Ein Pæling - podcast cover

Ein Pæling

Thorarinn Hjartarsonwww.spreaker.com
Hlaðvarp
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#255 Hvað gerist ef Samfylkingin tekur við? (með Jóhanni Páli Jóhannssyni)

Hvað ætlar Samfylkingin að gera ef hún kemst í ríkisstjórn? Er Samfylkingin tilbúin að vinna með Sjálfstæðisflokknum? Mun Samfylkingin fjarlægjast Twitter-herinn? Öllum þessum spurningum og mörgum öðrum er svarað í þessu hlaðvarpi. Hlaðvarpið má sjá í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

Sep 26, 202314 min

#252 Beitir sér fyrir útrýmingu Sjálfstæðisflokksins þjóni flokkurinn ekki þjóðinni (með Arnari Þóri Jónssyni)

Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer hörðum orðum um sinn eigin flokk og segist vera tilbúinn að beita sér fyrir útrýmingu flokksins kjósi flokkurinn ekki að breyta um stefnu í málefnum lagaumgjörðar Evrópusambandsins og bókun 35 sem veldur forgangi laga Evrópusambandsins gagnvart lögum sem Alþingi setur. Í þessum þætti er rætt um þau fjölmörgu mál sem að þessu snúa, heimspeki, frelsi og fleira.

Sep 17, 202317 min

#251 Pólitísk ráðgjöf til allra flokka (með Stefáni Óla Jónssyni)

Getur Sjálfstæðisflokkurinn náð fyrri styrk? Hvað er Sósíalistaflokkurinn? Þurfa Píratar að fara aftur í ræturnar? Afhverju er ekki eftirspurn eftir Viðreisn? Getur Samfylkingin náð fylgi skoðanakannanna í kosningum? Er Framsókn stefnulaus flokkur? Hvað þarf Flokkur fólksins að gera? Hafði Miðflokkurinn rétt fyrir sér? Hvað gerir VG? Öllum þessum spurningum er svarað í þessum þætti.

Sep 15, 20231 hr 24 min

#249 Kerfið stendur vörð um kerfið (með Jóni Ívari Einarssyni)

Jón Ívar Einarsson er læknir og kennari við Harvard háskóla. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Jón Ívar um heilbrigðiskerfið á Íslandi og þær áskoranir sem að það mun koma itl með að þurfa að þreyta á næstu árum og áratugum. Til þess að áskotnast áskrift má finna allt efni í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

Sep 05, 202346 min

#248 Vinstri græn skortir heilindi (með Jóni Gunnarssyni)

Þórarinn ræðir við Jón Gunnarsson, fyrrum dómsmálaráðherra og þingmann Sjálfstæðisflokksins, um ríkisstjórnina, útlendingamál og hvalveiðibannið. Facebook síða: https://www.facebook.com/groups/708593984436728 Áskrift: www.pardus.is/einpaeling

Aug 30, 202317 min

#245 Orkumál og flóttamenn (með Sigríði Á. Andersen)

Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling Sigríður Á. Andersen er fyrrverandi dómsmálaráðherra og þingmaður sem að er óhrædd við að láta í ljós sínar skoðanir. Hún hefur undanfarið gagnrýnt stjórnvöld í málefnum orku- og loftslagsmála ásamt því að telja málefni flóttafólks og hælisleitenda vera í ólestri. Í þessum þætti er rætt um þau mál.

Aug 24, 202322 min

#240 Hvað gerist þegar vextir föstu lánanna losna? (með Birni Berg Gunnarssyni)

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa um afleiðingar þess þegar vextir þeirra lána sem tekin voru á föstum kjörum á faraldurstímum. Þau lán voru tekin á töluvert betri kjörum en hægt er að fá í dag og afleiðingar þess á heimili sem tóku stór lán sem munu, að öllum líkindum, bera töluvert hærri greiðslubyrði en áður.

Jul 31, 202319 min

#233 Misheppnað valdarán í Rússlandi (með Alberti Jónssyni)

www.pardus.is/einpaeling Albert Jónsson er sérfræðingur í utanríkismálum og með mikla reynslu við störf á þeim vettvangi. Í þessum þætti er rætt um misheppnaða valdaránstilraun Yevgeny Prigozhin, stríðið í Úkraínu, Kína, Taiwan og aðrar vendingar í alþjóðastjórnmálum

Jun 26, 202316 min

#227 Skák, leikjafræði og pólitík (með Birki Karli Sigurðssyni og Leifi Þorsteinssyni)

www.pardus.is/einpaeling Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson stýra hlaðvarpinu Chess After Dark þar sem þeir fjalla um menningu, stjórnmál, fótbolta, og, síðast en ekki síst, skák. Í þessum þætti er rætt um alla þessa hluti en sérstaklega stjórnmál. Spekúlerað er um framvindu þeirra flokka sem mælast stærstir í dag, Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokkinn og rýnt í stöðu þeirra með tilliti til mannafla.

May 26, 202318 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android