Draugasögur - podcast cover

Draugasögur

Ghost Network®www.draugasogur.com
Podcast um atburði og staði sem þekktir eru fyrir draugagang. Þættirnir eru framleiddir af Ghost Network ehf.® Finndu fleiri podcöst frá Ghost Network inná www.ghostnetwork.is Hjónin Stefán John og Katrín halda halda úti hlaðvarpinu Draugaösgur Podcast en þau eru jafnframt helstu drauga sérfræðingar Íslands. Þau hafa hjálpað tugi fjölskyldna hérlendis að fást við draugagang og heimsótt og rannsakað frægustu draugahús í heimi þar á meðal Conjuring Húsið, Sallie House og Shrewsburry Fangelsið ofl. Fylgdu okkur á þinni hlaðvarpsveitu og á samfélagsmiðlum undir @draugasogurpodcast Viltu fleiri Draugasögur? Skoðaðu áskriftarsíðuna okkar www.patreon.com/draugasogur
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

60. Þáttur - Stevenson Húsið

Við erum stödd í borginni Monterey í Kaliforíu. Fólksfjöldi er rúmlega 28.000 manns. Og á lítilli götu í úthverfinu, sem virðist því miður vera orðin frekar sjúskuð, situr húsið sem við munum fjalla um í dag. Engin paranormal rannsakandi hefur fengið leyfi til þess að fara þangað inn. En andarnir birtast fólki daglega og fjölmörg vitni hafa komið fram og sagst hafa séð, svartklæddu konuna, litla barnið eða manninn með hettuna. Verið velkomin í Stevenson Húsið Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættinu...

Jul 14, 202123 min

59. Þáttur - Draugaskip

Ef við horfum á öll þessi dauðsföll sem hafa átt sér stað á sjó þá er eðlilegt að velta því fyrir sér hvort að sjórin sé mögulega reimdasti staðurinn í öllum heiminum. Hugsaðu um allar þessar týndu sálir sem dóu skyndilega og mögulega á ofbeldisfullann hátt og hafa aldrei fengið viðeigandi jarðaför, enda hafa líkamsleifar flestra aldrei fundist. En í dag ætlum við að skoða sögu skipa sem fóru frá landi með ásetningi og áætlun, en snéru aldrei til baka og hafa aldrei sést síðan.... Eða hvað? Veri...

Jul 07, 202138 min

58. Þáttur - Owen - Thomas Húsið

Við erum mætt aftur til Georgíu, eða réttara sagt til Savannah, sem er talin einn reimdasti bær bandaríkjanna. Þeir hlustendur sem hafa fylgt okkur lengi, eru líklegast byrjaðir að þekkja Savannah nokkuð vel því við höfum tekið fyrir þó nokkra staði þaðan. Í dag ætlum við að færa okkur miðsvæðis og skoða alveg glæsilegt hús sem er með þeim tignarlegustu í bænum. En fyrir aftan húsið leynist lítil kofi sem minnir okkur á saga hússins er mun lengri og óhuggulegri en okkur grunar. Verið velkomin í ...

Jun 30, 202129 min

57. Þáttur - Asylum 49

Gamla sjúkrahúsið í Tooele, Utah er í dag þekkt sem eitt þekktasta Holloween Draugahús sem búið var til gagngert til þess að hræða úr fólki líftóruna. Bara ef eigendur vissu að það þurfti enga leikara í draugalegum búningum til, reykvélar né neina hræðilega tónlist. Því draugarnir þarna, voru alvöru! Verið velkomin í Asylum 49 Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættinum inná draugasögur.com Fáðu enn fleiri Draugasögur, íslenska þætti, stuttmyndir, video, viðtöl, mínísögur og sönnunargögn úr öllum rann...

Jun 23, 202129 min

56. Þáttur - Preston Kastalinn

Hátt upp á hæð í Californiu situr drungalegur kastali og það er eiginlega eins og hann hafi verið klipptur beint út úr hryllingsmynd. Nema hryllingurinn tengdur þessari byggingu er raunverulegur! Verið velkomin, Í Preston Kastalann! Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættinum á draugasögur.com og ef þú vilt fá aðgang að enn fleiri Draugasögum og myndefni, viðtölum ofl. bjóðum við uppá 3 mismunandi áskriftarleiðir þar sem allir geta fundið leið sem henta sér best- Patreon.com/Draugasögur...

Jun 16, 202129 min

55. Þáttur - Draugabærinn Pluckley

Leið okkar að þessu sinni liggur til Englands í lítið og rólegt þorp í suðaustur héraðinu Kent sem er um 64 km frá London. En innan um húsin og í skógum bæjarins leynist eitthvað skuggalegt og út af því er bærinn aðeins þekktur fyrir eitt…. Draugagang. Og reyndar svo mikinn draugagang að hann var skrásettur, og í dag er bærinn í Guinness Book of records sem reimdasti bær landsins og heimili að minnsta kosti 12 anda…..!! Verið velkomin í Draugabæinn Pluckley Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættinum ...

