Sprengisandur 15.06.2025 - Viðtöl þáttarins - podcast episode cover

Sprengisandur 15.06.2025 - Viðtöl þáttarins

Jun 15, 20251 hr 29 minEp. 1581
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Iðnaðarmál/álframleiðsla Guðríður Eldey Arnardóttir, framkvæmdastjóri Samáls   Guðríður ræðir stöðu áliðnaðar á Íslandi en framleiðendur geta nú andað léttar eftir að nýr umhverfisráðherra lýsti eindregnum stuðningi við framleiðslu áls á Íslandi. En þessi iðnaður býr við óvissu á alþjóðamörkuðum, sérstaklega í tollamálum en ekki síður vegna harðnandi samkeppni við niðurgreidda framleiðslu í Kína og víðar. 

Efnahagsmál/skattamál Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins Daði og Jón Ólafur rökræða skattastefnu stjórnvalda. Skattar eru of háir, nú er rétti tíminn til að staldra við og endurskoða þá að mati SA. Hvernig bregst fjármálaráðherrann sem þarf að leiðrétta hallarekstur ríkisins við þessu?

Stjórnmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, form. Miðflokksins Dagbjört Hákonardóttir alþ. maður Samfylkingar Bryndís Haraldsdóttir, alþm. Sjálfstæðisflokksins Alþingismenn ræða þingveturinn, þinglokin, helstu mál þ.m.t. bókun 35. Utanríkismál hafa verið mjög í deiglunni og ekki síst aukning útgjalda til varnarmála - þangað eiga að renna háar fjárhæðir sem fjármagna verður með einhverjum hætti. 

Alþjóðamál Erlingur Erlingsson, sérfræðingur í alþjóðamálum Erlingur  ræðir stöðuna í stríði Ísraels og Írans. Hvert er markmið þessara þjóða með stríðsrekstri, hversu nálægt eru Íranir því að koma sér upp kjarnavopnum, munu Bandaríkin dragast beint inn í þessi átök og hver yrðu áhrifin af því?

For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android