Börkurinn - podcast cover

Börkurinn

Ásgeir B. Ásgeirssonwww.facebook.com
Áhugavert fólk, áhugaverðar sögur.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#15 Inga Birna Ársælsdóttir

Inga Birna er ein af okkar fremstu glímukonum. Hún er brúnbeltingur í Brasilísku Jiu-Jitsu, einkaþjálfari og all around bad ass! Ég byrjaði viðtalið á smá fanboy momenti þar sem ég tjáði henni að hún væri uppáhalds glímarinn minn. Hún hefði vissulega getað labbað út en hún ákvað að sitja aðeins lengur og úr varð frábært og mjög fræðandi spjall! Ræddum hvar glímu áhuginn byrjaði, mikilvægi styrktarþjálfunar, virðingar kúltúrinn í bardaga íþróttum, næringarfræði, mat og matseld og margt margt flei...

Oct 02, 20181 hr 12 min

#14 Eyrún Telma Jónsdóttir

Eyrún Telma er næsti gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp. Það sem hefur alltaf hrifið mig við bæði hana og mannin hennar, Rúnar Geirmunds, er hversu hreinskilinn og opinn þau eru með lífið almennt. Það eru engin vandamál einungis lausnir. Ræddum nýafstaðna giftingu, fimleika, lyftingar, lífið með Endómetríósu, glasafrjóvgun, ástina á Grundarfirði, húðflúr og margt fleirra. Opið, einlægt og áhugavert spjall! Takk fyrir mig Eyrún!

Sep 27, 20181 hr 16 min

#13 Þórsteinn Sigurðsson

Ljósmyndarinn Þórsteinn Sigurðsson er næsti gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp. Að fanga íslenskan raunveruleika, í myndum, er hægara sagt en gert. En ef ástríðan og það að vera ekki sama um hlutina er til staðar, þá eru allir vegir færir. Við ræddum Container Society, Juvenile Bliss, frú Ragnheiði, veganisma, húðflúr, hip-hop og margt fleirra. Stórskemmtilegt spjall við hella áhugaverðan gaur!

Sep 21, 20181 hr 19 min

#12 Atli Fannar Bjarkason

Fyrstu kynni mín af Atla Fannari var í gegnum pönk rokk hljómsveitina Hölt Hóra. Hann byrjaði þó snemma að grúska í fjölmiðlageiranum. Fyrst sem penni hjá héraðsfréttablaði, svo varð hann ritstjóri Monitor og seinna meir stofnandi og eigandi vefmiðilsins Nútímans. Töluðum um Höltu Hóruna, hvar áhuginn á fréttamennsku byrjaði, málefnaleg og ómálefnaleg tíst, pólítík, geðveikina sem fylgir því að stofna fyrirtæki, heilsu / hreyfingu og margt margt fleirra. Stórskemmtilegur, málgóður ( bjó til þett...

Sep 19, 20181 hr 18 min

#11 Bjarki 'The Kid' Ómarsson

Bjarki Ómarsson er einn af okkar fremstu MMA bardagamönnum. Hann stundaði ýmsar íþróttir á sínum yngri árum en innst inni blundaði alltaf áhugi á bardagaíþróttum. Hann byrjaði frekar snemma að sækja í það sem Mjölnir hafði upp á að bjóða og hefur ekki litið í baksýnis spegilinn síðan þá. Hann hefur stóra drauma og fyrsta skrefið tók hann á síðasta ári þegar hann barðist sinn fyrsta atvinnumanna bardaga. Við ræddum upphafið, nautnina að lemja á eldri andstæðingum, meiðsli, hvernig atvinnubardagam...

Sep 11, 20181 hr 29 min

#10 Andri & Ólafía x Immortal

Andri og Ólafía eru eigendur tattoo stofunar Immortal. Immortal er svolítið sér á báti hérlendis hvað varðar allt ferlið sem fylgir því að fá sér húðflúr. Þau leggja mikið upp úr því að upplifunin allt frá byrjun og til enda sé ánægjuleg, viðskiptavinurinn fær verk sem skapað er frá grunni og umhverfið er þess eðlis að upplifunin verður sjálfkrafa jákvæð. Eins og þau segja sjálf þá eru þau alveg svart og hvítt. Andri sér um allt sem tengist rekstrinum og Ólafía fær að njóta þess að vera listamað...

Aug 30, 20181 hr 43 min

#9 Katrín & Urður x Hórmónar

Katrín og Urður eru tvær af fimm meðlimum hljómsveitarinnar Hórmóna. Hljómsveitin vann músíktilraunir árið 2016 og það er óhætt að segja að á seinustu tveimur árum hefur verið brjálað að gera. Tónleikar hérlendis, work-shop á vegum músíktilrauna erlendis, Airwaves og það að átta sig á því hvað fylgir því að vera eftirtektaverkt band á Íslandi. Upphafið, skyndileg frægð, tilfinningar ofar hæfni, listræn tjáning og upptökur á plötu sem gefinn verður út 24 ágúst er aðeins fátt af því sem við spjöll...

