22 ára karlmaður í blóma lífsins var á leið heim í frí frá vinnu til Winnipeg í Kanada í margra klukkutíma rútuferð. Á miðri leið er furðulegum manni hleypt um borð í rútuna og ENGINN gat séð fyrir hvað síðan gerðist, en lögreglumaður sem var fyrstur á vettvang tók eigið líf nokkrum árum seinna því hann gat ekki lifað með því sem hann hafði séð. Brútal þáttur gott fólk!
Feb 29, 2024•23 min
Mál dagsins er þekkt sem "The Valentine Murders" og átti sér stað á valentínusardaginn árið 1971 í Durham í Norður-Kaliforníu. Ungt par hverfur sporlaust þegar það yfirgefur háskólaball sem var haldið í tilefni ástarinnar. Það sem kom síðan í ljós skildi alla sem parið þekkti, samfélagið og yfirvöld eftir í yfirgnæfandi sorg og svo mörgum spurningum sem verður líklega aldrei svarað.
Feb 21, 2024•23 min
Renae var tvítug kona frá Sydney og var í ástarsambandi með Brayden, en hann sat í fangelsi. Hún hafði aldrei hitt hann eða talað við hann í síma en þrátt fyrir það, elskaði hún hann útaf lífinu. Þegar Brayden segir henni upp eftir 18 mánaða skilaboða samband kemst í ljós að ekki var allt eins og það sýndist og þá var orðið of seint að leiðrétta hlutina.
Jan 22, 2024•33 min
Tim var sjúkur í að brjóta af sér, vera óheiðarlegur og að komast upp með það. Hann var prestur, eða predikari sem allir sem þekktu hann, dýrkuðu- og trúðu allir að hann væri góður fjölskyldumaður. Hræðilegt slys á sér stað á heimili Tims, sem rífur fjölskylduna hans í sundur, en var það slys?
Dec 27, 2023•34 min
Andrea Mohr var kókaín drottning árin 1993-1996 og flutti kókaín í hundruðum kílóa frá Kólumbíu til Ástralíu. Þegar kærastinn hennar blandar sér inn í innflutninginn á efnunum tekur líf Andreu allt aðra stefnu og karma lætur hana borga fyrir lögbrotin.
Nov 30, 2023•35 min
Árið 2016 hringir 22 ára karlmaður í Kanada í neyðarlínuna og segist hafa myrt báða foreldra sína. Rannsóknarlögreglan fer að heimili fjölskyldunnar og kemur þar að skelfilegum vettvangi.
Oct 27, 2023•19 min
Robert Hansen leit út fyrir að vera meinlaus bakari í Alaska sem afgreiddi lögregluna og aðra kúnna daglega í vinsæla bakaríinu sínu, stundaði veiðiáhugamál og var tveggja barna faðir og eiginmaður- EN, ekki dæma bókina út frá kápunni eins og oft er sagt. Hann fékk 461 ára fangelsisdóm þegar upp komst um hann.
Sep 27, 2023•26 min
Mindy Schloss er hjúkrunarfræðingur sem var á leið í mánaðarlega vinnuferð þegar hún hverfur bara eins og jörðin hafi gleypt hana og finnst hvergi. Þegar betur er að gáð er nágranni hennar frekar grunsamlegur náungi, en fljótt kemst í ljós að hann hafi mögulega eitthvað haft með hvarfið að gera.
Aug 08, 2023•30 min•Season 2Ep. 21
Marti Hill var á leið í vinnuna einn morguninn þegar einhver bankar uppá hjá henni. Hún hinsvegar, endar óþekkjanleg og í lífshættulegu ástandi uppá spítala og er ekki hugað líf. Hver var ástæðan fyrir þessari árás og hver myndi vilja gera henni þetta?
Jul 25, 2023•32 min•Season 2Ep. 19
Steven og Charlotte voru ástfangin uppyfir haus árið 2003 og lifðu hátt og dýrum lífsstíl saman í Sydney í Ástralíu. Eitt símtal kallar út allt slökkviliðið sem kemur að iðnaðarskemmu í Riverstone með læstum dyrum sem eru brotnar upp. En það er eitthvað allt annað en eldur sem tekur á móti slökkviliðinu þegar þangað var komið inn.
Jul 18, 2023•24 min•Season 2Ep. 19
Eric Smith var skapstór 13 ára krakki sem var mikið strítt í skólanum fyrir að vera rauðhærður, með frekknur og þykk gleraugu á nefinu. Einn daginn þegar hann var að hjóla á leið í sumarbúðir, tók hann reiði sína út á hrottalegan hátt og sundraði fjölskyldum í sundur fyrir lífstíð.
