Draugasögur - podcast cover

Draugasögur

Ghost Network®www.draugasogur.com
Podcast um atburði og staði sem þekktir eru fyrir draugagang. Þættirnir eru framleiddir af Ghost Network ehf.® Finndu fleiri podcöst frá Ghost Network inná www.ghostnetwork.is Hjónin Stefán John og Katrín halda halda úti hlaðvarpinu Draugaösgur Podcast en þau eru jafnframt helstu drauga sérfræðingar Íslands. Þau hafa hjálpað tugi fjölskyldna hérlendis að fást við draugagang og heimsótt og rannsakað frægustu draugahús í heimi þar á meðal Conjuring Húsið, Sallie House og Shrewsburry Fangelsið ofl. Fylgdu okkur á þinni hlaðvarpsveitu og á samfélagsmiðlum undir @draugasogurpodcast Viltu fleiri Draugasögur? Skoðaðu áskriftarsíðuna okkar www.patreon.com/draugasogur
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Haunted Hollywood

Hollywood er dularfullur staður, þar sem frægð og skuggar fléttast gaman og daglegur raunveruleiki er ekki eins og við þekkjum hann flest... Í dag ætlum við að taka ykkur í ferðalag þangað og skoða ýmislegt ógnvænlegt og skrýtið. Við förum yfir hvernig leikarinn Marlon Brando taldi sig vera ásóttann af draugum fortíðar. Inní hans sögu fléttast svo dularfullir atburðir sem að áttu sér stað í Belgíu í fyrri heimstyrjuöldinni. Að lokum ætlum við að skoða það hvort að það sé eitthvað til í þeirri fu...

Jan 02, 202541 min

Særingarmaður Páfans

Við töldum lengi niður í þennan EXTRA langa Draugasögu- og fræðsluþátt þar sem við förum yfir nokkur mál frægasta særingarmann samtímans. Auk þess sem við tökum smá 'Spurt & Svarað' um málefnið eins og: ◾️ Af hverju andsetur Djöfullinn ekki trúleysingja? ◾️Geta bara prestar sært út Djöfla? ◾️Lesa Djöflarnir hugsanir okkar? og allskonar fleiri spurningum sem við munum fara yfir í lok þáttar og í gegnum söguna. Verið óhrædd að spyrja fleiri spurninga sem kunna að brenna á ykkur í gegnum þáttin...

Dec 26, 202459 min

Read House Hótelið

Staðsett í hjarta Tennessee, falið frá iðandi borgarlífi er hótel. Og af öllum draugahótelum sem finna má í Tennessee í Bandaríkjunum, þá eru fá með jafn hörmulega sögu á bakvið sig eins og þetta. Ekki láta blekkjast af girnilegum veitingastað og dýrum innanhús munum afþví að fortíð hótelsins er með dökka kafla sem ná 160 ár aftur í tímann..... Verið velkomin á Read House Hótelið 😱 KOMDU Í ÁSKRIFT AF DRAUGASÖGUM OG FÁÐU ÁSKRIFTARÞÁTT Í HVERRI VIKU + OPNA ÞÆTTI ÁN AUGLÝSINGA + AÐGANG AÐ ÖLLUM ÞÁ...

Dec 18, 202439 min

Shadow Park Ranch

Við erum komin til Kaliforníu. Hingað höfum við oft komið áður og fjallað um marga af reimdustu stöðunum í vestræna heiminum. En í þetta skiptið er sagan svolítið öðruvísi. Að þessu sinni erum við ekki að ræða um afskekktan og yfirgefinn stað. Við erum stödd í almenningsgarði í West Hills í Losa Angeles, á miðjum leikvelli þar sem börn leika sér daglega. Morð hafa verið framin á lóðinni, sjálfvíg hafa átt sér stað og orðið á götunni er að hugsanlega hafi ránsfengur verið grafinn undir húsinu! Ve...

Dec 11, 202441 min

Bramshill Húsið

Sagan á bakvið hið stórkostlega hús sem við ætlum að skoða í dag státar af ríkri sögu sem nær alveg aftur til ársins 1300. Hún inniheldur allt frá dularfullu mannshvarfi og öðrum hryllilegum atburðum sem síast hafa í innviði og í grunn hússins í gegnum aldirnar. Um er að ræða höfðingjasetur eins og þau gerast best! Verið velkomin í Bramshill Húsið! KOMDU Í ÁSKRIFT AF DRAUGASÖGUM OG FÁÐU ÁSKRIFTARÞÁTT Í HVERRI VIKU + OPNA ÞÆTTI ÁN AUGLÝSINGA + AÐGANG AÐ ÖLLUM ÞÁTTUM FRÁ UPPHAFI SEM ERU 500+!! Skr...

