#159 Ragnar Sigurðsson
Gestur Chess After Dark í kvöld er Ragnar Sigurðsson fyrrum atvinnumaður og fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu. Tókum góðan tíma í að fara vel yfir sviðið.
Birkir Karl Sigurðsson & Leifur Þorsteinsson ásamt gestum.
Fyrirspurnir: chessafterdark@chessafterdark.is

Gestur Chess After Dark í kvöld er Ragnar Sigurðsson fyrrum atvinnumaður og fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu. Tókum góðan tíma í að fara vel yfir sviðið.
Nýjasti gestur Chess After Dark er Garðar Gunnlaugsson fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og Herra Ísland. Nokkur umræðuefni í þættinum: Skaginn Kai Havertz CSKA Sofia - lífið í Búlgaríu. Bikar Garðar Garðar Gunnlaugs árið 2016 eða Arnar Gunnlaugs 1995? Garðar gerði ferlinum sínum afar góð skil með skemmtilegum sögum. Látið ekki þennan frábæra þátt framhjá ykkur fara. Eigið frábæra helgi.
Heimsóttum Arnór Sigurðsson til Manchester. Arnór er leikmaður Blackburn Rovers á Englandi og íslenskur landsliðsmaður en fyrst og fremst sómadrengur. Hljóðið var aðeins að stríða okkur - við biðjumst afsökunar á því. Að því sögðu var þátturinn einn sá allra besti í 150 þátta sögu CAD ef þið spyrjið sælkerabræður svo við hvetjum ykkur til að leiða það hjá ykkur. Takk fyrir samfylgdina í 150 þætti, þakklæti og fleira. Birkir & Leifur
Gestur Chess After Dark í þætti 150 er Hákon Rafn Valdimarsson einn okkar allra besti markvörður í dag - ef ekki sá besti. Síðasti þáttur fyrir Manchester ferðina - næst heyrumst við kæru hlustendur í Manchester þar sem við hittum Jóa Berg & Arnór Sig.
Davíð Kristján Ólafsson - vinstri bakvörður af guðs náð. Uppalinn Bliki hóf atvinnumannaferil sinn 2019 þegar hann samdi við Álasund í Noregi. Davíð spilar í dag með Kalmar í Svíþjóð.
Gunnar Smári er blaðamaður, útgefandi og ritstjóri. Gunnar er núverandi stjórnarmaður og ábyrgðarmaður frétta hjá Samstöðinni - hann hefur stofnað og starfað í fjölmörgum miðlum, bæði á Íslandi og erlendis. Gunnar hefur einnig verið virkur í stjórnmálum og er einn af stofnendum Sósíalistaflokksins.

Diljá Mist Einarsdóttir er þingkona Sjálfstæðisflokksins og formaður Utanríkismálanefndar.
Gestir Chess After Dark eru tveir í þetta skiptið Agnar Tómas Möller - fyrrum sjóðstjóri hjá Kviku eignastýringu. Agnar hefur starfað á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2001. Agnar er með MSc gráðu í iðnaðarverkfræði og nemur núna nám í Sagnfræði. Þórður Pálsson - forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og fjármálasérfræðingur með meiru.