Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Innkastið - Fyrsta umferð í Pepsi með TG9

Hljóðvarpsþátturinn Innkastið verður á dagskrá í kringum Pepsi-deildina í sumar en í þessu fyrsta Pepsi-Innkasti var farið yfir fyrstu umferð deildarinnar.

May 03, 2016

Freysi skoðar umferðina: Sér óvænt úrslit í Kópavogi

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari og fyrrum þjálfari Leiknis, mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og fór yfir fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar með Tómasi Þór Þórðarsyni og Elvari Geir Magnússyni. Hlustaðu á umræðuna í spilaranum hér að ofan.

May 01, 2016

Haukur Páll mætti og tók Tíuna: McManaman hetjan

Haukur Páll Sigurðsson, miðjumaður og fyrirliði Vals, mætti í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net í gær en Pepsi-deildin hefst í dag með fjórum leikjum. Valur mætir Fjölni í leik sem hefst klukkan 20:00 í kvöld.

May 01, 2016

Guðmann: Ég og Heimir töluðum saman eins og menn

„Ég er gífurlega spenntur fyrir sumrinu með KA. Það var orðið þannig að ég var ekki inni í myndinni hjá Heimi (Guðjónsson) fyrir byrjunarliðssæti. Ég þarf að virða það, Heimir er góður þjálfari. Mér finnst ég vera það góður hafsent að ég eigi ekki að vera á bekknum neinsstaðar," sagði Guðmann Þórisson í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 nú rétt í þessu. Guðmann er kominn til KA á láni frá FH. KA á einnig forkaupsrétt á Guðmanni í haust.

Apr 30, 2016

Pepsi-hringborðið: Öll liðin tólf skoðuð

Það er vika í að flautað verði til leiks í Pepsi-deildinni. Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag var hitað upp fyrir deildina við Pepsi-hringborðið sem heyra má í heild sinni í spilaranum.

Apr 28, 2016

Innkastið - Meistaradeildin: Allt í járnum

Fyrri leikir undanúrslita Meistaradeildar Evrópu eru að baki en þeir voru til umræðu í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Manchester City og Real Madrid gerðu markalaust jafntefli í gær en í kvöld vann Atletico Madrid 1-0 sigur gegn Bayern München.

Apr 27, 2016

Heimir Guðjóns: Ekkert til í þessu sem Óli Jó sagði

Fótbolti.net spáir því að FH-ingar verði Íslandsmeistarar annað árið í röð. „Þetta kemur bæði og á óvart. Það eru mörg lið búin að styrkja sig. KR, Stjarnan, Breiðablik, Valur og Víkingur hafa styrkt sig mikið. Mannskapslega séð þá held ég að deildin hafi sjaldan eða aldrei verið jafn sterk," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH við Fótbolta.net í dag.

Apr 25, 2016

Rúnar Páll: Það verður alltaf einhver óánægður

„Við erum með ágætis hóp og höfum styrkt okkur ágætlega. Það er fín blanda af ungum og reyndum leikmönnum og við erum bjartsýnir á tímabilið. Það þarf að hafa mikið fyrir því að ná árangri og við erum svo sannarlega tilbúnir í það," segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar.

Apr 25, 2016

Bjarni Guðjóns: Líður betur með hópinn núna

„Við ætlum okkur meiri hluti en 3. sætið," segir Bjarni Guðjónsson þjálfari KR um spá Fótbolta.net. KR endaði í 3. sæti í Pepsi-deildinni í fyrra og Fótbolti.net spáir liðinu sama sæti í ár.

Apr 22, 2016

Arnar Grétars: Erum með ákveðna launaflokka

„Frammistaða okkar í vetur hefur ekki verið nógu góð og við höfum ekki spilað vel. Þetta kemur mér því alls ekki á óvart," segir Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks en liðinu er spáð 4. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Apr 21, 2016

Óli Jó: Eigum ekki séns í FH, KR og Stjörnuna

„Spáin kemur ekki á óvart. Ég held að þetta sé mjög eðlilegt," segir Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, um spá Fótbolta.net en þar er liðinu spáð 5. sæti í sumar. „Við þurfum að setja okkur markmið miðað við hvað er að ske í þessari deild. Það eru önnur lið sem eru öflugri heldur en við og leggja meira til málana. Það er erfitt fyrir okkur að keppa við það. Þau eru að eyða meiri pening en við. Þau hafa úr meiru að spila en við. Ef þú lítur á leikmannahópana þá eru þeir stærri en okkar hópar og þ...

Apr 20, 2016

Milos: Lofa því að við verðum í topp þremur í haust

„Ég átti von á því að við myndum vera í miðjunni því fyrstu fimm sætin eru frátekin. Þetta kemur mér ekki á óvart," sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings R., eftir að honum var tilkynnt að liðinu er spáð 6. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. „Markmiðið er að gera mjög vel og enda í topp þremur. Það var slys að vera í botnbaráttu í fyrra og afleiðing af því að við vorum að keppa í Evrópukeppni og vorum ekki með nógu stóran hóp í það." „Ég lofa því að við verðum í topp þremur í haust, 100%. Annars ...

