Draugasögur - podcast cover

Draugasögur

Ghost Network®www.draugasogur.com
Podcast um atburði og staði sem þekktir eru fyrir draugagang. Þættirnir eru framleiddir af Ghost Network ehf.® Finndu fleiri podcöst frá Ghost Network inná www.ghostnetwork.is Hjónin Stefán John og Katrín halda halda úti hlaðvarpinu Draugaösgur Podcast en þau eru jafnframt helstu drauga sérfræðingar Íslands. Þau hafa hjálpað tugi fjölskyldna hérlendis að fást við draugagang og heimsótt og rannsakað frægustu draugahús í heimi þar á meðal Conjuring Húsið, Sallie House og Shrewsburry Fangelsið ofl. Fylgdu okkur á þinni hlaðvarpsveitu og á samfélagsmiðlum undir @draugasogurpodcast Viltu fleiri Draugasögur? Skoðaðu áskriftarsíðuna okkar www.patreon.com/draugasogur
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

A 75 (Draugavegurinn í Skotlandi)

Vegna veikinda er Stebbi sem sér alfarið um þennan þátt en með andlegum stuðningi frá Katrínu sem heyrist ferkar rám í þessum þætti en við þökkum fyrir skilninginn og fyrir kveðjurnar Vegurinn sem tengir borgir og bæjarfélög og liggur á milli trjá sem skyggja svo mikið á götuna að þú veist ekki hvort þú sért að koma eða fara... eða jafnvel færast nokkuð úr stað. Í dag förum við ekki mjög langt út fyrir landsteinanna og mögulega á stað sem margir hér hafa heimsótt. Vinir okkar í Skotlandi luma an...

Feb 18, 202637 min

Appalachia 2

Í þessum þætti förum við djúpt inn í dularfullan og ógnvekjandi heim Appalachia fjallanna 🏔️ Þar sem myrkraverur fela sig í rjóðrinu og raddir hinna látnu öskra..... Við segjum ykkur sögu Gary Hilton - raðmorðingjans sem notaði gönguleiðir fjallanna til að veða fórnarlömb sín. En við stoppum ekki þar.... Í seinni hluta þáttarins segjum við ykkur óútskýranlega draugasögu manns sem bjó einn í skóginum með hundinum sínum, þegar eitt kvöldið hann fór að heyra grunsamlegt hljóð sem heltók hann! KOMD...

Feb 11, 202639 min

Appalachia 1

Í dag ætlum við að ferðast djúpt inn í þétt og þokuklætt skóglendið sem einkennir stórbrotið svæði sem þekkt er fyrir fegurð sína, en líka og kannski frekar fyrir allar þær dularfullu og óútskýrðu sögur sem hafa gengið manna á milli í margar kynslóðir. Þetta er hættulegt ferðalag sem við erum hér á leið í sem margir hætta sér að fara í á hverju ári. En alls ekki allir sem snúa til baka lifandi úr. Eða finnast yfir höfuð. Fjallgarðurinn er of stór til að geta komið fyrir í einum þætti en við getu...

Feb 04, 202643 min

1000 Þættir - Þúsund Þakkir

Frá árinu 2020 höfum við hjónin undir merkjum Ghost Network framleitt eitt þúsund podcastþætti með hlaðvörpunum Draugasögur, Mystík Podcast og Sannar Íslenskar Draugasögur. ÞÚSUND ÞÆTTIR! Við viljum nota tækifærið aftur og þakka ÞÉR fyrir að hafa náð þessu stóra markmiði með okkur, þetta er gleðidagur og ekki sjálfsagt að ná svona stórum og merkum áfanga! 🥰 ÞÚSUND ÞAKKIR ❤️ SMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ Í DRAUGASÖGUFJÖLSKYLDUNNI SMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ Í MYSTÍK KLÚBBNUM...

Feb 02, 20265 min

La Mussara

Í þessum þætti leggjum við leið okkar til vinaþjóðar okkar á Spáni, upp í fjöll Katalóníu, þar sem tíminn sjálfur virðist stundum standa í stað og þar sem fólk hverfur án nokkurra skýringa. Við erum að tala um yfirgefið draugaþorp sem trónir hátt yfir sjávarmáli innan um þykka þokuna sem margir segja að sé inngangur að annarri veröld. Fókuspunktur þáttarins er sönn atburðarrás sem gerðist árið 1991 um eitt af þeim dularfullu mannshvörfum sem einkenna mannlausa þorpið.. Því það er ljóst að þeir s...

