Joe Grimson: Saga af svikum - podcast cover

Joe Grimson: Saga af svikum

RÚVwww.ruv.is
Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessari fjögurra þátta röð, úr smiðju feðginanna Snærósar Sindradóttur og Sindra Freyssonar, er ævintýralegur og hreint ótrúlegur ferill Jósafats rakinn frá upphafsárum hans í svindli á vellinum í Keflavík og þar til fjársvikin fóru að hlaupa á milljörðum á alþjóðasviðinu í Bretlandi og Írlandi - en þá hafði Jósafat fyrir löngu sagt skilið við nafnið sem honum var gefið í bernsku og farinn að kalla sig Grimson, Joe Grimson. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Myrtu þeir Eggert? - Seinni þáttur: Krufningarskýrslan

Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný gögn í málinu hafa varpað ljósi á glæpsamlega vanrækslu þegar kom að rannsókn fráfallsins, en spurningin sem liggur í loftinu er sú sama og verið hefur um aldir alda: Hver hagnast á glæpnum? Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.

Apr 11, 202354 minEp. 8

Myrtu þeir Eggert? - Fyrri þáttur

Valdatafl, vanefndir og pólitískar hrókeringar Keflavík var bæjarfélag í örum vexti þegar ungur og frambærilegur Sjálfstæðismaður, Eggert J Jónsson, var ráðinn sem bæjarstjóri og flutti með konu sinni og þremur börnum suður með sjó að hefja nýtt líf. Hann naut vinsælda í bænum en pólitísk undanbrögð áttu eftir að valda því að hann tók við embætti bæjarfógeta og hóf að sækja til saka menn, og sekta fólk sem áður hafði mátt eiga von á því að sleppa auðveldlega frá löngum armi laganna. Sá aðdragand...

Apr 11, 202349 minEp. 7

Myrtu þeir Eggert? - Stikla

Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný gögn í málinu hafa varpað ljósi á glæpsamlega vanrækslu þegar kom að rannsókn fráfallsins, en spurningin sem liggur í loftinu er sú sama og verið hefur um aldir alda: Hver hagnast á glæpnum?

Apr 05, 20231 minEp. 6

Fjórði þáttur: Frá Súrínam til Írlands

Á tíunda áratugnum réðst írska lögreglan í gríðarlega umfangsmikla rannsókn á fyrirhuguðum fíkniefnainnflutningi og ákærði í fyrsta sinn fyrir samsæri um slíkan innflutning. Það kemur ef til vill á óvart að það var Íslendingur sem fyrstur manna var ákærður fyrir téð lagaákvæði, Sigurður Arngrímsson. Málið teygir sig yfir hálfan hnöttinn og er ein stærsta ráðgátan á ævintýralegum ferli Jósafats Arngrímssonar. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni...

Dec 21, 202240 minEp. 5

Þriðji þáttur: Nígeríumálið

Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt nafn, nýja fjölskyldu og nýjan leikvöll þar sem enginn í fjármálalífinu þekkti hann, var framtíðin einsog óskrifað blað, já eða óútfylltur víxill. Í þættinum er rakið umfangsmikið sakamál sem snerist um sölu á skreið til Nígeríu frá norskum smábæ og við sögu koma írskir gangsterar, þyrluflug...

Dec 21, 202240 minEp. 4

Annar þáttur: Rannsóknarblaðamaðurinn

Á áttunda áratugnum var ágeng rannsóknarblaðamennska að fá byr undir báða vængi erlendis. Komin var fram ný kynslóð fréttamanna sem hikaði ekki við að svipta hulunni af spillingu og misgjörðum valdhafa og auðjöfra. Einn slíkur blaðamaður hér á landi var Vilmundur Gylfason, sem fjallaði um málefni Jósafats Arngrímssonar í óháðum fréttaþætti á RÚV og "dansaði línudans á meiðyrðalöggjöfinni" að eigin sögn. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tóma...

Dec 21, 202240 minEp. 3

Fyrsti þáttur: Ævintýri á Vellinum

Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessum fyrsta þætti er farið yfir upphaf ferils Jósafats, gríðarlegan uppgang í Keflavík sem Jósafat tók þátt í af krafti, og loks fyrsta sakamálið gegn honum, en Jósafat var dæmdur fyrir umfangsmikið ávísanasvindl. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við s...

Dec 21, 202241 minEp. 2

Stikla

Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessari fjögurra þátta röð, úr smiðju feðginanna Snærósar Sindradóttur og Sindra Freyssonar, er ævintýralegur og hreint ótrúlegur ferill Jósafats rakinn frá upphafsárum hans í svindli á vellinum í Keflavík og þar til fjársvikin fóru að skipta milljörðum á alþjóðasviðinu í Bre...

Dec 16, 20221 minEp. 1
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android