Jun 09, 202118 min

54. Þáttur - Houghton Setrið

Í Massachussetes fylki í Bandaríkjunum var eitt sinn glæsilegt setur sem sat tignarlega yfir borginni North Adams og þótti endurspegla völd og auð fjölskyldunnar sem þar bjó. En engir fjármunir gátu komið í veg fyrir þau áföll sem fjölskyldan þurfti að kljást við og hrakaði lífsviljinn alveg eins og húsið sem hýsti þau. Verið velkomin í Houghton Setrið Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættinum inná draugasogur.com og fáðu yfir 100 þætti til viðbótar og aukaefni strax í dag á patreon.com/draugasogur...

Jun 02, 202122 min

53. Þáttur - Summerwind Haunting

Eitt frægasta draugahúsið í Wisconsin er staðsett í Norðurhluta fylkisins. Það var eitt sinn hið glæsilegasta, óðalsetur sem àtti að vera sumarafdrep 8 manna fjölskyldu. En eignin hefur alltaf verið kennd við mikinn draugagang og jafnvel löngu áður en það féll í eyði. Mögulega var bölvun á landsvæðinu allt frá upphafi...? Verið velkomin á Summerwind Setrið Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættinum á draugasögur.com Og ef þú vilt Íslenska þætti og tugi annarra þátta skaltu endilega kíkja á patreon.co...

May 26, 202119 min

BLOOPERS

Það er ekki alltaf allt fullkomið í upptökum og hér fáið alla okkar BLOOPERS saman komna á einn stað :) Njótið :) draugasogur.com patreon.com/draugasogur

May 26, 202126 min

52. Þáttur - Robert The Doll

Hundruðir manna safnast saman á hverju kvöldi fyrir framan East Martello Museum í Flórida, til þess að tryggja sér pláss í einni frægustu draugaleiðsöguferð í heimi. Hann lítur merkilega vel út miðað við að vera 114 ára gamall. Leyfið okkur að kynna fyrir ykkur dúkkuna hann Robert. Skoðaðu myndirnar sem fylgja þætinum inná draugasögur.com Viltu fá hundruði þátta til viðbótar strax í dag? Kíktu þá á patreon.com/draugasogur...

May 19, 202137 min

51. Þáttur - Gribble House Morðin

Að þessu sinni förum við yfir eitt hrottlegasta morðmál í sögu Savannah. En svo við áttum okkur á reimleikunum sem þar ríkja, þurfum við fyrst að skoða glæpinn sem átti sér þarna stað sem einkennist af fjölmörgum spurningum sem við leitum svara við. Sakamálið sem færði hrylling yfir íbúa borgarinnar! Verið velkomin í Gribble House Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættinum á draugasogur.com og þegar þú ert búin/nn að hlusta á þennan þátt, hvernig væri þá að hlusta á nokkrar íslenskar Draugasögur © og...

May 12, 202139 min

50. Þáttur - Concordia Kirkjugarðurinn

Kirkjugarðar eru staðir þar sem við leggjum ástvini okkar til hinnstu hvílu: Af jörðu erum við komin og að jörðu munum við aftur hverfa.... En það eru ekki allir reiðubúnir að taka þá staðhæfingu í sátt…. Verið velkomin í Concordia Kirkjugarðinn! *Skoðið myndirnar sem fylgja þættinum inná draugasogur.com Vilt þú horfa, hlusta og upplifa allar rannsóknir okkar frá upphafi? Höfða, Framhaldskólann á Laugum, Suðurgötu 2, Gamla Læknishúsið og 100+ þætti til viðbótar? Komdu með í hópinn: patreon.com/d...

May 05, 202128 min

49. Þáttur - Hell Fire Hellirinn

Við erum stödd í suður hluta Englands. Á stað þar sem greint hefur verið frà draugagangi í meira en tvær aldir. En þarna liggja nefnilega göng þar sem hrein illska var viðlogandi árum saman og þessi göng voru grafin í þeim eina tilgangi að veita fólki samkomustað til þess að svala ógeðfelldum hvötum sínum… ....og færa illum öflum saklausar sálir sem fórnargjafir…. Við erum stödd að hliði hevlítis…. Verið velkomin í The Hell Fire Caves ! *Skoðið myndirnar sem fylgja þættinum inn á draugasogur.com...