Jan 28, 202643 min

Freetown Skógurinn

Komið þið sæl kæru hlustendur 🤗 Í dag ætlum við að segja ykkur ROSALEGA draugasögu! Við erum stödd í bænum Freetown sem er staðsettur í Massachusetts fylki. Við ætlum þó ekki að dvelja mikið inni í bænum heldur er fókusinn okkar á skóginum sem umkringir hann og mikið af New England svæðinu. Free Town Forest er nefinlega betur þekktur undir öðrum nöfnum, svo sem The Cursed Forest eða The Dark Forest. KOMDU Í DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNA 🌙 Ef þú vilt bíó í eyrun 🎧 og tilheyra hópi sem deilir ástríðu...

Jan 21, 202644 min

Jersey Djöfullinn 😈

Okkur hefur langað til þess að taka þennann fyrir í langan tíma 😈 Við erum stödd í New Jersey, heimkynni the Jersey Devil. Söguna um djöfulinn má rekja aftur aldirnar til ársins 1735. Fjölmargir hafa séð hann í Pina Barrens skóginum og heyrt hljóðin í honum. Hljóðin eru ólýsanleg blanda af öskri og gráti og hljóma ekki mannleg. Furðuleg fótspor fóru að birtast í bænum sem leitarhundar neituðu að fylgja og allt þetta olli svo miklum áhyggjum að foreldrar neituðu að senda börn sín í skólann og ma...

Jan 14, 202645 min

Bothell Hell House (Demons in Seattle)

Í þessum þætti förum við inní ansi óþægilegt hús... en við erum svosem öllu vön 🏡 Bothell Hell House hefur það verið kallað 🔥😬 Venjulegt úthverfahús á pappír, en í raun starfsstaður fyrir eitthvað ósýnilegt sem vann ólaunaða yfirvinnu alla daga.🚪💥..... eða hvað? Keith og Tina voru spennt fyrir rólegu lífi á nýja heimilinu en sagan þeirra þróaðist á allt annan hátt en þau bjuggust við... KOMDU Í DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNA 🌙 Ef þú vilt bíó í eyrun 🎧 og tilheyra hópi sem deilir ástríðu fyrir dr...

Jan 07, 202646 min

SUÐURSKAUTSLANDIÐ ❄️

Í ísköldum vindinum á einmanalegasta stað jarðar þar sem engin sál ætti að geta lifað, andar heil heimsálfa eins og forboðið skrímsli úr ísjaka. Síðasti áfangastaðurinn sem við námum land. Hér mæta vísindin leyndardómum þar sem mörg þúsund ára gamall ísinn felur bæði forn vistkerfi og óútskýrðar frásagnir þeirra sem þorðu að dvelja í myrkum rannsóknarstöðvum, mánuðum og stundum árum saman. Þetta er staðurinn þar sem mannleg þrautseigja, kuldi svo bítandi að hann sker sárt við hvern andardrátt og...

Dec 31, 202545 min

Pickfair Estate

Hér erum við með þátt sem fellur undir Haunted Hollywood seríuna okkar 😉 Við ætlum að taka fyrir hið víðfræga Pickfair Estate en sagan er ekki ósvipuð Mullholland Farm nema hvað við erum ekki með neina leyniglugga í svefnherbergjum eða eitthvað álíka og endirinn gæti meirað segja komið allra hörðustu drauganördunum á óvart 🤯 Njótið vel! KOMDU Í DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNA 🌙 Ef þú vilt bíó í eyrun 🎧 og tilheyra hópi sem deilir ástríðu fyrir draugasögum → þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig! PRÓ...

Dec 24, 20251 hr 16 min

Bille Creek Village

Það bjó aldrei neinn í þorpinu þó það sé samt morandi í húsum, kirkjum, verslunum og skólabyggingum. Húsin eru nefnilega eldri en þorpið sem þau standa á. En hvernig stenst það? - jú þessar gömlu byggingar voru fluttar víðsvegar úr fylkinu á autt landsvæði og plantað öllum á sama stað. -Líkt og kaflar úr mismunandi bókum hafi verið rifnir úr sínum ritum til að mynda nýja bók. Hvert hús með sína eigin sögu og sjálfsagt ákveðin röskun sem á sér stað þegar allar þessar sögur blandast síðan saman í ...

