Á hálendi Skotlands liggur djúpt og dimmt stöðuvatn sem lengi hefur vakið athygli umheimsins: Loch Ness. Þar á, samkvæmt sögunni, að búa dulræn vera sem oftast er kölluð Nessie. Líklega eitt frægasta dýr eða vatnaskrímsli veraldar, sem þó engum hefur tekist að færa sönnur á að sé til á óyggjandi hátt. En hver eða hvað er Nessie í raun og veru? Er hún mögulega einhverskonar leifar eða minnismerki um forsögulega tíma risaeðlanna? Skynvilla eða hugarburður misvitra og brenglaðra einstaklinga? Eða m...
Jul 11, 2025•1 hr 57 min
Við lærum um Forn-Grikkland, Mesópótamíu, Egyptaland og allskonar forn stórveldi í skóla. En var heilt heimsveldi vísvitandi strokað út úr sögunni? Við erum að tala um Tartaríu. Risavaxið veldi sem náði allt frá Rússlandi og langt inn í Asíu og jafnvel yfir til Ameríku. Stórveldi sem nýtti sér framsækið orkukerfi, háþróaða byggingarlist og mögulega allskonar tækni sem við eigum erfitt með að skilja enn þann dag líkt og fría endurnýjanlega þráðlausa orku. En hvernig má það vera? Ef Tartaría var e...
Jun 27, 2025•2 hr 18 min
Eitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor. Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrjöldina eftir árás Japana á herstöðina Pearl Harbor þann 7. Desember 1941. Árásin þótti mjög óvænt, rétt eins og þruma úr heiðskýru lofti og kom Bandaríkjamönnum og heimsbyggðinni allri i opna skjöldu. Aldrei hefði nokkurn Bandaríkjamann grunað að ráðist yrði á flotast...
Jun 13, 2025•-1 sec
NBA deildin í körfubolta er líklega stærsta körfuboltadeild í heimi. Eða í það minnsta sú lang stærsta og tekjuhæsta og sértu af aldamótakynslóðinni þá manstu vafalaust eftir NBA æðinu, sem greip um sig meðal ungra íslendinga, seint á síðustu öld og mögulega áttir þú eitthvað af körfuboltamyndum. NBA deildin er oft á tíðum gífurlega spennandi og skemmtileg og milljónir horfa á útsendingar frá deildinni í viku hverri. Margir leikmenn verða heimsfrægir eða jafnvel goðsagnir og það verður að teljas...
May 31, 2025•2 hr 2 min
Jeffrey Epstein var viðrini og viðbjóður sem misnotaði börn og fólk og auðveldaði öðrum ógeðum að gera slíkt hið sama. Það vitum við öll. Rétt eins og morgunljóst að hann féll ekki fyrir eigin hendi. Það sjá allir menn. Hann flaug auðjöfrum og valdamiklum mönnum ítrekað til eyju sinnar little St James þar sem haldin voru tryllt teiti þar sem ógeðsleg svöll þessum viðrinum til yndisauka og ánægju á meðan fórnarlömbin þjáðust og allt var fest á filmu. Eitt þessara fórnarlamba, Virginia Giuffre, st...
May 17, 2025•2 hr 4 min
Þú ert það sem þú borðar, eða svo segir máltakið og mýtan, sem okkur hefur verið matreidd ofan í okkur af yfirvöldum og fjölmiðlum. Við berum öll sjálf ábyrgð á eigin heilsu og ef við hlustum á yfirvöld og fylgjum ráðleggingum landlæknis og borðum og hreyfum okkur reglulega þá lifum við hollu, góðu og áhyggjulausu lífi. Heilsuhraust og hamingjusöm. Ekki satt? En hvaðan koma eiginlega þessar ráðleggingar yfirvalda og hverjir skrifa þær? Snúast þær raunverulega um að nýta bestu mögulegu vísindaleg...
Apr 04, 2025•2 hr 27 min
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir. Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þetta? Hverjir eiga þá og hverra erinda gegna þeir? Samanlagt eiga þessir tveir sjóðir og litli bróðir þeirra State street uþb 22% allra hlutabréfa í veröldinni og sitja þeir saman eins og ormur á gulli á tæplega 5% heildar auðs heimsins. Auk þess er þessir sjóðir eiga st...
Mar 21, 2025•2 hr 16 min
Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem naut hylli allra. En rétt einsog með aðrar stórstjörnur þá var stutt í sukkkið og smám saman fór að síga á ógæfu hliðina. Elvis sökk djúpt í fen óreglu og fíknar og endaði sem offitusjúklingur og lyfjafíkill sem lést af völdum hjartaáfalls langt fyrir aldur...
Mar 07, 2025•1 hr 39 min
Hver hefur ekki heyrt um gróðurhúsaáhrifin, loftslagsbreytingar og hamfarahlýnun? Hina meintu og svokölluðu ógn við allt lífríki jarðar sem mun grilla mannfólkið, drekkja öllu landi undir sjó og gera gjörsamlega út af við allt sem kvikt er á jörðu niðri á næsta stundarfjórðungi, ef við förum ekki öll að hugsa okkar gang og bæta um betur. a Al Gore, Greta Thunberg, Björk og Thom Yorke geta varla öll haft rangt fyrir sér er það? Að ógleymdum öllum vísindamönnunum, sem samkvæmt hamfarhlýnunar harma...
