Kári Árnason og Benedikt Bóas
Gestir þáttarins eru Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi og Benedikt Bóas blaðamaður.

Gestir þáttarins eru Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi og Benedikt Bóas blaðamaður.
Gestir þáttarins eru Jón Þór Hauksson þjálfari Vestra og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður.
Gestir þáttarins eru Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður. Umsjón hefur Hörður Snævar Jónsson.
Gestir þáttarins eru Aron Jóhannsson leikmaður Vals og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður
Gestur þáttarins er Arnar Grétarsson þjálfari KA
Gestir þáttarins eru Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis og Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF.
Gestir þáttarins eru Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður.
Gestir þáttarins eru Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður á Fréttablaðinu. Umsjón hefur Hörður Snævar Jónsson.
Gestir þáttarins eru Davíð Þór Viðarsson fyrrverandi aðstoðarþjálfari FH og Benedikt Bóas blaðamaður á Fréttablaðinu.
Í þættinum er rætt við Arnar Bergmann Gunnlaugsson þjálfara Íslandsmeistara Víkings.
Gestur þáttarins er Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður.
Gestur þáttarins er Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings.
Hörður og Benedikt Bóas fara komandi verkefni íslenska landsliðsins og stöðuna í Pepsi Max.
Hörður og Benedikt Bóas fara yfir stöðuna í íslenska boltanum.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Kristján Óli Sigurðsson eru gestir Hödda í þessarri viku.
Gestir þáttarins eru Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Lengjudeildarliðs Grindavíkur og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður.
Davíð Þór Viðarsson er hættur í fótbolta, hann átti frábæran feril. Sjöfaldur Íslandsmeistari og var fyrirliði FH um langt skeið. Hann lék á ferlinum í Noregi, Belgíu, Svíþjóð og Danmörku. Davíð spilaði 45 sinnum fyrir Ísland, hann var barnastjarna sem afrekaði margt en vildi meira.
Gestur þáttarins að þessu sinni er Just a kid from Darlo sem vann gullskóinn. Það hefur fátt annað verið rætt í sumar í Pepsi Max-deildinni en um Gary Martin. Framherjinn sem Valur fékk en sparkaði út eftir nokkra leiki. Hann fór í ÍBV og vann gullskóinn. Gary Martin hefur átt áhugaverðan feril, farið víða og ræðir það allt hér í 90 mínútum.
Skúli Jón Friðgeirsson hefur leikið sinn síðasta leik á ferlinum, aðeins 31 árs gamall. Skúli hefur átt geggjaðan feril með KR og lék í 3 ár í Svíþjóð. Hann hefur leikið fyrir öll landslið Íslands og gengur stoltur frá borði. Við gerum upp feril Skúla í þessu áhugaverða spjalli.
Óskar Örn Hauksson er einn allra besti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi, hann hefur leikið með KR í 12 ár og varð Íslandsmeistari með liðinu á mánudag. Óskar er besti leikmaður Pepsi Max-deildar karla í ár að mati 433.is en hann hefur skarað fram úr í sterku KR liði. Hann gerir upp þennan árangur í sumar og fer yfir feril sinn í þessu áhugaverða viðtali.
Albert Guðmundsson er aðeins 22 ára gamall en hefur lengi verið í sviðsljósinu, hann hefur spilað fyrir þrjú félög í atvinnumennsku og er hluti af íslenska landsliðinu. Hann hafnaði Arsenal sem ungur drengur og fór á reynslu til Liverpool. Hann leikur með AZ Alkmaar í Hollandi en á sér stóra drauma.
18. umferð Pepsi Max deildar karla lauk i gær en Stjarnan sótti stig í svakalegum leik á Hlíðarenda. Helgi Mikael dómari er maðurinn sem allir ræða. Breiðblik vann sigur á FH í Kaplakrika og tryggir sér nánast Evrópusæti, Fylkir vann HK og tryggði veru sína í deildinni. ÍBV féll úr Pepsi Max-deildinni eftir tap gegn ÍA, Víkingur vann Grindavík og staðan suður með sjó er ekki góð. Þá gerði topplið KR jafntefli við KA á útivelli.