Dec 17, 202544 min

ASTROWORLD

Þetta átti að vera skemmtun, upplifun sem fólk kæmi aldrei til með að gleyma. Í smá stund áttu tónleikagestir að ganga inn um munninn á uppblásinni eftirlíkingu af rapparanum, inn í fantasíu veröldina sem einkenndi nýútkomna plötu og gleyma sér í tónlistinni. Fagnaðarlætin urðu þó fljótt að kvalarfullum öskrum þegar fólk kramdist á milli hvors annars á meðan að lífið fjaraði úr þeim... bókstaflega! Sumir segja að þetta hafi verið harmleikur, aðrir að þetta hafi verið gjörningur og enn aðrir að þ...

Dec 10, 202556 min

LINA

Andleg veikindi eða djöfulleg andsetning... er hægt að greina þar á milli? Í raunveruleikanum þá er það nauðsyn. 85% allra tilkynntra atvika um djöfullegar árásir eiga sér ástæður sem hægt er að rekja til andlegra veikinda eða uppspuna. 13% Þurfa á frelsunar- og bindingar bænum að halda. en eftir eru 2% ... Málin sem eru svo sjaldgæf að það er erfitt fyrir mannsheilann að trúa þeim því þau eru svo fjarstæðukennd. En því miður er það veruleiki samt sem áður. ✝️ Það er þá sem er nauðsynlegt að ske...

Dec 03, 202546 min

Aradale Geðveikrahælið

Í dag erum við stödd í the land down under, betur þekkt sem Ástralía. Nánar til tekið erum við í borginni Ararat í suð-vestur Victoria um 198 kílómetra frá Melbourne. Bygging á Ardale Asylum, eða Ardale Lunatic Asylum eins og það var einnig kallað, hófst árið 1864. Upprunalega var bygging gerð fyrir um 250 manns en eftir aðeins 12 mánuði hófust viðbyggingar þar sem ljóst var að sjúklingar yrðu mun fleiri en áætlað var í fyrst. Það þurfti aðeins tvær undirskriftir til þess að fá einhvern lagaðan ...

Nov 26, 202543 min

Húsið á Church Street

Sagan okkar gerist árið 1974 í litla bænum Standish í USA þar sem Randy Ervin hafði búið allt sitt líf. Randy hafði verið svolítið leitandi í lífinu, hann fékk vinnu hér og þar, safnaði smá vasapening og gisti á sófum vina sinna. Draumurinn var að fá stöðuga og vel launaða vinnu sem gæti framfleytt honum og að lokum varð sá draumur að veruleika. Nú með stöðuga vinnu langaði hann að eignast sitt eigið heimili. Faðir hans Roy vann við að gera upp gömul hús, svo hann gerir samning við son sinn. Han...

Nov 19, 202548 min

PIGMAN

Þátturinn fer ítarlega yfir hina dimmu sögu Angóla, þar sem lestarslys og sjóslys hafa sett svip á bæinn. Kjarni sögunnar er fjölskylda Dereks, einkum William, sem fæddist vanskapinn og varð að lokum að þjóðsagnapersónunni Pigman vegna einangrunar sinnar og óvenjulegra varna. Einnig er rætt um nútíma upplifanir og hvort ástæða sé til að trúa á þessa goðsögn.

Nov 12, 202544 min

EKKI SEGJA ORÐ !

Við hvetjum ykkur til þess að hlusta á þennan þátt ein uppí rúmi með slökkt ljósin! Þetta er okkar tími, kæru hlustendur, og þessi mánuður er STÚTFULLUR af skelfilegum draugasögum sem munu láta þig sofa með ljósin kveikt 🕯️ Hver þáttur mun flytja þig inní aðra vídd þar sem heimur okkar lifandi mætir heimi hinna látnu.... og við vonum að þið séuð tilbúin í að halda inní svarta haustmyrkrið með okkur! Ef við erum spurð, hvar líður okkur best? Hvar finnst okkur við vera öruggust? Þá er eflaust sva...

Nov 08, 202549 min

Parliament Square

SMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNNI Á HALLOWEEN Í ALLAN GHOSTÓBER🌙 Í hjarta Edinborgar, þar sem fornbyggingar og þröngar götur sameinast í dáleiðandi og draugalegum hljóðum borgarinnar, leynast sögur sem hafa verið grafnar undir fótum þeirra sem ganga þar um daglega. Parliament Square er eitt af elstu svæðum borgarinnar, og er ekki bara staður sem geymir sögur fortíðar heldur er það líka staður þar sem fortíðin heldur áfram að minna á sig, og stundum með ofbeldisfullum hætti..! Að...

