Draugar fortíðar - podcast cover

Draugar fortíðar

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#247 Josephine Baker: Fyrsta svarta konan sem sigraði heiminn - Fyrri hluti

Josephine Baker er einn áhrifamesti skemmtikraftur sögunnar. Auk þess að bæði hneyksla og hrífa Evrópubúa með sínum söng og dansi tók hún virkan þátt í baráttu gegn alræði og kynþáttaníði. Baker var fædd í Bandaríkjunum en eins og margir svartir íbúar þaðan, vildi hún flýja botnlausan rasismann þar. Hún hafði heyrt um ríki þar sem svartir voru þó álitnar mannverur. Fyrir þetta fólk lágu öll vötn til Parísar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin ú...

Jun 04, 20252 hr 5 minEp. 145

#244 Maðurinn í rotþrónni

Í febrúar árið 1989 var japanska barnaskólakennaranum Yumi Tanaka brátt í brók og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið. Á stúdentagörðum þar sem hún bjó voru klósett frekar gamaldags. Í raun aðeins hola í gólfinu sem leiddi út í rotþró fyrir utan húsið. Sér til furðu tekur Tanaka eftir einhverju í salernisholunni. Það er skór af manni. Hún fór út til að athuga hvort hún sæi eitthvað betur. Fyrir utan var lítið op sem leiddi niður í rotþróna. Þar gerði Tanaka hryllilega uppgötvun og hringt va...

May 14, 20251 hr 44 minEp. 144

#238 Hermaðurinn ódrepandi: Saga Adrian Carton de Wiart

Adrian Carton de Wiart var belgísk-breskur herforingi sem varð algjör goðsögn innan breska hersins. Hann var svo ósérhlífinn að það jaðraði við sturlun. Hann særðist mörgum sinnum og oft alvarlega. Hann tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, þar sem hann varð fyrir alvarlegum meiðslum, meðal annars misst hann hægri hönd og auga, en hann hélt áfram að berjast þrátt fyrir þessa miklu skerðingar. Þrátt fyrir að vera orðinn sextugur tók hann einnig þátt í síðari heimsstyrjöldinni. Var stríðsfangi Ítala...

Apr 02, 20252 hr 29 minEp. 143

#234 Biblíusögur

Fyrsti þáttur hvers mánaðar er í opinni dagskrá. Það er því vel við hæfi að sem flest ykkar nái að heyra fagnaðarerindið. Í þessum þætti velur Flosi nokkrar sögur úr einni af hans uppáhaldsbókum: Biblíunni. Gamla textamentið er í sérstöku uppáhaldi. Enda er nóg af alls konar furðulegum og fyndnum sögum sem þar má finna. Vert er samt að benda á að atriði í þættinum geta valdið óhug. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drau...

Mar 05, 20252 hr 52 minEp. 142

#230 Brjálaði baróninn: Sagan af Roman von Ungern-Sternberg

Komið hefur fyrir að sérvitrir herforingjar hafi klofið sig frá aðalhernum í styrjöldum og umbreyst í stríðsherra með sitt eigið lið og farið sínu fram. Roman von Ungern-Sternberg er einn þessara manna og líklega einn sá einkennilegasti og alræmdasti. Hann fór að sjá sig sem einhverskonar holdgerving mongólska herforingjans Djengis Khan. Hann sauð saman stórundarlega blöndu af rússneskri réttrúnaðarkristni og austurlenskum búddisma og taldi sig fylgja guðlegri forsjón. Saga hans er full brjálsem...

Feb 05, 20251 hr 49 minEp. 141

#LD2 Víkingar

Í tilefni af yfirvofandi ferðalagi Drauganna um landið síðar í mánuðinum er hér upptaka frá því að Draugarnir komu fram fyrir fullu húsi í Iðnó í október 2022. Góða skemmtun! „Hverjir voru þeir og hversvegna breyttist skoðun almennings á þeim svo rosalega? Frá víkingaöld var varla minnst á þá á annan hátt en sem algjörlega skelfilegt lið sem rændi, ruplaði, nam á brott og myrti fólk. Á 19. öld verða þeir skyndilega að hetjum og fyrirmyndir frelsiselskandi fólks. Hvað er svo satt og logið um víki...