Feb 21, 2025•2 hr 10 min
Það eru líklega fá málefni sem hafa verið jafn áberandi í umræðunni undanfarin ár og hlýnun jarðar. Já, eða öllu heldur loftslagsbreytingar eða hamfarahlýnun eða hvað sem að fólk vill kalla þetta fyrirbrigði. Loftslagsmótmæli barna og ungmenna hafa farið fram um allan heim með hina sænsku Gretu Turnberg í broddi fylkingar. Almenningur hefur verið varaður við óafturkræfum og stóirfenglegum breytingum á veðurfari jarðar sem séu ekki bara yfirvofandi heldur þegar hafnar og nauðsynlegt er að stöðva....
Feb 07, 2025•2 hr 37 min
Risastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk? Eru geimverurnar loksins mættar til þess að fylgjast með okkur og gera á okkur umfangsmiklar tilraunir? Eða eru Kínverjar og aðrar óvinveittar þjóðir að prakkarast og grallarast með því að njósna um Bandaríkin til þess að komast yfir hernaðarleyndarmál og hávísindalega framtíðar tækni? Drónarnir hafa fles...
Jan 24, 2025•2 hr 35 min
Í Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll um að nú sé stundin loks runninn upp og að gullið sé okkar. En svo kemur slæmi kaflinn, besti maðurinn okkar meiðist og dómararnir dæma okkur út úr mótinu. Alltaf sama óheppnin og þjóðin bölvar og ragnar þjálfaranum og liðinu. En getur verið að þetta hafi ekkert með liðið, þjálfarann óheppn...
Jan 10, 2025•1 hr 52 min
Hvað ef allt sem þú sérð, finnur og upplifir er ekki raunverulegt? Hvað ef veröldin sem við búum í er ekkert annað en sýndarveruleiki, fullkomlega hannaður til að blekkja skynjun okkar og halda okkur frá hinum sanna raunveruleika? Þetta er spurningin sem liggur til grundvallar hermiveraldarkenningunni (e.Simulation Theory), sem hefur vakið ófáar vangaveltur heimspekinga, vísindamanna og samsærissinna undanfarin ár og í raun frá upphafi siðmenningar. Eða amk frá því heimspeki varð til. Kenningin ...
Dec 13, 2024•1 hr 57 min
-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum. Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var einhver mesta vonarstjarna bandarískra stjórnmála á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann var bróðir John F Kennedy, fyrrum forseta sem hafði verið myrtur, og hafði jafnframt setið í ríkisstjórn bróður síns. Árið 1968 ákveður Bobby Kennedy nokkuð óvænt að bjóða sig fram gegn sitjandi forset...
Nov 29, 2024•2 hr 25 min
Stundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt? En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða hugmyndafræði er það byggt? Er markmið yfirvalda að undirbúa okkur öll sem best fyrir lífið svo við höfum sem mesta möguleika opna á vinnumarkaði og tilgangurinn að tryggja sem flestum velgengni eða gefa sem flestum tækifæri? Eða búa aðrar og annarlegar ástæður að baki? Hvað ræður því hvaða fögum er...
Nov 15, 2024•2 hr 5 min
Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans til að tæma síkið(e. Drain the swamp). Í þessari herferð sinni myndi Trump afhjúpa barnaníðinga og ...
Nov 01, 2024•3 hr 16 min
Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans til að tæma síkið(e. Drain the swamp). Í þessari herferð sinni myndi Trump afhjúpa barnaníðinga og ...
Oct 18, 2024•2 hr 32 min
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og ráða að stærstum hluta hvaða efni á upp á pallborð og erindi við almenning og hvað ekki. Almenningur drekkur í sig þessa afþreyingu og hámhorfir af áfergju á nánast allt sem að streymisveiturnar og stóru stúdíóin senda frá sér. Enda fínasta dægrardvöl og ...
Oct 04, 2024•2 hr 1 min
Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borgara létu lífið að ósekju vegna galinna ranghugmynda Hitlers og fylgisveina hans, sem vildu draga fólk í dilka eftir kynþætti og útrýma þeim sem þeir álitu óæðri. Hvort sem það var vegna trúar, litarhafts, fötlunar eða einhvers annars. Áður en langt um leið ...
Sep 20, 2024•1 hr 50 min
Manstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna. Þó að mörg hver okkar munum kannski ekki eftir dauða Nelson Mandela í fangelsi eða myndinni Shazaam með Sinbad þá er til fólk sem á mjög sterkar og ljóslifandi minningar af þessum hlutum og fjölmörgum öðrum hlutum sem eiga sér hugsanlega enga stoð í raunveruleikanum. Eða eru þau mögulega þau einu sem muna eftir hinum ...