Jul 11, 2023•18 min•Season 2Ep. 6
Í þessum þætti segi ég frá myrku hliðum internetsins en það inniheldur meira af ólöglegum og viðbjóðslegum hlutum en við gerum okkur grein fyrir. Peter Scully var á flótta á undan lögreglu í 4 ár en hann framleiddi myndband sem seldist á dark web og lak óvart til almennings en það myndband var talið vera eitt af því versta sem sést hefur. Þátturinn er alls ekki við hæfi barna eða viðkvæmra.
Jul 04, 2023•25 min•Season 2Ep. 4
Í þessum þætti segi ég frá hjónunum Bart og Krista Halderson sem hurfu sporlaust árið 2021 en það er ekki algengt að hjón týnist á sama tíma. Snapchat location skjáskot leiðir rannsókn málsins á réttu sporin.
Jun 27, 2023•20 min•Season 2Ep. 3
Í þessum seinni hluta segi ég frá hvað það var sem Jerry Brudos þráði og eltist við til að svala eigin þörfum en það voru fjórar ungar konur sem urðu því miður á vegi hans. Ég vil vara sérstaklega við þessum þætti, hann er ekki fyrir börn eða viðkvæma.
Apr 26, 2023•47 min•Season 1Ep. 24
Í þessum þætti kynni ég til leiks: The shoe fettish killer, öðru nafni þekktur sem The lust killer. Það var Jerry Brudos, virkilega veikur einstaklingur, sem myrti a.m.k fjórar konur til að svala sínum eigin fársjúku þörfum. En hann gekk enn lengra en margir aðrir morðingjar. Ég fer dálítið djúpt ofan í æskuna hans og ofbeldið sem hann bjó við alla ævi. Hann er kallaður the shoe fettish killer, vegna þess að frá því að hann var aðeins 5 ára, byrjaði að bóla á stigvaxandi, sjúkri þráhyggju hans, ...
Apr 19, 2023•45 min•Season 1Ep. 23
Lenoria Jones fæddist inn í þennan heim eftir að hafa fengið kókaín á hverjum degi í 9 mánuði í gegnum naflastrenginn frá mömmu sinni, svo byrjunin á ævi hennar var virkilega sársaukafull og erfið. Hvorugir foreldrar hennar voru hæfir til að sjá um hana, enda ekki vitað einu sinni hver pabbinn var, svo frænka hennar sem elskaði börn tók hana að sér og allt gekk vel. Einn daginn fara þær saman í Target að versla og þá hefst martöð allra mæðra, sem er svo óútskýranleg að það er með ólíkindum....
Apr 12, 2023•30 min•Season 1Ep. 22
Shana Grice var 19 ára og falleg stúlka frá Brighton í Englandi sem varð fyrir þeirri ömurlegu reynslu að fyrrverandi kærastinn hennar beitti hana alvarlegu ofbeldi og stalkaði hana daglega linnulaust. Lögreglan gerði lítið úr tilkynningum Shana sem á endanum fann fyrir vonleysi að þessi martröð myndi einhverntíman enda. Vegna aðgerðarleysi lögreglunnar, endar málið á versta mögulega hátt.
Apr 05, 2023•29 min•Season 1Ep. 21
Í þessum þætti segi ég ykkur frá einu versta fangelsi í heimi sem er staðsett í Rússlandi og fangarnir þar eru af allra verstu sort. Raðmorðingjar, barnaníðingar, hryðjuverkamenn, mannætur og allra verstu skrímsli Rússlands þurfa að búa við hræðilegar og óbærilegar reglur og fer enginn þaðan- nema í líkkistu.
Mar 29, 2023•19 min•Season 1Ep. 20
Málið í dag gerist árið 2004 og fjallar um morðingja sem er sagður hafa verið „raðmorðingi in the making“ en hann var aðeins 14 ára þegar hann myrti besta vin sinn og ætlaði að drepa annan vin sinn líka.
Mar 22, 2023•30 min•Season 18Ep. 1
Í þessum þætti sem er í lengri kantinum, fjalla ég um sorglegt og óskiljanlegt morðmál sem á sér stað árið 2017 í friðsælu fjölskylduhverfi sem glæpir þekktust bara ekki. Pleskovic fjölskyldan var búin að upplifa í heilt ár óhugnanlegar mannaferðir í kringum heimili þeirra og tilraunir til innbrota en lögreglan gat ekkert gert þótt tilkynningarnar væru óteljandi frá fjölskyldunni. Þangað til eitt kvöldið, breyttist allt og yndisleg fjölskylda rifin í sundur á einu augabragði. Hver það var sem fr...