Jan 03, 20252 hr 39 minEp. 140

#225 Fimm verstu herforingjar sögunnar

Margt er aðdáunarvert í sögu mannkynsins. Stórkostlegar uppgötvanir í vísindum, glæst listaverk og félagslegar umbætur. Því miður hafa átök og blóðsúthellingar einnig spilað stórt hlutverk. „Stríð er helsta hreyfiafl sögunnar“ - sagði rússneski byltingarleiðtoginn Leon Trotsky eitt sinn. Margir frægustu einstaklingar sögunnar voru herforingjar. Má nefna t.d. Napóleon og Alexander mikla. Að hafa stjórn á herjum og samræma aðgerðir á vígvelli er þó ekki hæfileiki sem öllum er gefinn. Í þessum þætt...

Jan 01, 20252 hr 38 minEp. 139

#221 Amnesty International

Þessi þáttur er í óformlegu samstarfi við Amnesty International á Íslandi. Flosi hefur lengi verið stuðningsmaður samtakanna og 16 ára gamall skrifaði hann bréf til Nicolai Ceausescu, þáverandi alvalds í Rúmeníu og krafðist þess að samviskufangar yrðu látnir lausir. Íslandsdeildin fagnaði 50 ára afmæli þ. 15 september síðastliðinn. Vakin er athygli á herferð samtakanna sem ber yfirskriftina „Þitt nafn skiptir máli“. Í þættinum er saga samtakanna jafnframt rakin og sagt frá málum sem eru aðkallan...

Dec 04, 20242 hr 34 minEp. 138

#217 Selárdalur - 2. Þáttur: Gísli á Uppsölum

Sjaldan gerist það að maður verði frægur á einni nóttu. Svo var þó bókstaflega um Gísla Oktavíanus Gíslason frá Uppsölum í Selárdal. Hann var nánast algjörlega óþekktur áður en Ómar Ragnarsson, landskunnur sjónvarpsmaður, bankaði upp á hjá honum árið 1981. Þátturinn Stiklur var sýndur á jóladag árið 1981. Þá var íslenskt samfélag að nútímavæðast hratt. Allir vildu eiga nýjustu tækin, hvort sem um var að ræða litasjónvarp, myndbandstæki, fótanuddtæki eða Soda-Stream. Því sat þjóðin gapandi af und...

Nov 06, 20243 hr 34 minEp. 137

#212 Fimmmenningarnir frá Yuba

Þann 24. febrúar árið 1978 fóru fimm menn frá Yuba-sýslu í Kaliforníu á körfuboltaleik í Chico, nálægum bæ. Uppáhaldsliðið þeirra var að keppa og vildu þeir styðja það. Sjálfir áttu þeir að leika mikilvægan leik daginn eftir. Þeir glímdu allir við minniháttar þroskahamlanir. Þeir stóðu sig þó almennt ágætlega í að takast á við áskoranir lífsins. Þeir voru allir í sama körfuboltaliðinu og daginn eftir var mikilvægur leikur. Sigurvegararnir áttu að fá í verðlaun vikuferð til Los Angeles. Allir vor...

Oct 02, 20242 hr 25 minEp. 136

#208 Súdan: Mesta mannúðarkrísa veraldar

Afríkuríkið Súdan hefur vissulega kynnst átökum áður en eftir borgarastyrjöld sem hófst 2023, ríkir þar nú slík óöld að annað eins hefur varla sést á heimsvísu í lengri tíma. Um 50 milljónir búa í þessu stóra landi. Um 13 milljónir eru nú á vergangi og án heimilis. Í nágrannalöndunum og víðar eru nú um 3-4 milljónir flóttamanna. Þeir aðilar sem berjast um völdin hafa beitt skefjalausu ofbeldi og svífast einskis. Ítrekað hefur verið ráðist á spítala og bílalestir með matvæli og lyf. Nauðgunum hef...

Sep 04, 20241 hr 44 minEp. 135

#204 Fidel Castro

Þrátt fyrir að vera leiðtogi smáríkis þá kom hann Kúbu ansi langt inn á leikborð alþjóðastjórnmála. Raunar var Kúba miðpunkturinn í deilu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna árið 1962 en þá saup öll veröldin hveljur. Aldrei nokkurn tíma var eins mikil hætta á kjarnorkustríði milli stórveldanna. Fidel Castro er ugglaust einn umdeildasti leiðtogi sögunnar. Hann reif þjóð sína upp úr fátækt og stórbætti heilbrigðis - og menntakerfi. Andóf gegn stjórnvöldum var þó miskunnarlaust barið niður og fjölmiðlun...