Sep 06, 2024•2 hr 7 min
Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dáðir af síðhærðum unglingum í snjáðum gallabuxum um allan heim. Gruggið(e.grunge rock) tröllreið gjörsamlega öllu á tímabili og þar fóru Nirvana svo sannarlega í fararbroddi. En frægðin og áreitið sem fylgdi í kjölfarið fór misvel í meðlimi sveitarinnar og ...
Aug 23, 2024•2 hr 16 min
Hvaða rákir eru þetta sem standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn? Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er verið að spreyja og hversvegna? Ganga þessir aðilar erinda lyfjarisa og tryggingafélaga, sem hagnast verulega af veikindum almennings, eða eru þetta mögulega brjálaðir vísindamenn sem vilja stjórna veðrinu o...
Aug 09, 2024•2 hr 43 min
Flest könnumst við eflaust við Bítlana, eina vinsælustu og sigursælustu hljómsveit allra tíma, sem fór sigurför um heiminn um miðbik síðustu aldar. Þeir félagarnir George, John, Paul og Ringo, stofnuðu hljómsveitina í Liverpool á Englandi árið 1960 og voru nánast í Guðalíki á tímabili og þá sér í lagi hjá unga fólkinu. Plötur þeirra seldust í bílförmum og hvert sem þeir fóru voru þeir eltir á röndum af æstum aðdáendum og enn þann dag í dag njóta plötur þeirra og lög gífurlegra vinsælda. Færri, e...
Jul 26, 2024•2 hr 7 min
Í þessum síðari hluta Álhattarins, um hið umdeilda en áhugaverða mál, Pizzagate kafa þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór enn dýpra ofan í kanínuholuna í leit að einhverskonar sannleika eða í það minnsta áhugaverðri umræðu. Þeir skoða undarlegar og tvíræðar færslur og ummæli James Alefantis, eiganda Comet Ping Pong, á samfélagsmiðlum, sem þykja í besta falli vafasamar ef ekki hreint út sagt ógeðfeldar. Elijah Wood, Corey Feldman og aðrar barnastjörnur og upplifun þeirra í Hollywood ber...
Jul 12, 2024•2 hr 43 min
Í Október og Nóvember 2016 birtu Wikileaks fjölda tölvupósta úr persónulegu tölvupóstfangi John Podesta, kosningastjóra Hillary Clinton. Fljótlega lagðist fólk, og þá kannski sérstaklega úr röðum andstæðinga Hillary, yfir tölvupóstana og hóf leit að einhverju bitasstæðu og krassandi sem mögulega mætti nýta til þess að koma höggi á Hillary. Ekki leið á löngu þar til fólk áttaði sig á að það væri eitthvað verulega bogið við orðalag sumra tölvupóstanna og ekki væri allt með felldu. Meginstraums fjö...
Jun 28, 2024•2 hr 11 min
Dag Hammerskjöld, framkvæmdarstjóri sameinuðu þjóðanna, lést er flugvél hans og fylgdarmanna hans, fórst á leið til friðarviðræðna í Kongó 18.September 1961. Upphaflega var talið að mistök flugmansins eða veðuraðstæður leitt til þess að flugvélin brotlenti, en fljótlega fóru að renna tvær grímur á fólk og ýmsa fór að gruna að ekki væri allt með felldu og mögulega væri þarna eitthvert óreint mjöl í pokahorninu. En hver var Dag Hammerskjöld eiginlega, hvernig hlaut hann þessa stöðu hjá sameinuðu þ...
Jun 14, 2024•1 hr 52 min
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga? Ef eitthvað er að marka flatneskjufræðinga og ákveðna Álhatta á borð við Eric Dubay, Mark Sargent og Patricia Steere þá hafa geimvísindamenn og stofnanir verið að ljúga að okkur, ekki bara í nokkra áratugi held...
May 31, 2024•2 hr 22 min
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta óeðlilegt. Hversvegna ættu einkaaðillar að fá að stjórna magni og flæði peninga í hagkerfinu fremur en ríkið sjálft og hversvegna fá þessir einkaaðillar að prenta peninga af vild án þess að ríkisvaldið hafi eitthvað að s...
May 17, 2024•2 hr 26 min
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af fjöldanum öllum af stórfótum allt frá Bandaríkjunum og Kanada til Ástralíu, Namibíu og Braselíu og víðar. Mannaparnir eða stórfótarnir eru sumir hverjir ógnar stórir en aðrir smærri, allt eftir því frá h...
May 03, 2024•1 hr 35 min
Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy hefur verið ein skærasta stjarna tónlistar og menningargeirans vestanhafs undanfarna áratugi. Hann hefur unnið með fjöldanum öllum af stórstjörnum eftir að hafa stigið fram á sjónarsviðið á 10.áratugu síðustu aldar. Undanfarnar vikur og mánuði hafa komið fram fjöldin allur af frásögnum frá fólki sem segir farir sínar hreint ekki sléttar af samskiptum sínum við Didday og hafa þó nokkrir aðilar lýst því hvernig Diddy misnotaði þau kynferði...
Apr 19, 2024•2 hr 42 min