Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu góðan gest í Innkasti vikunnar. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, fór yfir öll helstu málin tengd félaginu. Er Conte vinsæll hjá stuðningsmönnum og hvenær yfirgefur hann félagið? Getur Chelsea slegið út Barcelona í Meistaradeildinni? Myndi Jóhann skipta út Eden Hazard fyrir Kevin De Bruyne í dag? Einnig voru aðrir leikir helgarinnar skoðaðir, þar á meðal tap Arsenal gegn Tottenham, tap Man United gegn Newcastle og flott frammistaða Firm...
Feb 12, 2018
Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, er einn skemmtilegasti viðmælandinn í íslenskum fótbolta. Hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um boltann, Stjörnuna, gervigras og fleira. Þá var spjallað um hans gömlu félaga í Östersund í Svíþjóð sem eru að fara að mæta Arsenal í Evrópudeildinni næsta fimmtudag.
Feb 11, 2018
Russell Osman lék á sínum tíma ellefu landsleiki fyrir England en þessi fyrrum leikmaður Ipswich, Leicester og Southampton starfar nú sem sparkspekingur í indverska sjónvarpinu. Þar fjallar hann um indversku Ofurdeildina og allt sem að henni snýr. Rætt var við Osman í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Augu íslenskra fótboltaáhugamanna hafa beinst frekar að indverska boltanum eftir að Guðjón Baldvinsson var lánaður í Kerala Blasters en þar leikur hann með Dimitar Berbatov.
Feb 11, 2018
Fjölnismenn urðu Reykjavíkurmeistarar í fótbolta í vikunni þegar þeir unnu sigur á Fylki í úrslitaleik. Þá endurheimti félagið Bergsvein Ólafsson og Guðmund Karl Guðmundsson sem eiga vafalítið eftir að styrkja hóp þeirra vel. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gerðu Fjölnisvikuna upp í útvarpsþættinum og ræddu meðal annars við Herra Fjölni, Gunnar Már Guðmundsson sem nú er aðstoðarþjálfari.
Feb 10, 2018
Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson spjölluðu um íslenskan fótbolta í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Rætt var um Lengjubikarinn, hvernig má bæta undirbúningstímabilið og hvernig er peningunum best varið í íslenskum kvennafótbolta? Tómas Þór sagði frá pælingum sínum og í lokin var heyrt í Bjarna Jóhannssyni, þjálfara Vestra, varðandi fyrirkomulag undirbúningsmóta.
Feb 10, 2018
Enski boltinn er helsta umræðuefnið í Evrópu-Innkastinu. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir helstu tíðindin og leiki úrvalsdeildarinnar. Jóhann Ólafsson, fréttamaður mbl.is og stuðningsmaður Tottenham, er gestur vikunnar.
Feb 05, 2018
Eftir hlé er Björn Már Ólafsson mættur aftur með podcast þættina um ítalska boltann sem slógu í gegn á síðasta tímabili.
Feb 05, 2018
Danski varnarmaðurinn Rasmus Christiansen kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Þessi geðþekki leikmaður varð Íslandsmeistari með Val í fyrra. Hann ræddi við Elvar og Tómas um samkeppnina í Valsliðinu og lífið innan sem utan vallar.
Feb 04, 2018
Gunnar Jarl Jónsson kom í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og spjallaði við Elvar og Tómas. Gunnar hefur ákveðið að leggja flautuna á hilluna og telur líklegra en ekki að hún muni verða þar áfram. Hann hefur verið einn allra besti dómari Íslands um margra ára skeið.
Feb 04, 2018
Evrópu-Innkastið þessa vikuna er með gluggaþema! Farið er yfir félagaskiptagluggann og helstu tíðindin. Einnig var nýliðin umferð í ensku úrvalsdeildinni til umræðu þar, bikarinn, myndbandsdómgæsla, vandræði Dortmund og fleira. Spennan magnast í slagnum um Meistaradeildarsæti og i fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru umsjónarmenn þáttarins.