Aug 07, 20243 hr 21 minEp. 134

#199 Andrew Carlssin og aðrir tímaferðalangar

Í marsmánuði árið 2003 handtók FBI, alríkislögregla Bandaríkjanna, mann að nafni Andrew Carlssin. Það vakti miklar grunsemdir hve vel honum hafði gengið í verðbréfaviðskiptum. Á aðeins tveimur vikum hafði hann hækkað 800 dollara í 350 milljónir. Þetta gat ekki verið tilviljun. Hart var sótt að Carlssin í yfirheyrslum. Fólk vildi vita um hans bandamenn í fjármálageiranum sem höfðu mögulega lekið upplýsingum. Illa gekk að fá nokkuð út úr honum. Þegar honum var hótað langri fangelsisvist virtist ha...

Jul 03, 20241 hr 33 minEp. 133

#195 Berlínarmúrinn

Þáttur dagsins fjallar um eitt alræmdasta tákn kalda stríðsins og "Járntjaldið" illræmda sem aðskildi Evrópu í marga áratugi. Vestur-Berlín hafði algjörlega sérstöðu. Borgin tilheyrði Vestur-Evrópu en var stödd mitt í kommúnistaríkinu sem var Alþýðulýðveldið Þýskaland, einatt kallað Austur-Þýskaland. Árið 1961 hófu yfirvöld í Austur-Berlín að byggja múr sem aðskildi borgarhlutana í tæpa þrjá áratugi. En af hverju var þessi múr reistur og hvaða afleiðingar hafði það? Við reynum að svara þeim spur...

Jun 05, 20242 hr 19 minEp. 132

#190 „Brjálaði Svíinn“: Stutt en viðburðarík ævi Göran Kropp

Sumir lifa lengi en ævi þeirra er róleg og viðburðalítil. Svo var ekki hvað Göran Kropp varðaði. Hans drifkraftur var ást á fjallaklifri. Hann varð brátt vel þekktur í þeim heimi vegna mikillar útgeislunar en einnig sérvisku. Kropp var ekki hrifinn af því að fara auðveldustu leiðina. Hann leitaðist sífellt eftir nýjum og krefjandi áskorunum. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook...

May 01, 20241 hr 55 minEp. 131

#186 Carlos Kaiser: Fótboltamaðurinn sem forðaðist fótbolta

Svikahrappar og svindlarar hafa ætíð vakið sérstaka athygli og jafnvel aðdáun meðal almennings. Stundum er ekki annað hægt en að dáðst að hugkvæmni þeirra sem nýta sér persónutöfra og samskiptahæfni til að koma sér áfram í lífinu. Vissulega eru til svindlarar sem engin ástæða er til að dást að. Fólk sem markvisst nýtir sér jafnvel neyð annarra og hagnast á því. Carlos Henrique Raposo fellur ekki í þann flokk hreinræktaðra illmenna en svikahrappur var hann vissulega og er í dag fyrstur til að við...

Apr 03, 20241 hr 32 minEp. 130

#182 Norður-Kórea 1. þáttur: Járnhæll Japans, Kóreustríðið og Kim Il Sung

Styrktaraðilar á Patreon fá í hverjum mánuði að velja á milli þriggja málefna. Að þessu sinni var stuðst við lýðræðisvísitölu breska tímaritsins The Economist. Valið stóð á milli þriggja ríkja sem reglulega verma botnsætið á þeim lista, teljast ein þau ólýðræðislegustu í heimi. Það voru Túrkmenistan, Sýrland og Norður-Kórea. Síðastnefnda ríkið varð hlutskarpast. Við beinum því nú sjónum að einu lokaðasta og ólýðræðislegasta ríki veraldar. Efnið er yfirgripsmikið og ótrúlegt svo það var ákveðið a...

Mar 02, 20241 hr 59 minEp. 129

#178 Hægri umferð

Sú var tíðin að sagnfræði fjallaði aðallega um hin „stóru efni“. Viðfangsefnin voru konungar, keisarar og heimsveldi. Eins og aðrar fræðigreinar hefur hún þróast og í dag má heyra talað um allskonar sögurannsóknir. Það er nefnilega oft áhugaverð saga á bakvið ýmislegt sem í fyrstu virðist ekki sérlega merkilegt. Hægri umferð var tekin upp á Íslandi þann. 26. maí 1968 á hinum svokallaða H-degi. Landsmenn voru spenntur fyrir þessu og undirbúningur var til mikillar fyrirmyndar. Ísland var eitt af s...