Apr 20, 2016

Ejub: Hjálpum leikmönnum sem hafa verið í vandræðum

Nýliðarnir í Víkingi Ólafsvík eru í ellefta sæti í spá fyrir Pepsi-deildina. Þeir voru í æfingaferð á Spáni þegar lið þeirra var kynnt en þjálfarinn, Ejub Purisevic, heimsótti skrifstofu Fótbolta.net í dag og má heyra viðtal við hann í spilaranum hér að ofan.

Apr 19, 2016

Bjarni Jó: Oft kærusturnar sem stoppa þetta

„Þetta er ekkert óeðlilegt. Þetta er svipuð staða og menn enduðu í fyrra. Fótbolta.net mótið hressti aðeins upp á sálarlífið og trú manna á að við getum náð aðeins betri árangri en í fyrra," segir Bjarni Jóhannsson þjálfari ÍBV en Fótbolti.net spáir liðinu 8. sæti í Pepsi-deildinni í ár. „Markmiðið er að losa sig við þessa botnbaráttu. Það er svo lítið á milli, að vera í ströggli eða vera í góðum málum. Góð byrjun geta fleytt mönnum langt og komið sjálfstraust í menn. Okkar markmið er fyrst og f...

Apr 19, 2016

Gústi Gylfa: Þetta mót verður eins og enska deildin

„Það eru miklar mannabreytingar hjá okkur í ár. Við höfum misst 7-8 leikmenn og fengið aðra í staðinn. Það verður áskorun að búa til gott lið út úr þessu," sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis við Fótbolta.net í dag en liðinu er spáð 9. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Apr 18, 2016

Gulli Jóns: Fólk á Akranesi vill þetta

„Við höfum verið að spila ágætlega í vetur en blaðamenn Fótbolta.net horfa örugglega í að við höfum ekki fengið risa liðsstyrk. Ég held að við getum að mörgu leyti farið undir radarinn," segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, en liðinu er spáð 10. sæti í Pepsi-deildinni í sumar hjá Fótbolta.net.

Apr 15, 2016

Innkastið - Meistaradeildin: Rosalegur Ronaldo

Fjallað er um seinni leiki 8-liða úrslita Meistaradeildarinnar í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru með Innkast um Meistaradeildina í hverri leikviku keppninnar.

Apr 13, 2016

Grétar Sigfinnur: Menn finna blóðbragðið

Varnarmaðurinn reyndi Grétar Sigfinnur Sigurðarson gekk í raðir Stjörnunnar í vetur eftir sigursæl ár hjá KR. Grétar kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu á laugardag síðasta laugardag og má heyra viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan. Grétar berst ásamt Daníel Laxdal og Brynjari Gauta Guðjónssyni um miðvarðastöðurnar tvær í Garðabænum.

Apr 12, 2016

Grobbelaar: Staða Liverpool undir stjórn Klopp mjög góð

Bruce Grobbelaar var aðalmarkvörður Liverpool í þrettán ár og varð sex sinnum Englandsmeistari með liðinu, bikarmeistari þrívegis og Evrópumeistari einu sinni. Grobbelaar var hér á landi á vegum Liverpool-klúbbsins um síðustu helgi.

Apr 12, 2016

Innkastið - Meistaradeildin: Hallur Halls um Man City

Fjallað er um fyrri leiki 8-liða úrslita Meistaradeildarinnar í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru með Innkast um Meistaradeildina í hverri leikviku keppninnar.

Apr 06, 2016

Gregg Ryder: Markmið að koma Þrótti í Evrópukeppni á næstu árum

„Ég er sannfærður um að við munum gera vel, þvert gegn því sem veðbankar segja," sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, í mjög skemmtilegu viðtali við Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn. Þróttarar komust upp í Pepsi-deildina í fyrra en úrslitin á undirbúningstímabilinu hafa verið allt annað en góð. Gregg er þó bjartsýnn fyrir sumarið og bendir á að liðið hafi heldur ekki náð góðum úrslitum á undirbúningsmótunum fyrir ári síðan.

Apr 04, 2016

Hvaða 23 leikmenn fara með Frakklands?

Íslenska landsliðið var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær eins og oft áður. Rætt var um hvaða 23 leikmenn verða í lokahópnum sem fer til Frakklands og litið á landsleikinn gegn Grikklandi sem var síðasta þriðjudag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu málin og spjölluðu einnig við Magnús Már Einarsson sem var á leiknum í Aþenu.

Apr 03, 2016

Kristján Guðmunds um landsliðið: Gleðina vantaði

Íslandi gengur erfiðlega að vinna vináttulandsleiki en síðasta fimmtudagskvöld tapaðist leikurinn gegn Dönum í Herning 2-1. Kristján Guðmundsson, þjálfari Leiknis, fór yfir leikinn með Tómasi og Elvari í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.

Mar 26, 2016

Arnór Ingvi: Er með sjálfstraustið í botni

„Þetta var kannski ekki okkar besti leikur, en það var sætt að setja eitt í lokin,“ sagði Arnór Ingvi Traustason í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Arnór Ingvi skoraði mark Íslands í 2-1 tapinu gegn Dönum síðastliðinn fimmtudag, en Arnór hefur stimplað sig vel inn í íslenska landsliðshópinn.

Mar 26, 2016
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android