Dec 04, 202451 min

Bellamy Bridge

Verið velkomin til Flórída ☀️ Við vonum að þið séuð reiðubúin í smá ferðalag aðeins nær miðbaugi í þessu frosti sem lemur á okkur hér heima þessa daga :) Sagan í dag fjallar um hvernig þjóðsaga, raunverulegir atburðir og skáldsaga hafa fléttast í Draugasögu sem við ætlum aldeilis að krafa ofan í og hvers vegna heimamenn voga sér ekki nálægt brúnni, og þá sérstaklega eftir myrkur. En þeir sem hafa gert það .... þeir hafa sko sögu að segja. Verið velkomin að Bellamy Bridge Þú getur skoðar myndir f...

Nov 27, 202438 min

Taylor Fjölskyldan

Klukkan korter í 10 á sunnudagsmorgni þann 6. október árið 1974, kemur lögreglan í Ossett á Englandi auga á mann í mjög annarlegu ástandi. Maðurinn hljóp nakinn um götur friðsæla bæjarins. Ekki nóg með það að maðurinn væri nakinn. Heldur var hann allur útataður blóði. Michael Taylor var ósköp venjulegur maður. Hann átti eiginkonu sem hét Christine og saman áttu þau fimm börn. En þegar Michael fer að stunda trúarlegar samkomur sem leiddar voru af Marie Robinson fer líf hans á hliðina og blóðug ma...

Nov 20, 202443 min

AMITYVILLE X VIÐTAL VIÐ LAURA DIDIO

ÞUNGAVIKTARÞÁTTUR HÉR Á FERÐ KÆRU HLUSTENDUR ‼️ Í DAG fyrir nákvæmlega 50 árum síðan, uppá SÖMU MÍNÚTU OG ÞESSI ÞÁTTUR ER GEFINN ÚT, tók Ronald DeFeo upp riffil og skaut fjölskylduna sína: Ronald DeFeo Sr (43), Louise DeFeo (43) , Dawn (18), Allison (13) , Marc (12) & John (9) Við tókum þetta mál fyrir árið 2020 þegar við vorum bara rétt að byrja að gefa út podcast reglulega og fannst okkur við knúin til þess að snúa til baka í þennan hrylling og segja ykkur frá ÖLLU sem tengist morðunum og ...

Nov 13, 20242 hr 59 min

Maðurinn með hattinn Part. 2

Komiði sæl elsku Draugasögufjölskylda! Við höldum áfram þar sem frá var horfið um ráðgátuna um manninn með hattinn. Fyrir helgi snertum við aðeins á málefninu en þó einkum í gegnum persónulegu reynslu Katrínar þar sem við tókum símtal við móður hennar og kryfjum hennar sögu. Í þetta skiptið fær Stebbi því munnræpu og kemur fram með stórar staðhæfingar sem og rök því til stuðnings sem þið verðið að hlýða á til að sjá hvort Katrín, nú eða þið séuð sammála...? En allt það, og margt fleira eftir að ...

Nov 06, 202410 min

Árás úr fortíðinni

Við erum stödd í Tuscon, Arizona í miðri eyðimörkinni þar sem eitt ákveðið hús virðist halda fjölskyldu í heljargreipum, og það bókstaflega! Þetta er saga um Árás úr fortíðinni PATREON ÁSKRIFT ! FYRIR ÞÁ SEM KJÓSA AÐ KOMA Í ÁSKRIFT MEÐ PATREON APPINU ER BEINN HLEKKUR HÉR FYRIR NEÐAN: PATREON ÁSKRIFT: https://www.patreon.com/draugasogur SPOTIFY ÁSKRIFT ! Fáðu Draugasögu í hverri einustu viku! SMELLTU HÉR: https://open.spotify.com/show/4OFMmF6XHx0BkEA4aYkpQ9?si=ggN0eHUZQB6baceXaX0bRA...

Nov 04, 202438 min

Maðurinn með hattinn Part. 1

Hver er svart klæddi maðurinn með hattinn? Af hverju hafa svona margir séð hann? Hvað þýðir það að sjá hann og hvað vill hann? Þessum spurningum og fleirum veltum við fyrir okkur í áskriftarþætti vikunnar sem er að þessu sinni í tveimur pörtum... Í part 1 segir Katrín okkur frá persónulegri reynslu af svart klædda manninum. Við tökum einnig viðtal við mömmu hennar og fáum að heyra hennar upplifun á því þegar Katrín var að sjá fólk í æsku sem að enginn annar sá. Í part 2 sem kemur út í næstu viku...