Feb 07, 20241 hr 39 minEp. 128

#173 Óvinkonur Guðs - Sérstakur gestur: Dr. Yngvi Leifsson

Við höfum áður minnst á ólíkar nálgunaraðferðir sagnfræðinnar. Ein þeirra er einsagan. Þar skoða sagnfræðingar samfélagið og söguna frá einstaklingum. Oft er ekki um að ræða þjóðarleiðtoga eða ráðamenn. Frekar er það almenningur eða jafnvel fólk sem taldist vera neðarlega í goggunarröð samfélagsins. Í þessum þætti fáum við góðan gest í heimsókn en það er sagnfræðingurinn Yngvi Leifsson. Hann hefur lengi dvalist í borginni Salamanca á Spáni og stundað sínar rannsóknir þar. Salamanca var á sínum t...

Jan 03, 20241 hr 19 minEp. 127

#167 Ísrael - Palestína 3. þáttur - Intifada, PLO, Hamas og Hezbollah

Árið 1987 sauð upp úr á Vesturbakkanum og Gaza. Ísraelar höfðu stóraukið umsvif á landnemabyggðum og hert mjög allt eftirlit. Palestínumenn hófu að kasta grjóti og var svarað með kúlnahríð. Í kjölfar þessarra átaka minnkaði mjög stuðningur við PLO en öfgafull samtök múslíma sem kölluðu sig Hamas fengu mikinn meðbyr. Í Líbanon fór að bera meira á herskárri hreyfingu sem kallast Hezbollah. Í þessum þætti ljúkum við yfirferð okkar um þessa hatrömmu deilu fyrir botni Miðjarðarhafs. Við skoðum helstu...

Dec 11, 20232 hr 17 minEp. 126

#166 Ísrael - Palestína 2. þáttur - Stríð á stríð ofan

Ísraelsríki var stofnað í maí 1948 og hóf tilveru sína strax með því að berjast hatrammlega fyrir henni. Aðeins fáum klukkustundum eftir að sjálfstæðisyfirlýsingin var tilkynnt, réðust herir frá Egyptalandi, Sýrlandi, Líbanon og Írak inn í landið. Ísrael var þá að mestu án öflugra vina en nú sárvantaði þá vopn og verjur. Aðeins voru til vopn fyrir einn hermann af þremur. Í snarhasti tókst að kaupa vígtól frá Frakklandi og Tékkóslóvakíu. Ísrael var fljótt að snúa vörn í sókn og hrinti árás Arabar...

Dec 11, 20231 hr 50 minEp. 125

#165 Ísrael - Palestína 1. þáttur - Síonismi og leiðin aftur til landsins helga

Um þessar mundir standa yfir blóðug átök á Gaza-svæðinu. Allt frá stofnun Ísraels-ríkis árið 1948 hefur verið mikil ólga í kringum það. Við vildum skyggnast aðeins inn í þessa sögu. Hvers vegna er barist og hví var Ísraels-ríki stofnað nákvæmlega á þessum stað, við mikil mótmæli þeirra sem þar bjuggu fyrir? Til að fá heildarmynd verðum við að byrja ferð okkar mun fyrr. Þessi þáttur skoðar sköpun þeirrar hugmyndafræði sem kallast Síonismi og snerist um það markmið að koma á fót og viðhalda gyðing...

Dec 11, 20231 hr 51 minEp. 124

#169 Pólitík og fótbolti: Lutz Eigendorf, Matthias Sindelar o.fl.

Við heyrum oft fólk segja að pólitík eigi ekki heima í listum og íþróttum. En er það rétt? Hafa listamenn í gegnum tíðina ekki bara verið mjög pólitískir heldur hreinlega haft áhrif á því sviði? Hafa Bob Dylan og Bubbi Morthens ekki verið pólitískir. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvernig fótbolti og stjórnmál hafa rekist á hvort annað. Við tökum fyrir þá Lutz Eigendorf og Matthias Sindelar. Frábæra fótboltamenn sem margir telja að hafi verið ráðinn bani af tveimur illræmdustu leyniþjónustum ...

Dec 06, 20232 hr 23 minEp. 123

#164 Saga Tíbet

Tíbet á sér ríka og flókna sögu sem nær aftur til forsögulegra tíma. Ríkið Zhangzhung, sem var til á milli 500 f.Kr. og 625 e.Kr. er talið undanfari síðari tíma tíbetska konungsríkja. Tíbetska veldið var stofnað á 7. öld og stóð fram á 9. öld. Eftir tímabil sundrungar á 9.-10. öld og endurvakningu búddismans á 10.-12. öld, urðu til þrír af fjórum helstu skólum hins tíbetska búddisma. Tíbet varð í raun sjálfstætt á 14. öld og var stjórnað af ýmsum aðalsættum næstu 300 árin. Snemma á 18. öld varð ...