Jan 31, 2018
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var gestur vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rúnar ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Belgíska landsliðið, endurkoman til KR, tímabilið framundan á Íslandi og möguleikar íslenskra þjálfara var meðal þess sem kom til tals.
Jan 27, 2018
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu helstu fótboltafréttir vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hjörvar Hafliðason var á línunni og skoðaði viðskipti Manchester United og Arsenal sem skiptu á Alexis Sanchez og Henrikh Mkhitaryan.
Jan 27, 2018
Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Benedikt Bóas Hinriksson eru ferskir í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Skiptidíllinn með Alexis Sanchez og Henrikh Mkhitaryan var að sjálfsögðu ræddur.
Jan 22, 2018
Er glórulaust að spá fyrir um deildina í janúar? Já vissulega en það er skemmtilegt og því var opinberuð janúarspá útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Hvernig er spáin miðað við leikmannahópa liðanna í dag? Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu stöðu mála. Þá var haldið áfram að taka púlsinn á liðum Pepsi-deildarinnar. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, var á línunni.
Jan 20, 2018
Landsliðshringborðið var dregið fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Á miðvikudaginn verður dregið í Þjóðadeildina en ljóst er að Ísland verður þar með stórþjóðum í riðli enda í efsta styrkleikaflokki eftir magnaðan árangur síðustu ár. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Gunnar Gylfason, starfsmann KSÍ, sem er helsti sérfræðingur Íslands um þetta nýja mót. Gunnar útskýrði fyrirkomulagið.
Jan 20, 2018
Það er komið að Innkasti vikunnar. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu sér kaffibolla og ræddu það helsta sem er í gangi í Evrópufótboltanum. Runólfur Trausti Þórhallsson, stuðningsmaður Manchester United, er gestur í Innkastinu að þessu vikuna. Rætt var um Liverpool - Manchester City, Manchester United - Stoke, helstu tíðindin í glugganum, erfiðleika Arsenal og ýmislegt fleira.
Jan 15, 2018
Guðlaugur Baldursson, þjálfari Keflavíkur, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Benedikt Bóas og Elvar Geir um Keflavík og baráttuna í Pepsi-deildinni. Keflvíkingar komust upp úr Inkasso-deildinni í fyrra og eru mættir aftur í deild þeirra bestu.
Jan 15, 2018
Real Madrid er langt á eftir Barcelona í spænsku deildinni og ljóst að liðið á ekki möguleika á því að verja titil sinn. Lykilmenn hafa verið ósannfærandi og eftir blómlega byrjun þarf Zinedine Zidane að stýra Madrídingum út úr veseni. Það er þó ekki eintómt svartnætti hjá liðinu. Í Meistaradeildinni hefur liðið náð að sýna sínar bestu hliðar og mætir PSG í 16-liða úrslitum í næsta mánuði. Fjölmiðlamaðurinn Benedikt Valsson er mikill aðdáandi Real Madrid og hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.n...
Jan 13, 2018
Helstu tíðindin úr enska boltanum og hitað upp fyrir Tottenham - Everton og Liverpool - Manchester City. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Magnús Már ræddu um enska boltann í útvarpsþættinum á X977.
Jan 13, 2018
Ísland mætir landsliði Indónesíu í vináttulandsleik í Jakarta á morgun sunnudag. Á fimmtudag var leikið gegn úrvalsliði indónesísku deildarinnar og vannst þar 6-0 sigur. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari býst við erfiðari leik gegn öflugri leikmönnum á morgun en mikill áhugi er fyrir leiknum í Indónesíu. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Guðlaugur Baldursson ræddu um þetta landsliðsverkefni í útvarpsþættinum og þá var hringt út þar sem Heimir sjálfur var á línunni.
Jan 13, 2018
Evrópu-Innkastið er mætt aftur á nýju ári. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz gerðu upp jólatörnina í þessum fyrsta þætti ársins 2018. Hvert lið í ensku úrvalsdeildinni fékk einkunn fyrir frammistöðu sína innan sem utan vallar í jólatörninni. Stjóraskipti, Coutinho, völvuspá, markarýrð Ronaldo og margt fleira kemur til tals í þættinum.