Nov 01, 202412 min

Flautarinn

Hvað myndir þú gera ef að þú heyrðir í einhverjum flauta fyrir utan húsið þitt um hánótt? Þú færir fram og sæir pabba þinn sitja í sófanum og hann gæfi þér merki um að hafa hljótt, síðan myndi hann hvísla að þér að þú mættir aldrei kíkja útum gluggann þegar flautið heyrðist... Hvað myndir þú gera ef þú værir 8 ára í göngutúr með mömmu þinni og þið bæði heyrðuð í einhverjum flauta. Þegar þú litir upp á mömmu þína sæir þú hræðsluna í augunum hennar. Hún myndi taka fast um handlegginn þinn og segja...

Oct 16, 202416 min

PENNHURST

Áskriftarþáttur sem upphaflega kom út þann 12. feb. 2022 Við höfum í marga mánuði, átt mjög erfitt með að leggja í þennan stað. Því sagan er svo umfangsmikil, svo svört og átakanleg. Að meira segja þeir allra hörðustu eiga oft í mestu vandræðum með hlusta á sannleikann um þennan hrottalega stað. Svo setjið ykkur vandlega í stellingar því við erum að fara á staðinn sem er sennilega allra efstur á lista yfir reimdustu staðina í öllum heiminum. Verið því tilbúin, loksins- og velkomin....... í PENNH...

Oct 16, 20241 hr 4 min

Syndir Feðranna

Upphaflega gefinn út fyrir áskrifendur 12. janúar 2022 Fyrirmyndir okkar tengdu málefninu eru margar en eins og hlustendur vita, standa þó Warren hjónin þar uppúr. Mál þeirra sem við ætlum að taka fyrir í dag hefur þó ekki verið Hollwood-vædd eins og Conjuring myndirnar. Heldur verið gleymt og grafið í meira en 30 ár. En í þessum þætti gröfum við upp gamlar lögregluskýrslur, dustum rykið af bókum og fléttum í gegnum tugi blaðagreina. Þetta er risastórt mál svo setjið ykkur í stellingar og verið ...

Oct 09, 202452 min

3 Garðar

VELKOMIN Í GHOSTÓBER ! 👻 Í dag ætlum við að heimsækja þrjá kirkjugarða sem allir eiga sínar eigin draugasögur og goðsagnir. En afhverju sjást draugar svona oft í kirkjugörðum? Ef við göngum aftur ahverju ættum við þá að halda okkur í garðinum þar sem líkaminn okkar er núna þegar sálin okkar er frjáls? Við höfum ekki svör við þessum spurningum en ég held að við séum mörg sammála um að í hvert skipti sem við göngum inní kirkjugarð þá læðist hrollur upp eftir bakinu á okkur - Afþví að maður er svo...

Oct 02, 202449 min

San Pedro Haunting

Sagan sem við ætlum að segja ykkur í dag er ótrúleg en dagsönn! Þetta er vel "documentað" mál. Það hefur verið skrifuð bók og í henni eru margar myndir. Sagan fjallar um Jackie Hernandez en á níunda áratuginum er hún tilbúin að hefja nýtt líf eftir skilnað við eiginmann sinn. Hún var teggja barna móðir og þrátt fyrir erfiðar aðstæður var hún spennt að flytja í sína eigin íbúð. Hún hafði ekki hugmynd um að þetta væri byrjunin á hræðilegri martröð.... Leyfið okkur að segja ykkur frá málinu sem er ...

Sep 25, 202445 min

The Goblin of Zaragoza

Sagan sem við ætlum að segja ykkur í dag hefur setið í okkur hjónum lengi. Þetta er frásögn sem þú hættir ekki að hugsa um, mál sem þú átt aldrei eftir að gleyma. Allt byrjaði þetta á Spáni árið 1934. Þennan septembermorgun ómaði brjálæðislegur hlátur um alla bygginguna sem annars var róleg. Þessi hlátur varð hærri og ógnvænlegri eftir því sem hann dreifðist um bygginguna..... en hvaðan kom hann? Þau vissu það ekki þarna, en þetta var upphafið. Þetta var fyrsti dagurinn af tveggja mánaða ásókn á...

Sep 18, 202438 min

Bill Ramsey

Saga dagsins er öðruvísi, en mikilvæg. Við ætlum að taka fyrir mál sem Warren hjónin tóku að sér fyrir nokkrum áratugum síðan. Kannski eru einhverjir hér sem kannast við málið, hafa heyrt um það....en við ætlum að gera það sem við gerum best. Við ætlum að kafa ofaní saumana á því, skoða öll smáatriði og mögulega reyna að finna út hvað það var sem var að hrjá þennann góða mann sem við ætlum að fjalla um í dag. Okkur finnst við skyldug til að taka það fram að í þætti dagsins munum við tala um geðr...