Apr 28, 202121 min

48. Þáttur - Island of the Dolls

Að þessu sinni er ferð okkar haldið á suðrænar slóðir. En þó ekki á stað sem heimamenn ráðleggja ferðamönnum að heimsækja, heldur þvert á móti og mæla með öllu gegn því. Þorpsbúar segja að á umræddri eyju hvíli bölvun, og álög á vatninu umhverfis hana. Við ætlum að fjalla um stað þar sem allt er morandi í dúkkum, hangandi úr trjám í þúsundatali.. Þessi staður er talinn vera með þeim reimdustu í öllum heiminum. Verið velkomin á hina alræmdu Island of the Dolls *Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættin...

Apr 21, 202123 min

47. Þáttur - Jane Addams Hull Húsið & Djöflabarnið

Í hinni vindasömu Chicago borg stendur hús í hverfi sem eitt sinn var hornsteinn yfirstéttar og velgengni...En eftir hrakfarir og hamfarir varð það fljótt að svæði þar sem engin vildi búa. Að utan lítur það út eins og öll hin húsin í hverfinu, en þegar þú gengur inn fyrir þröskuldinn finnur þú að það er allt öðruvísi. Mögulega heyriru fótatak á efri hæðinni eða öskur koma frá háaloftinu. En ekki láta þér bregða, því allir vita að lætin koma frá djöfla barninu sem hefur hreiðrað um sig á háalofti...

Apr 14, 202124 minEp. 47

46. Þáttur - Snedeker Fjölskyldan Partur 2

Tugi þúsundir heimila um allan heim eru talin vera reimd. Þá á ég við að inní þeim hefur fólk upplifað óeðlilega hluti, séð eitthvað sem ekki er, heyrt raddir þegar húsið er tómt, eða fundið fyrir ónota tilfinningu þó að ekkert sé að. En svo eru það hús sem andar hreinlega eigna sér. Við höfum fjallað um þannig mál í fyrri sögum, þar sem andarnir taka yfir húsið og reyna allt sem þeir geta til þess að hrella fjölskyldur burt. Sagan okkar í dag er einmitt um þannig hús og fjölskyldu sem upplifði ...

Apr 07, 202153 minEp. 46

45. Þáttur - Snedeker Fjölskyldan Partur 1

Tugi þúsundir heimila um allan heim eru talin vera reimd og að inní þeim hefur fólk upplifað óeðlilega hluti, séð eitthvað sem ekki er, heyrt raddir þegar húsið er tómt, eða fundið fyrir ónota tilfinningu þó að ekkert sé að. En svo eru það hús sem andar hreinlega eigna sér. Við höfum fjallað um þannig mál í fyrri sögum, þar sem andarnir taka yfir húsið og reyna allt sem þeir geta til þess að hrella fjölskyldur burt. Sagan okkar í dag er einmitt um þannig hús og fjölskyldu sem upplifði martröð í ...

Mar 31, 202148 minEp. 45

44. Þáttur - Monte Christo Setrið

Í þessum þætti ferðumst við þvert hnöttinn og heimsækjum eitt reimdasta húsið í Ástralíu. Öll hús geyma einhvers konar leyndarmál og ef hús gætu talað þá myndi Monte Christo hafa nóg að segja. En málið er að veggirnir inn í setrinu ... öskra og gráta - og það bókstaflega! Leyndarmálin sem leynast þar verða ekki þögguð niður og hefur því vel þekkst á meðal heimamanna að vera sennilega það óhuggulegasta í landinu og hefur verið það í áratugi... Verið velkomin í Monte Christo Setrið...

Mar 24, 202133 minEp. 44

43. Þáttur - Bílferð um Draugaslóðir

Spennið beltin því þið eruð á leið í bílferð með okkur um heilt bæjarfélag sem er stútfullt af draugum! Nánast á hverju horni. Við erum stödd í afskekktum bæ sem nefndur er Caryville í Wisconsin í Bandaríkjunum... Hafðu rúðurnar samt uppi, þú vilt ekki að einhver fylgi þér heim ...? ... Myndir og efni sem fylgir þættinum er á Draugasögur.com Enn fleiri þættir, sönnunargöng, myndbönd, klippur, viðtöl, spjallþættir ofl. er aðgengilegt á: Patreon.com/Draugasögur...

Mar 17, 202119 minEp. 43

42. Þáttur - Cripple Creek

Í þessum þætti ætlum við að segja ykkur tvær draugasögur sem bæði gerast í hinum alræmda draugabæ Cripple Creek í Colorado en þessi litli sveitabær margfaldaðist bæði að stærð og í íbúafjölda á örfáum árum eftir að ein arðbærasta gullnáma heims fannst í bænum... Verið velkomin í Cripple Creek *Skoðaðu myndirnar og annað efni sem fylgir þættinum á draugasögur.com Takk fyrir að hlusta á Draugasögu vikunnar 👻 Ef þú vilt hlusta á fleiri Draugasögur þá bjóðum við uppá þrjár áskriftarleiðir inná Patr...

Mar 10, 202129 minEp. 42
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android