Oct 22, 202539 min

Brúðumeistarinn

SMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNNI Á HALLOWEEN Í ALLAN GHOSTÓBER🌙 Djúpt inní skuggum Rússlands sat ómerkilegt hús og inní því bjó rússneskur sagnfræðingur ásamt foreldrum sínum. Húsið leit út eins og öll hin og íbúar þess voru ekkert athugaverðir en það sem lögreglan endaði á að finna inná heimili þeirra var viðbjóður! Anatoly, sem var fræðimaður á daginn, safnaði ekki frímerkjum í frítíma sínum, ónei.... hann safnaði líkamsleyfum sem hann gróf upp í kirkjugörðum og breytti svo í...

Oct 15, 202540 min

Jennifer Patterson

SMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNNI Á HALLOWEEN Í ALLAN GHOSTÓBER🌙 Þegar Jennifer Patterson flytur inní huggulegt, eldra hús, er hún í skýjunum. Það er mátulega stórt og í garðinum er hlaða þar sem hún getur verið með hestana sína. En mjög fljótlega fer eitthvað að láta á sér kræla. Það er umgangur í mannlausu húsinu og hún heyrir raddir og tónlist óma frá tómum herbergjum. Jennifer kýs að trúa ekki á drauga og reynir að finna eðlilegar útskýringar á þessu öllu saman - þar til hún...

Oct 08, 202541 min

Tauton State Geðveikrahælið

SMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNNI Á HALLOWEEN Í ALLAN GHOSTÓBER🌙 Djúpt inní hjarta Massachusetts situr þessi gamli spítali. Við erum mætt á stað sem átti að vera öruggt skjól fyrir þá andlega veikur, en endaði á því að verða tilraunastofa þar sem satanískir helgisiðir voru haldnir, og mannafórnir voru færðar. Þetta er og var aldrei nein venjuleg stofnun..... Verið velkomin á Tauton State Geðveikrahælið! KOMDU Í DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNA Á HALLOWEEN 🌙 Ef þú vilt bíó í eyrun 🎧 og ...

Oct 08, 202539 min

Octagon Hall

Starfsfólkið í Octagon Hall hefur verið að kljást við hræðilega ásókn. Allir hafa upplifað eitthvað, sumir hafa verið klóraðir, aðrir hafa séð eitthvað yfirnáttúrulegt, en umsjónarmaðurinn Barry virðist þó verða fyrir mesta ofbeldinu. Hugsanlega gæti þessi draugagangur stafað af því, að til þess að halda safninu opnu þá leigja þau húsið út til paranormal rannsakenda, sem borga þó aðeins 50$ fyrir það að rannsaka húsið yfir nótt. Af því að sagan á bakvið það er skuggaleg og það hafa orðið þó nokk...

Sep 28, 202538 min

ESTER COX

Komiði sæl elsku besta Draugasögu Fjölskylda, málið sem við ætlum að taka fyrir í dag er eitt af frægustu Poltergeist málunum sem vitað er um. Við höfum lengi ætlað okkur að taka þetta fyrir þar sem það er einkar vel skrásett og skjalfest og fjölmörg vitni voru af atburðunum sem áttu sér stað í litla bænum Amherst árið 1878. Við tökum þáttinn á léttum nótum þó málið sé vissulega þungt á köflum og við vonum að við höfum þannig náð að skapa andrúmsloft sem heldur þér við athyglina allan tímann á m...

Sep 17, 202547 min

Congelier Setrið

Ef þú myndir fara á google og skrifa Congilier Mansion haunted mynduru fá endalaust af greinum þar sem fólk er að segja þér að þetta sé eitt reimdasta húsið í Bandaríkjunum. Að sagan á bakvið það sé ein sú svakalegasta sem þú munt nokkurntíman heyra... og það er svosem alveg rétt. Við erum að fara að segja þér eina svakalegustu söguna til þessa.... og hún er meira að segja svo svakaleg að það gæti vel verið að þú eigir bara alls ekki eftir að trúa henni.... Verið velkomin í Congilier Setrið! KOM...