Sep 11, 20241 hr 25 min

ROSE HALL

Sagan sem við ætlum að segja ykkur í dag er svolítið snúin. Við erum með byggingu og fólk sem að við vitum að var til. Við erum með heimildir fyrir því að þetta fólk fæddist, það bjó í húsinu á einhverjum tímapunkti og við erum með heimildir fyrir því að þetta fólk dó og var á endanum grafið. Síðan erum við með þjóðsögur sem fléttast inní þetta ,sem hafa gengið manna á milli og samhliða þeim erum við með sögulegar staðreyndir. En þrátt fyrir allar þessar upplýsingar þá er þessi saga ein stór ráð...

Sep 04, 202449 min

Moffit Fjölskyldan

Ed og Lorraine Warren spiluðu stórt hlutverk í þessu máli sem við tökum fyrir í dag En ólíkt öðrum málum þeirra Warren hjóna, þá varð þetta aldrei eitt af þeim frægu. Vegna þess að í yfir 25 ár vildi fjölskyldan halda þessu leyndarmáli útaf fyrir sig og minnast helst ekki á það fyrir utan veggja heimilisins. En af hverju? Jú, því þau skömmuðust þau sín og tókust á við alvarlega áfallastreitu í kjölfarið. – En aðal ástæðan var hræðsla. Þau voru svo hrædd um að ef þau myndu tala um þessa lífsreyns...

Aug 28, 20241 hr 3 min

Kreischer Setrið

Draugar, eldsvoði, mafían, morð, sjálfsvíg og bölvun. 6 orð sem einkenna sögu dagsins. Húsið sem við munum fjalla um í dag er í rauninni setur sem umkringt risastórum trjám en samt sem áður fyrir miðju bæjarins Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við setrið sem hefur staðið autt í mörg ár, þrátt fyrir að hafa staðið á sölu. Það vill nefnilega ekki nokkur maður búa þarna, amk... enginn lifandi maður. Verið velkomin í Kreischer Setrið PATREON ÁSKRIFT ! FYRIR ÞÁ SEM KJÓSA AÐ KOMA Í ÁSKRIFT MEÐ PATREO...

Aug 14, 202453 min

Wikoffs Hjónin

Eftir að banaslys verður á lóð Wikofss hjónanna breyttist allt. Eflaust var hægt að kenna streitu og álagi um eitthvað, en þegar maður fer að birtast í eldhúsinu þeirra dragandi tvær konur á eftir sér þá átta hjónin sig á að þau voru föst í aðstæðum sem þau réðu ekki við ein..... SPOTIFY ÁSKRIFT ! Fáðu Draugasögu í hverri einustu viku! SMELLTU HÉR: https://open.spotify.com/show/4OFMmF6XHx0BkEA4aYkpQ9?si=ggN0eHUZQB6baceXaX0bRA PATREON ÁSKRIFT ! FYRIR ÞÁ SEM KJÓSA AÐ KOMA Í ÁSKRIFT MEÐ PATREON APP...

Jul 31, 202433 min

Draugalegar Samræður 2

KOMIÐ ÞIÐ SÆL OG BLESSUÐ ÖLL SÖMUL! Hér erum við með Draugalegar Samræður númer 2 😄 Draugalegar Samræður eru auka þættir sem eru alveg hráir, s.s. óklipptir og óunnir að öllu leiti. Hér segir Stebbi Katrínu nokkrar örsögur sem hún hefur aldrei heyrt áður. Vonandi hafið það gaman að 🤗 Ef þú vilt fá þætti án auglýsinga og fá að horfa á þennan þátt skaltu skoða áskriftarleiðina okkar á Patreon! Linkar neðar. Draugasögur á Facebook Draugasögur á Instagram SPOTIFY ÁSKRIFT ! Fáðu Draugasögu í hverri...

Jul 24, 202430 min

Corvin Kastalinn

Við erum komin til Rúmeníu í bæinn Hunedoara. Þar uppá hæð situr stórglæsilegur kastali, eins og klipptur útúr ævintýri sem endaði ekkert alltof vel. Þröng brú leiðir okkur að aðal innganginum og þegar inn er komið tekur á móti okkur kalt andrúmsloft. Hann er ekkert alltof huggulegur, þetta er ekki staður sem þú vilt eyða nótt á.... ekki nema þú sért að leita að draugum... Verið velkomin í Corvin Kastalann! PATREON ÁSKRIFT ! FYRIR ÞÁ SEM KJÓSA AÐ KOMA Í ÁSKRIFT MEÐ PATREON APPINU ER BEINN HLEKKU...