Aug 15, 20181 hr 8 min

#8 Guðjón Svansson

Ef ég ætti fullt fullt af peningum myndi ég ráða Gaua í fullt starf sem lífstíls-þjálfarann minn. Alveg frá því við kynntumst höfum við getað spjallað og rætt hlutina í þaula. Viðfangsefnið er vítt, en við eigum það sameiginlegt að vera miklir spekúlantar þegar kemur að almennri heilsu og hugarfarslegum þáttum tengdum íþróttum og lífinu. Munurinn á mér og Gaua er að hann er vel lesinn, hefur prufað allan fjandann sjálfur og talar af reynslu. Ég hinsvegar, ríf bara kjaft. Ræddum hvar áhugi hans á...

Aug 09, 20181 hr 37 min

#7 Steinar Fjeldsted

Motherfucking Stoney maður. Steina þekkið þið flest sem einn af meðlimum Quarashi, en það er svo mikið meira á bakvið nafnið eins og ég fékk að kynnast í því frábæra spjalli sem við áttum. Honum er annt um hlutina sem eru nálægt hjarta hans. Hjólabretti, tónlist & götutíska er það sem fær hann til tikka og það er óhætt að segja að lífið hans snúist 24/7 um þessa þrjá hluti! Fórum yfir Quarashi tíman, albumm.is, Skugga Reykjavík, hjólabretta menninguna á Íslandi og margt margt fleirra. Hálf s...

Aug 03, 20181 hr 26 min

#6 Finnbogi & Jón x Une Misère

Finnboga og Jón þekki ég úr Íslensku þungarokks senunni. Þeir eru meðlimir í hljómsveitinni Une Misère sem hefur heldur betur látið til sín taka á seinustu tveimur árum. Þeir hafa verið iðnir á þessum tíma og spilað á stórum hátíðum bæði innanlands og erlendis. Bandið er stórhuga og með skýra sýn á hvað það vill ná fram og afreka í náinni framtíð. Upphafið, tour-life, heilbrigður lífstíll, þungarokk í nútíma samfélagi, fortíðin, hip hop og tónleikar í portinu á Prikinu er aðeins hluti af því sem...

Jul 25, 20181 hr 15 min

#5 Arnar Leó

Homie Arnar Leó er næsti gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp. Ásamt því að vera hella fresh 24/7 þá er hann einn af eigendum/stofnendum Reykjavík Roses og verslunarstjóri í Smash Kringlunni. Töluðum um upphafið á Reykjavík Roses, tísku, hip hop, hip hop á íslandi, fræga einstaklinga, shout-outuðum fullt af fólki og enduðum á svakalegri business hugmynd. Áhugavert spjall við jarðbundin ungan frumkvöðul og algjöran topp dreng!

Jul 11, 201854 min

#4 Pétur Marinó

Pétur Marinó er stofnandi mmafrettir.is og rödd MMA samfélagsins á Íslandi. Ef þið viljið vita eitthvað um bardagaíþróttir og þá MMA sérstaklega er Pétur maðurinn til að tala við. Áhugi hans á íþróttinni er gífurlegur og vitneskjan en meiri. Töluðum um upphafið á fréttamennskunni, stöðuna á MMA á Íslandi, Gunnar Nelson og UFC 226 svo eitthvað sé nefnt. Við hefðum getað talað í 4-5 klst en létum 2 vera nóg. Pétur er gestur númer fjögur í Börkurinn Hlaðvarp.

Jul 04, 20182 hr 7 min

#3 Dagur Gunnars

Dagur Gunnars er flúrari af guðs náð. Dagur starfar á Bleksmiðjunni þar sem hann krotar á fólk einkar fallegar myndir. Ég kynntist Degi sumarið 2014 og hann er eini maðurinn í heiminum sem ég sendi skilaboð reglulega og segi "Ég sakna þín, hvenær geturu meitt mig ?". Dagur er gull af manni og er þriðji gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp.

Jun 25, 20181 hr 11 min

#2 Emil Þór Guðmundsson

Emil hefur engan tíma, enda harðduglegur maður. Ef þið kannist ekki við manninn þá er nóg að googla "66 norður" þá er ég viss um að þið kveikjið. Hann er hjólreiða áhugamaður mikill og útiveran er vinur hans. Spjölluðum um hjól, ferðalög, fyrirsætustörf, kaffi, skegg og hugtakið hipster. Emil er eigandi KRÍA Cycles.

May 30, 20181 hr 4 min

#1 Rúnar Hroði Geirmundsson

Rúnari kynntist ég í gegnum íslensku þungarokks senuna. Kraftlyftingar, húðflúr, tónlist, samfélagsmiðlar og dass af fótbolta var rauði þráðurinn í spjallinu okkar. Hroðalega áhugaverður gaur að gera það sem hann elskar.

May 18, 201855 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android