Sep 10, 202549 min

Barclay Hótelið

Í þætti dagsins heimsækjum við eitt dularfyllsta og umtalaðasta hótel Los Angeles - Barclay Hótelið sem er oft sagt vera stóri bróðir hið óhuggulega Cecil hótels! Byggt árið 1896 í hjarta downtown L.A hefur hótelið lifað af gullaldir, eymd og glæpi. Fyrst eitt það glæsilegasta í borginni þar sem ferðamenn og kvikmyndastjörnur eyddu tíma sínum, en varð síðan dvalarstaður jaðarhópa samfélagsins og vettvangur dularfullra dauðsfalla og ofbeldis. Skelfileg slys, hrottaleg morð .... og í dag heimili ó...

Sep 03, 202551 min

Conjuring: The Last Rites - Smurl Fjölskyldan

Fyrir 5 árum síðan tókum við fyrir málið um Smurl fjölskylduna. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og nú þegar þessi þáttur er að koma út styttist í að Conjuring: The Last Rites kvikmyndin verði sýnd sem er byggð á máli fjölskyldunnar. Þetta er seinasti hlekkurinn í Conjuring seríunni og fannst okkur því upplagt að endurgera þáttinn í ljósi þess að við hjá Draugasögum verðum með sérstaka forsýningu á kvikmyndinni á undan almenningi þann 3. september nk. með sérstöku Q&A í lok sýningar....

Aug 29, 202555 min

Demon Child (Foster Fjölskyldan)

Hefur þú átt ímyndaðan vin? Eða barnið þitt? Sjálfsagt er svarið já.... Jafnvel við báðum spurningunum. En hvað ef þú ferð skyndilega að heyra ímyndaða vininn spjalla við barnið þitt og rödd vinarins er eitthvað allt annað en vinaleg? Við vonum að þið séuð andlega tilbúin í þetta hrollvekjandi ferðalag sem er framundan næstu mínúturnar og kannski er bara gott að það sé örlítið farið að birta til. Því eftir þessa sögu munið þið ekki þora að sofa með ljósin slökkt aftur.... KOMDU Í ÁSKRIFT AF DRAU...

Aug 27, 202539 min

Bhangarh Fort

Þessi staður er einn sá draugalegasti á Indlandi og það er talað um að viðkvæmt fólk eigi alls ekki að fara þangað í heimsókn! En í dag eru það aðalega túristar sem fara þangað að skoða og það er fullkomlega öruggt..... á daginn það er að segja. Því það er stranglega bannað eftir sólsetur og fyrir sólarupprás. Ríkisstjórnin setti þessa reglu á, og fólk segir að ástæðan á bakvið þessa reglu sé sú að þarna er svo mikill reimleiki að það er hreinlega ekki öruggt að vera þarna einn að þvælast í myrk...

Aug 20, 202540 min

Nikko Jenkins

Komiði sæl elsku bestu ! Þessi þáttur er með örlítið öðruvísi sniði þar sem við förum yfir mál morðingja. Nema þessi ágæti maður sagði að hann væri vinna sín verk í nafni Djöfulsins og að hann væri að gefa honum fyrirmæli og skipanir. Inní þetta færast satanískar geðraskanir eða jafnvel andsetningar sem fylgt hafa manninum frá upphafi, og mögulega 38 öðrum ættingjum fjölskyldu hans... Þetta er sagan um Nikko Jenkins! KOMDU Í ÁSKRIFT AF DRAUGASÖGUM OG FÁÐU ÁSKRIFTARÞÁTT Í HVERRI VIKU + OPNA ÞÆTTI...

Aug 14, 202545 min

Becker Fjölskyldan

Draugasaga vikunnar er ROSALEG kæru hlustendur ‼️ Við ætlum að segja ykkur frá Becker fjölskyldunni sem að flutti inní gamallt hús í norðurhluta Chicago 🇺🇸 Þetta hús stóð í subbulegu hverfi og þetta var augljóslega ljótasta húsið í götunni. Á neðri hæðinni bjó síðan gömul og dónaleg kona sem tók alls ekki vel á móti þeim. Það er óhætt að segja að þessar flutningar áttu eftir að hafa mikil áhrif á alla fjölskylduna sem varð aldrei aftur söm..... KOMDU Í ÁSKRIFT AF DRAUGASÖGUM OG FÁÐU ÁSKRIFTARÞ...

Aug 14, 202555 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android