Nov 01, 20231 hr 46 minEp. 122

#160 Strand togarans Friedrich Albert árið 1903

Mörg skip hafa farist við Íslandsstrendur. Það er kaldranaleg tilhugsun að svartur sandur og hvítir jöklar hafa stundum verið það síðasta sem margir erlendir sjómenn sáu áður en hafið og kuldinn tóku líf þeirra. Stundum gerast atvik sem maður getur þó ekki annað en gapað yfir. Þátturinn í dag fjallar um slíkan viðburð sem átti sér stað fyrir 120 árum. Þá strandaði þýskur togari á einum allra versta stað sem hægt var að stranda á við þetta harðbýla land með sínum vægðarlausu vindum. Togarinn stra...

Oct 04, 20231 hr 33 minEp. 121

#156 Þorskastríðin. 1. þáttur: Aðdragandi

Á 20. öld átti Ísland í hatrammri deilu um fiskveiðilögsögu við margar þjóðir. Hörðust var deilan við Bretland sem sendi sjálfan flotann í þrígang á Íslandsmið til að skakka leikinn. Bretar göntuðust með að ekki væri nóg að það væri "Cold War", heldur væri nú komið "Cod War", eða þorskastríð. Nafnið hefur fest sig í sessi þrátt fyrir að þetta hafi á engan hátt verið stríð, í fullri merkingu þess orðs. Þessi deila er merkileg að mörgu leyti. Nú gátu stórveldi ekki lengur vaðið yfir þau smáu í kra...

Sep 06, 20231 hr 46 minEp. 120

#151 Landbúnaður í Albaníu

Flosi hefur oft sagt að hægt sé að gera nær allt áhugavert, nema mögulega landbúnaðarsögu Albaníu. Þetta er svona göngugrína (e. running gag) sem hlustendur þekkja ágætlega. Í hverjum þætti fá styrktaraðilar á Patreon að velja um þrjú umfjöllunarefni. Hið hlutskarpasta verður svo tekið fyrir í einum þætti. Það er Flosi sem sér um að koma með tillögur að þætti. Hins vegar er frestunarárátta hans stundum svo alvarleg að Baldur þarf rækilega að minna hann á. Síðast er þetta átti sér stað setti Bald...

Aug 02, 20231 hr 56 minEp. 119

#147 Barnið í loftbelgnum

Þann 15. október 2009 fékk neyðarlína Bandaríkjanna óhugnanlegt símtal. Hinum megin á línunni var skelfingu lostinn faðir. Með grátinn í kverkunum sagði hann sex ára son sinn hafa farið inn í heimasmíðaðan loftbelg sem hefði losnað og væri nú kominn í mörg hundruð metra hæð. Viðbragðsaðilar víðs vegar voru kallaðir út og m.a. sendi Þjóðvarðliðið eina Black Hawk herþyrlu í leitina. Betur fór en á horfðist en fljótlega fór fólk að gruna að ekki væri allt með felldu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynnt...

Jun 07, 20231 hr 20 minEp. 118

#142 Konurnar í lífi Hitlers

Þegar þeirri spurningu er kastað fram hver sé mögulega versta manneskja sem verið hefur uppi, kemur nafn Adolf Hitlers fljótt upp. Hann leiddi þjóð sína og raunar veröldina alla út í verstu og mannskæðustu styrjöld sögunnar. Ofstækisfullar skoðanir hans voru fullar af hatri og illsku. Það er erfitt að ímynda sér að þannig maður hafi getað elskað. Þó er það svo að Adolf Hitler átti í ástarsamböndum eða a.m.k. mjög nánu sambandi við nokkrar konur. Sögur þeirra eru sorglegar enda var greinilega ekk...

May 03, 20232 hr 45 minEp. 117

#138 Laxdæla saga

Styrktaraðilar á Patreon fengu að velja um þrjár Íslendingasögur: Gunnlaugs saga Ormstungu hlaut aðeins 18% atkvæða. Gísla saga Súrssonar fékk 37%. Það var því ljóst að flest vildu heyra okkur taka fyrir Laxdæla sögu sem fékk 45%. Hún er ein af þessum stóru. Við höfum áður fjallað um Njáls sögu, Grettis sögu og Egils sögu. Því má segja að við séum nú búnir að fullkomna þessa yfirferð. Laxdæla er alveg einstök hvað þessar miðaldabókmenntir varðar. Hún er lang dramatískasta sagan og hefur oft vaki...

Apr 05, 20232 hr 17 minEp. 116
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android