Kári Árnason hefur átt magnaðan feril í atvinnumennsku, hann er nú mættur heim eftir 15 ára feril erlendis. Kári lék í Svíþjóð, Danmörku, Englandi, Skotlandi, Kýpur og Tyrklandi á ferlinum. Hann hefur upplifað allar hliðar fótboltans, það góða og slæma við hann. Kári hefur einnig reynst einn besti landsliðsmaður Íslands frá upphafi.
Sóknin gerir upp 10 umferð Pepsi Max-deildar karla. Breiðablik vann góðan sigur á ÍBV en KR vann FH, það er krísa í Kaplakrika. Stjarnan pakkaði Fylki saman og Víkingur vann góðan sigur á KA á Akureyri. Valur vann sigur á Grindavík á heimavelli en viðtalið við Ólaf Jóhannesson er það sem fólk ræðir eftir leik, þá vann HK frábæran sigur á ÍA.
Kolbeinn Sigþórsson er einn allra besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur átt, þá sérstaklega þegar hann hefur klæðst treyju landsliðsins. Hann hefur upplifað allar hliðar fótboltans, hann var barnastjarna sem varð síðar Hollandsmeistari með Ajax, þrjú ár í röð. Hann gekk í raðir Nantes í Frakklandi, þar sem hann upplifði afar erfiða tíma. Hann ræðir allt af ferli sínum, í þessum nýjasta þæti af 90 mínútum
7. umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær með fimm leikjum, FH fékk skell þegar liðið heimsótti Breiðablik, sem fór á topp deildarinnar. ÍA sem er ásamt Blikum á toppnum, töpuðu gegn ÍBV á útivelli. Valur heldur áfram að tapa og fékk 0 stig í Garðabæ í gær. Fylkir vann góðan sigur á HK, þar var Helgi Valur Daníelsson stjarnan. KR vann góðan sigur á KA en Víkingur er eina liðið án sigurs, eftir jafntefli gegn Grindavík.
6. umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær en þar vann Breiðablik 0-1 sigur á Val. Skagamenn eru áfram á toppnum eftir sigur á Stjörnunni en FH og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli. Á laugardag vann KA góðan 2-0 sigur á slöku liði ÍBV en Grindavík sótti stig í Kórinn, gegn HK. Þá vann KR sigur á ungu liði Víkings.
Ögmundur Kristinsson hefur verið einn besti markvörður Íslands síðustu ár, hann hefur á fimm ára atvinnumannaferli leikið í Danmörku, Svíþjóð, Hollandi og nú Grikklandi. Ögmundur átti frábæra tíma í Grikklandi í vetur og er eftirsóttur biti. Hann hefur upplifað erfiða tíma á ferlinum líkt og flestir sem fara í atvinnumennsku, hann ræðir um allt sem hefur gengið á.
5 umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær. Krísa Vals heldur áfram en liðið tapaði gegn frábæru FH liði. Grindavík vann öflugan sigur á Fylki og KR vann nauman sigur á HK. Á sunnudag vann ÍA toppslaginn gegn Breiðabliki, á sama tíma tapaði Stjarnan gegn KA á heimavelli. ÍBV og Víkingur gerðu svo 1-1 jafntefli í Eyjum.
4. umferð Pepsi Max-deildarinnar lauk í gær, Valur vann góðan sigur á Fylki og Grindavík hafði betur gegn KR. HK lagði ÍBV og Stjarnan vann góðan sigur á Víkingi. Blikar gerðu góða ferð á Akureyri og vann KA, þá tapaði FH á barnalegan hátt gegn ÍA. Bjarni Helgason, blaðamaður Morgunblaðsins gerir upp umferðina með okkur.