Jul 17, 202436 min

Loftus Hall

Við erum mætt til Írlands. Við keyrum eftir löngum vegi þangað til við komum að hringtorgi sem er ekkert nema grænt og óhirt gras. Við erum komin í þeim eina tilgangi að heimsækja þessa byggingu og þarna stendur hún, grá og drungaleg. Þetta var fjölskylduheimili í mörg hundruð ár, nunnuklaustur og hótel en í dag stendur það autt. Það er búið að byrgja fyrir alla glugga og það er lokað almenningi, en á bakvið þessa gráu steinveggi er eins og tíminn standi í stað því húsið er raunverulega glæsileg...

Jul 10, 202440 min

Sloss Verksmiðjan

Við erum stödd í borginni Birmingham, stærstu borginni í Alabama í Bandaríkjunum. Árið 1882 var byggð þarna verksmiðja og inní hennar voru risastórir ofnar sem að bræddu kol og málgrýti sem á endanum var síðan breytt í hart stál. Þessi verksmiðja spilaði stórt hlutverk í því að ryðja brautina fyrir iðnaðarbyltinguna. En þessi velgengni var dýrkeypt með blóði vinnufólskins. Fjölmörg dauðsföll, slys og hugsanlega morð hafa átt sér stað þarna og margir segja að verksmiðjan hafi á endanum verð lokað...

Jul 03, 202430 min

Linda & Vanessa

Í dag ætlum við að segja ykkur frá mæðgunum Lindu (40) og Vanessu (17). Þær flytja inní nýja íbúð sem var ekki sú fallegasta en þær vissu að þetta var bara tímabil. Fljótlega fengi Linda stöðuhækkun í vinnunni og þegar Vanessa myndi útskrifast þá fengi hún góða vinnu í kjölfarið. Þannig að já, þetta var tímabundið ástand. Þegar þær ganga inní íbúðina í fyrsta skiptið sjá þær að fyrverandi eigandi hafði skilið eftir öll húsgögn og dularfullar myndir á veggjunum..... Þetta er saga um bölvanir og V...

Jun 26, 202441 min

Jane Doe

Eruð þið tilbúin í Draugasögu sprengju!? Við ætlum að fara yfir mál sm gerist í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Þessi frásögn byrjar sem draugasaga en endar sem óupplýst sakamál. Við munum blanda saman fyrstu persónu frásögn þar sem kona verður vitni af yfirnáttúrulegu atviki – og eftir það sökkvum við okkur ofaní sakamálið sem var upphafið af þessu öllu saman. Setjið ykkur í stellingar.... Þetta er sagan um JANE DOE SPOTIFY ÁSKRIFT ! Fáðu Draugasögu í hverri einustu viku! SMELLTU HÉR: https://ope...

Jun 20, 202436 min

Sultan's Höllin í New Orleans

Við ætlum að ferðast með ykkur alla leið til New Orleans í Bandaríkjunum og skoða þar þriggja hæða byggingu sem situr á horninu við frekar þröngar og svolítið sjabbí götur verðum við að viðurkenna. Húsin í kring eru öll minni og upplituð, ruslatunnur á gangstéttunum eru yfirfullar og ef betur er að gáð má sjá heimilislaust fólk hjúfra sig í skúmaskotum. Húsið er í dag heimili fólks en sagan á bakvið það er skrautleg og nokkuð umdeild. Við ætlum að skoða goðsagnirnar sem hafa sprottið upp í kring...

Jun 12, 202437 min

Draugatrú íslendinga 🇮🇸 (löng áskriftarprufa)

VIÐ ÆTLUM AÐ BYRJA ÞENNAN MÁNUÐ MEÐ ÍSLENSKRI SPRENGJU 💣 🇮🇸 🤗 Í þessum þætti ætlum við að tala um íslenska draugatrú í gegnum aldirnar og einkenni íslenskra drauga. Síðan tökum við fyrir þekktar sögur eins og t.d. um Gretti og Glám , Miklubæjar Sólveigu og Djáknann á Myrká. Við munum einnig staldra aðeins við og kynna fyrir ykkur sjódraugana en sögur um sjórekin lík eru nokkuð algengar í íslenskri sagnahefð. Rétt í lokin munum við svo skoða hvarfið á Bjarna Matthíasi Sigurðssyni og spjalla u...

Jun 05, 202423 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android