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag. Hann talaði um 1-0 sigur liðsins á Norður-Írum í gær en liðið er í mjög góðri stöðu eftir sigurinn.

Sep 03, 2016

Innkastið - Ástríðubolti í Championship

Keppni í ensku Championship deildinni er hafin en langt og strangt tímabil er framundan þar. Gunnar Sigurðarson og Viðar Ingi Pétursson eru miklir áhugamenn um Championship deildina. Þeir ræddu við Fótbolta.net um deildina og skoðuðu meðal annars gömul stórveldi sem þar eru. Fjórir íslenskir leikmenn verða í eldlínunni í Championship deildinni í vetur en það eru Aron Einar Gunnarsson (Cardiff), Hörður Björgvin Magnússon (Bristol City), Jón Daði Böðvarsson (Wolves) og Ragnar Sigurðsson (Fulham)....

Aug 30, 2016

Tómas Ingi vill sjá breytingar á reglum um erlenda leikmenn

Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðs karla, vill sjá reglur til að fækka erlendum leikmönnum í Pepsi-deildinni. Tómas Ingi telur að ungir leikmenn séu að tapa alltof miklum spiltíma á því hversu margir erlendir leikmenn eru í deildinni.

Aug 29, 2016

Kristinn Freyr: Ég er skapstór og tapsár

Kristinn Freyr Sigurðsson, miðjumaður Vals, hefur verið á miklu flugi í Pepsi-deildinni og sú staðreynd að hann hefur verið fimm sinnum í röð í úrvalsliði umferðarinnar segir sitt. Kristinn kom í stórskemmtilegt spjall í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Kristinn lyfti bikarnum annað árið í röð með Valsmönnum nýlega en eftir þann titil hafa fylgt 7-0 og 4-0 sigrar í deildinni. Kristinn segir að það sé ekki erfitt að mótivera sig þrátt fyrir að bikar og Evrópusæti séu í höfn.

Aug 28, 2016

Gummi Steinars rýnir í komandi umferð í Pepsi

Guðmundur Steinarsson er sérfræðingur útvarpsþáttar Fótbolta.net í Pepsi-deild karla. Guðmundur var á línunni í hádeginu og rýndi í komandi leiki í deildinni en 17. umferðin hefst í dag.

Aug 27, 2016

Innkastið - Game Over í Pepsi

Leikirnir sex sem voru í 16. umferf eru skoðaðir í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Ingólfur Sigurðsson voru við hljóðnemana að þessu sinni.

Aug 23, 2016

Eyjólfur Héðins: Mætti með samviskubit hvern einasta dag

Eftir erfiða baráttu við meiðsli síðustu ár er Eyjólfur Héðinsson kominn á gott ról og hefur byrjað síðustu þrjá leiki í Pepsi-deildinni. Ljóst er að margir hefðu gefist upp í sömu stöðu og Eyjólfur var í.

Aug 22, 2016

Freyr Alexandersson við Pepsi-hringborðið

Freyr Alexandersson sat við Pepsi-hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær. Hlustaðu á upptöku af yfirferðinni í spilaranum hér að ofan.

Aug 21, 2016

Innkastið - Of margir leiðinlegir leikir

Fjórum leikjum í 15. umferð Pepsi-deildar karla er lokið en þeir eru skoðaðir í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Íþróttafréttamennirnir Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson voru við hljóðnemana. Einnig var rætt um bikarúrslitaleik Vals og ÍBV sem fram fór á laugardag.

Aug 16, 2016

Enska Innkastið - Chelsea

Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á laugardaginn og Fótbolti.net er þessa dagana að hita upp fyrir deildina.

Aug 11, 2016
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android