Mar 15, 2023•48 min•Season 1Ep. 18
Anatoly Moskvin var rússneskur maður með ástríðu fyrir dauðanum, kirkjugörðum og svarta galdri. Eftir að hann var neyddur til að giftast látinni 11 ára stúlku, aðeins 9 ára gamall var ekki aftur snúið og hann varð gjörsamlega heltekinn af dauðanum. Anatoly heimsótti 752 kirkjugarða víða um Rússland en enginn vissi hvað hann gerði bak við luktar dyr í frítíma sínum. Án efa eitt skelfilegasta mál sem ég hef heyrt.
Mar 08, 2023•24 min•Season 1Ep. 15
Í þessum þætti fjalla ég um hjónin Bob & Thomas sem búa í afskekktum kofa inni í skógi og bjóða uppá óvanalega þjónustu sem er kolólögleg og verulega undarlegt að einhverjir nýta sér. Þeir voru virkir á samfélagsmiðlum á þessum tíma árið 2020 og voru oft að live-streama viðburðum frá persónulega lífi þeirra.
Mar 01, 2023•28 min•Season 1Ep. 14
Í þessum seinni parti af morðmálinu um Adrianne Jones kemur morðinginn upp um sjálfan sig í Truth or Dare leik inni á heimavist háskólasvæðis í Texas. Myndi maður myrða fyrir ástina?
Feb 22, 2023•25 min•Season 1Ep. 14
Vændiskonur eru að finnast myrtar í Dallas og allar eiga þær það sameiginlegt að augun þeirra hafa verið fjarlægð úr þeim.
Feb 01, 2023•22 min•Season 1Ep. 12
Allt leit út fyrir að dagurinn yrði eins og hver annar hjá rútubílstjóranum Ed, er hann keyrði gula skólarútu, fulla af börnum sem voru á leið heim. Hann grunaði ekki að þessi dagur myndi breytast í martröð sem leit ekki út fyrir að geta endað vel á neinn hátt.
Jan 25, 2023•33 min•Season 1Ep. 11
Israel Keyes var bandarískur fjölskyldufaðir og raðmorðingi sem tók gremju- og reiði sína út á saklausu fólki útum öll Bandaríkin. Þegar hann verður útskúfaður úr fjölskyldunni, stóð hann við að framkvæma sjúkar fantasíur um pyntingar og morð. Lögreglan er engu nær, tengir ekki einu sinni morðin saman. Hann sendi fjölskyldu eins fórnarlambsins mynd sem er virkilega óhugnanleg þegar í ljós kom hvað var raunverulega á myndinni. Hvað var það?
Jan 18, 2023•26 min•Season 1Ep. 10
Við höldum áfram að ræða þá Norris og Bittaker í þessum seinni hluta en í honum segi ég frá ódæðunum sem þeir framkvæmdu á 5 mánaða tímabili. Sönnunargagn sem er engu líkt fékk 100 viðstadda dómssalinn til að kasta upp, gráta með ekkasogum og verða aldrei þeir sömu aftur. Á meðan sat Bittaker með bros á vör og sló á létta (ófyndna) strengi. Ég vil vara sérstaklega við grafískum lýsingum í þessum þætti.
Jan 11, 2023•38 min•Season 1Ep. 9
Tool Box Killers voru tveir sjúkir fantar sem kynntust í fangelsi í suðurhluta Kaliforníu. Þeir komust að því að þeir deildu sama áhugamálinu sem er ekki eins og þau gerast flest. Í þessum fyrri hluta þáttarins segi ég ykkur frá raðmorðingjunum Norris og Bittaker, sem báru ábyrgð á að fimm stúlkur á unglingsaldri týndu lífi sínu á fimm mánaða tímabili árið 1979.
Jan 04, 2023•28 min•Season 1Ep. 8
The Bathtub Killer er sakamál dagsins en það er stórfurðulegt í alla staði og skilur eftir sig ótal spurningar. Á morðvettvangi finnst fullkomið sönnunargagn sem lögreglan hefur trölla trú á. Ekki bara á einum morðvettvangi, heldur eru framin tvö morð sem eiga sér stað innan 3 mánaða og lögreglunni líður eins og þeir séu að upplifa deja vu! Þeir hafa séð seinni morðvettvanginn áður. Hvaða sturlaði og ósýnilegi morðingi er þetta? Væri gaman að heyra ykkar kenningu í málinu annaðhvort á Facebook g...
Dec 28, 2022•31 min•Season 1Ep. 8
Sabrina Zunich var aðeins 16 ára gömul þegar hún flutti inn á nýju fósturfjölskylduna sína sem buðu hana hjartanlega velkomna. Engum grunaði hvað sú ákvörðun ætti eftir að eiga í för með sér.
Dec 14, 2022•18 min•Season 1Ep. 5