Jan 08, 2018
Miðjumaðurinn Oliver Sigurjónsson er enn að glíma við erfið meiðsli en hann gekk í raðir norska liðsins Bodö/Glimt frá Breiðabliki í júlí síðastliðnum. Hann gat ekki spilað mikið á sínu fyrsta tímabili með norska liðinu en það vann B-deildina með yfirburðum og leikur í úrvalsdeildinni í ár.
Jan 07, 2018
„Ég er mjög ánægður með þessa viðbót við hópinn," segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, um þá tvo nýju leikmenn sem Akureyringar fengu um hátíðarnar. Spænski markvörðurinn Cristian Martínez kom frá Víkingi Ólafsvík og miðvörðurinn Hallgrímur Jónasson er kominn heim úr atvinnumennskunni og gekk í raðir KA.
Jan 07, 2018
Það var nóg að ræða við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góðan gest. Magnús Þór Jónsson af kop.is kom í gasklefann. Umræða um Liverpool tók vænan tíma. Tilraunir Barcelona til að fá Coutinho, kaupin á Van Dijk og ásakanir á hendur Firmino komu við sögu.
Jan 06, 2018
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net var á sínum stað á X977 en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hófu þáttinn á því að fara yfir helstu fréttirnar í upphafi árs úr íslenska boltanum. Indónesíuferðin, landsleikirnir í mars, kvennalandsliðið og Dagný Brynjarsdóttir, vetrarmótin, Björn Bergmann Sigurðarson og fleira koma við sögu í spjalli þeirra.
Jan 06, 2018
Veglegur áramótaþáttur þar sem fótboltaárið 2017 var gert upp á X977. Umsjónarmenn: Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson. Meðal viðmælenda: Aron Einar Gunnarsson, Andri Rúnar Bjarnason, Einar Örn Jónsson, Davíð Snorri Jónasson og Tómas Meyer. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum og gleðin var við völd.
Dec 31, 2017
Annað fjórðungsuppgjör ensku úrvalsdeildarinnar var á dagskrá á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu góðan gest í hljóðver, Kristján Atla Ragnarsson sérfræðing um Liverpool. Tryggvi Páll Tryggvason af raududjoflarnir.is var á línunni frá Akureyri og Benedikt Bóas Hinriksson flutti tíðindi úr El Clasico. Valið var úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar hingað til, besti leikmaðurinn og mestu vonbrigðin.
Dec 23, 2017
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann í síðasta Innkasti ársins. Innkastið var tekið upp strax eftir 3-1 sigur Everton gegn Swansea í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði gegn gömlu félögunum. Í þættinum var sett saman úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar hingað til og spáð í spilin fyrir fallbaráttuna.
Dec 18, 2017
Myndbandsdómgæslan er að ryðja sér til rúms í fótboltanum. Sitt sýnist hverjum en ljóst að tæknin er komin til að vera á efstu stigum íþróttarinnar. Þegar er farið að nota myndbandsdómgæslu í ítalska og þýska boltanum og tilraunir voru gerðar með fyrirkomulagið á HM félagsliða. Allt stefnir í að myndbandsdómgæsla verði notuð á HM í Rússlandi næsta sumar. Kristinn Jakobsson, formaður dómaranefndar KSÍ, ræddi um kosti og galla myndbandsdómgæslunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
Dec 18, 2017
Á föstudaginn var opinberaður landsliðshópur Íslands sem fer til Indónesíu í janúar og leikur tvo leiki gegn heimamönnum, 10. og 14. janúar. Ekki er um opinberan landsleikjadag að ræða svo hópurinn er að stærstum hluta skipaður leikmönnum sem spila í Skandinavíu. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Sigurbjörn Hreiðarsson um hópinn, verkefnið framundan og þá leikmenn sem ekki fengu kallið. Þá var hringt í Böðvar Böðvarsson, leikmann FH, sem er meðal leikmanna úr Pepsi-deildinni sem eru í hópnum....
Dec 18, 2017